Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 35

Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 35
KRISTÍN ÚLAFSDÓTTIR, læknir: aráKleppi. Skömmu fyrir jólin gafst mér ásamt öðrum tæki- færi á að skoða sýningu á handavinnu sjúkling- anna á Kleppsspítala, en þangað var í fyrrahaust, fyrir forgöngu yfirlæknisins, dr. Helga Tómasson- ar, ráðinn kennari í vinnulækningum, ung stúlka, sem ein Islendinga hefir lagt stund á þessa grein og lokið prófi í henni í Danmörku. Á sýningunni var margt fallegt að sjá, allt vel unnið og prýðilega smekklegt. Þar voru alls konar prjónavörur: sokkar, vettlingar, peysur, karl- mannavesti, bleyjubuxur, vagnteppi, þvottaleppar og klútar. Enn voru þarna hnýttar bögglaskjóður, belti og gólfmottur, saumaðir borð- og bakkadúkar og alla vega jólaskraut, m. a. úr íslenzkum hálmi. Það, sem þó vakti mesta aðdáun mína, voru munir úr beini, skínandi hvítir og fágaðir hnífar, skeiðar, saltker, pentudúkahringir og salatsam- stæður af öllum stærðum og gerðum. — tJr hvaða beini er þetta? spurði ég. -— tJr venjulegum kjötbeinum, er til falla í eld- húsinu, var mér svarað. Kennslukonan, ungfrú Jóna Kristófersdóttir, fræddi okkur því næst um það, að beinin, sem unnið væri úr, væru mest leggbein stórgripa, sem soðin væru í klórkalki og sápu, unz úr þeim væri öll fita, en síðan söguð, sorfin og fægð. Ég verð að segja, að ég varð meira en lítið undr- andi yfir að sjá svo fagra muni gerða úr beinum, sem allir fleygja og telja að engu nýt. — Eru það nú ekki aðeins hressustu sjúklingarn- ir, sem geta unnið þetta? spurði ég dr. Helga. — Ó, nei, nei, svaraði hann, — það gera engu síður þeir, sem lasnari eru. Enn fræddi dr. Helgi Tómasson okkur á því, að sjúklingarnir virtust una vel þessari vinnu. — Verstu dagarnir okkar, sagði hann, — eru þegar kennslukonan hefir frí, því að þá veit eng- inn, hvað hann á að taka sér fyrir hendur. Að mestu leyti er unnið á sjúkrastofunum á vetrum, en í sumar sátu sjúklingarnir úti við vinnu sína, þegar veður leyfði. Reynt er eftir föngum að gera vinnuna sem fjölbreyttasta. Konurnar spinna, prjóna, knipla, sauma, hekla, hnýta ábreiður, staga í o. fl. o. fl. Karlar smiða úr tré og beini, prjóna klúta, hnýta ábreiður, ríða net og vinna ýmsa smámuni úr hálmi. Enn hefir verið ofið allmikið, en vegna vöntunar á tvisti hefir vefnaðurinn að mestu leyti legið niðri um sinn. Ungfrú Jóna Kristófersdóttir er ættuð frá Blönduósi. Hún sigldi til Danmerkur árið 1939. Lærði hún fyrst vefnað á Jótlandi. En haustið 1942 hóf hún nám í handavinnu og vinnulækning- um í Kaupmannahöfn og lauk því hálfu öðru ári síðar með ágætiseinkunn, að afloknu sjö mánaða starfi við geðveikraspitala í Middelfart á Fjóni. I hálft annað ár vann hún síðan sem kennari i vinnulækningum hjá Velferðarstofnun danskra kvenna (Danske Kvinders Velfærd) í Kaupmanna- höfn og gafst þá tækifæri til að kynnast ýmiss kon- ar starfsemi Dana að velferðarmálum. Síðasta árið, sem hún dvaldist í Danmörku, buð- ust henni tvær góðar stöður, en hugurinn leitaði heim til Islands, þar sem hún vissi sérstaka þörf fyrir kunnáttufólk í þessari grein. Jóna Kristófersdóttir. B Y R P A 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.