Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 32

Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 32
DDRCUTHY PARKER : Guð, láttu hann hringja. Góði guð, láttu hann hringja strax. Ég skal ekki biðja þig um neitt annað, hara þetta eina, þú mátt trúa því. Er það nokkuð mikið? Hvað getur þig munað um það, guð, svona litið, svona voða litið. En láttu hann bara gera það strax. Gerðu það, guð, gerðu það, gerðu það, gerðu það. Kannske hann hringi, ef ég hætti að hugsa um það. Það kemur stundum fyrir. Bara ég gæti hugsað um eitthvað annað. Bara ég gæti hugsað um annað. Kannske ég ætti að reyna að telja upp að fimm hundruð. Kannske hann hringi þá á meðan. Ég tel hægt, ég skal ekkert hafa rangt við. Og þó siminn hringi, þegar ég er komin upp í þrjú hundruð, þá hætti ég ekki. Ég anza ekki fyrr en ég er kom- in upp í fimm hundruð. Fimm, tíu, fimmtán, tuttugu, tutt- ugu og fimm, þrjátíu, þrjátíu og fimm, fjörutíu, fjörutíu og fimm, fimmtiu, . . . . ó, hringdu, hringdu, ó, gerðu það. Þetta skal verða í síðasta sinn, sem ég lít á klukkuna. Ég lít ekki á hana aftur. Hún er tíu mínútur yfir sjö. Hann sagðist ætla að hringja um fimmleytið. „Ég hringi klukk- an fimm, elskan", sagði hann. Ég held það hafi verið þá, sem hann sagði elskan, ég held áreiðanlega að það hafi ver- ið þá. Hann sagði það tvisvar og annað skiptið var þegar hann kvaddi mig. „Vertu sæl, elskan", sagði hann. Hann hafði svo mikið að gera, og hann á svo bágt með að tala við mig í skrifstofunni, en samt sagði hann tvisvar elskan. Hann hefir ekkert getað verið leiður þó ég hringdi. Ég veit að maður á ekki að vera að hringja þá upp, þeir vilja það ekki. Ef maður gerir það, þá vita þeir, að maður er að hugsa um þá og þrá þá, og þá fara þeir að hata mann. En ég hef ekki talað við hann í þrjá daga, ekkert einasta orð í þrjá daga. Ég gerði ekkert annað en að spyrja, hvernig honum liði, alveg eins og hver annar, sem hringir. Það er ómögu- legt að honum hafi leiðst það. Það getur ekki verið, að hon- um hafi fundizt ég vera að þreyta sig, þó ég gerði það. „Nei, hvað heldurðu þú sért að þreyta mig?“ sagði hann. Og hann sagðist ætla að hringja. Hann þurfti ekkert að vera að segja það frekar en hann vildi, ég bað hann ekkert um það, það er áreiðanlegt að ég bað hann ekki um það. Ég trúi því ekki, að hann væri að segjast ætla að hringja, ef hann ætlaði sér alls ekki að gera það. Láttu hann ekki gera svoleiðis, guð. Láttu hann ekki gera svoleiðis. „Ég hringi klukkan fimm, elskan". „Vertu sæl, elskan". Hann hafði mikið að gera og hann var að flýta sér og það var fullt af fólki inni, en samt sagði hann tvisvar elskan. Það á ég þó alltaf. Það á ég þó alltaf. Það á ég, þó ég sjái hann aldrei framar. 0, en það er svo lítið. Það er ekki nóg. Ekkert er nóg, ef ég sé hann ekki framar. Lofaðu mér að sjá hann aftur, guð, ó, mig langar svo að sjá hann. Mig Dorothy Parker er talin meðal beztu rithöfunda Bandaríkjanna og hnittni hennar er heimsfræg. Fyrsta bók hennar, „Enough Rope“, var ljóðabók og kom út árið 1927. Hún seldist bezt allra hóka, er út komu á árinu, og mun slíkt vera einsdæmi um ó- þekktan höfund. Árið 1928 kom út önnur ljóðabók hennar, „Sunset Gun“, tveim árum síðar fyrstu smá- sögur hennar, „Laments for the Living“, og því næst ljóðabók, „Death and Taxes“. Smásögusafnið „After such Plcasures" kom út 1934, og „Here Lies“, úrval úr sögum hennar, árið 1943. Dorothy Parker á marga aðdáendur hér á landi, en hingað til mun ekkert hafa verið þýtt eftir hana á íslenzku. — Hér birtast nú tvær- smásögur hennar. langar svo að sjá hann. Ég skal vera góð, guð. Ég skal reyna að bæta mig, ég skal áreiðanlega reyna það, ef þú bara lofar mér að sjá hann aftur. Ef þú lætur hann hringja til mín. 0, láttu hann hringja strax. 0, segðu ekki, að þetta sé of lítilfjörleg bæn, góði guð. Þú situr þarna uppi, fannhvitur og kaldranalegur með alla englana í kringum þig og stjörnurnar sveimandi framhjá. Og ég kem til þín og sárbæni þig um eitt símtal. Ó, hlæðu ekki. Þú veizt ekki, hvernig mér líður. Þú getur verið ör- uggur uppi í hásætinu með himinblámann undir fótum þér, enginn kremur hjartað í þér milli handa sér. Þetta er kvöl, guð, þetta er voðaleg, voðaleg kvöl. Viltu ekki hjálpa mér? Gerðu það i nafni sonar þins. Þú lofaðir að bænheyra oss í nafni hans, ó, guð, gerðu þetta þá í nafni þíns elsk- aða sonar, Jesú Krists, frelsara vors, láttu hann hringja strax. Ég verð að hætta. Ég má ekki halda svona áfram. Sko til. Ef ungur maður segist ætla að hringja til stúlku, og svo kemur eitthvað fyrir, svo hann lætur ekki verða úr því, — er það nokkuð voðalegt? Kemur það kannske ekki fyrir um allan heim, á hverri einustu mínútu? Ó, hvað kemur mér allur heimurinn við? Þvi getur þessi sími ekki hringt? Af hverju getur hann það ekki, af hverju getur hann það ekki? Viltu ekki hringja? Ó, gerðu það, hringdu. Bannsettur ljóti skjannalegi síminn þinn. Þú ert auðvitað alltof góður til að hringja, það færi auðvitað alveg með þig, ef þú hringdir, heldurðu það ekki? Bölvaður sértu, ég skal rífa þig með rót- um út úr veggnum, ég skal mola á þér bannsett svarta smettið. Bölvaður sértu að eilífu. Nei, nei, nei. Ég verð að hætta. Ég verð að hugsa um eitthvað annað. Ég verð að gera það. Ég set klukkuna inn í hitt herbergið. Þá sé ég ekki á hana. Ef ég get ekki stillt mig um að líta á hana, þá verð ég að fara inn í annað her- bergi til þess, og þá hef ég þó alltaf eitthvað að gera rétt á meðan. Kannske hann verði búinn að hringja áður en ég lít á hana næst. Ég skal vera góð við hann ef hann hringir. Þó hann segist ekki geta komið í kvöld, þá segi ég bara: „Það gerir ekkert til, góði, uss, það gerir ekki nokkurn 22 S Y R P A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.