Syrpa - 01.02.1947, Qupperneq 37
Þegar íslendingur erlendis þarf að taka svari
þjóðar sinnar, ber hann ætíð fyrir sig sömu vörn.
Hann minnir á þau rit forfeðra sinna, sem talin
eru meðal mestu afreka mannlegs anda, og sýn-
ir fram á hið einstæða þrekvirki íslenzku þjóðar-
innar, er hún varðveitti þenna arf á margra alda
þymibraut sinni og auðgaði hann stórum. Hann
vekur athygli á því, að ein göfgasta tunga mann-
kynsins væri nú dauður bókstafur, ef þessi svanga
og klæðlitla útkjálkaþjóð hefði ekki haldið henni
lifandi á striðnuðum vörum sínum. Hann telur upp
skáld og ritsnillinga þessarar aldar, og fer ósmeik-
ur í mannjöfnuð á því sviði við hvaða þjóð sem er.
Loks getur hann þess, að nú riti íslendingar meira
en nokkur önnur þjóð í heimi, að tiltölu við fólks-
fjölda, og að ef dæma megi eftir bókasölu, þá lesi
þeir einnig meira en aðrir menn á jörðunni. Og áð-
ur en varir er hann kominn í sókn.
En það eru ekki einasta einstaklingarnir, sem
byggja varnir sínar á þessum grundvelli. Þjóðar-
heildin reisir einnig fyrst og fremst á honum kröf-
ur sínar um frelsi og fullveldi. Eins og nú er kom-
ið málum, virðist helzta lífsvon hennar einmitt
vera fólgin í þeim möguleika, að svo takist að búa
um hnúta, að herveldin komi sér ekki að því að
gleypa hana alveg, vegna þess að hún verði að
teljast nokkurs virði fyrir heimsmenninguna. Það
ætti að vera aðalerindi okkar í samtök hinna sam-
einuðu þjóða, að tryggja alþjóðlegan vettvang til
þess að sýna fram á tilverurétt þjóðarinnar frá
þessu sjónarmiði, og að færa rök fyrir því, að hún
þurfi að fá að lifa ein og í friði í landi sínu. Svona
eru bókmenntirnar örlögum okkar mikils virði.
En gætum við þeirra þá eins og skyldi?
Margir beztu fslendingar verja ævi sinni til þess
að hlúa að þeim og blása í þær nýju lífi. Þeir leit-
ast við að kryfja hin gömlu rit til mergjar, grafa
upp gleymd gullkorn, rita sjálfir merkilegar bæk-
ur, og vinna að því öllum árum að endurheimta
hin fornu handrit, sem lent hafa í útlegð.
Samt er ekki allt með felldu.
Hinn 26. október 1945 birtist svohljóðandi aug-
lýsing í dagblaðinu „Vísi“:
ER ÞAÐ S ATT ?
að í næsta mánuði komi út á íslenzku fyrsta nútíma hand-
bókin um samlíf karls og konu?
að í bók þessari: RAUNHÆFT ÁSTALÍF, SÉU 11 INN-
SIGLAÐAR LITMYNDIR?
að síðan 1939 hafi bókin verið endurprentuð 15 sinnum í
Englandi?
að LÆKNAVlSINDIN HAFI GERT ALLAR ELDRI
BÆKUR UM ÞESSI EFNI ORELTAR?
að RAUNHÆFT ÁSTALlF sé berorð, hreinskilin og sönn
bók, — en aðeins fyrir fullorðna?
að RAUNHÆFT ÁSTALlF kosti í bandi aðeins rúmar 20
krónur?
að RAUNHÆFT ÁSTALÍF sé bókin, sem yður hefir allt-
af vantað?
JÁ, ÞAÐ E R SATT!
Utg. Fræðsluhringurinn, Pósthólf 733, Reykjavík.
Hinn 30. október s.l. gat þessa auglýsingu að
líta í Morgunblaðinu:
I dag kemur í bókabúðir bók amerisku hjónanna
Henry og Freda Thornton
HJÖNALÍF.
Bók þessi fjallar um hin nánu, líkamlegu samskifti hjóna-
bandsins og er fyrsta bók þess efnis, sem hjón hafa skrifað
í sameiningu. Hún hefir því þá meginyfirburði yfir bækur
um sama efni, að hér er tekið fullt tillit til beggja aðila,
eiginmannsins og eiginkonunnar. Og þó að bókin sé ákaf-
lega hispurslaus og frjálsmannlega rituð, þarf hún engan
að hneyksla. Hér er aðeins fjallað um einn mikilsverðasta
þátt i lífi manna feimnislaust og blátt áfram. Eigi að sið-
ur er ástæða til að benda á það, að bók þessi er ætluð full-
vaxta fólki, en ekki óþroskuðum unglingum.
Bókin er byggð á þeirri reynslu, sem höfundarnir hafa
aflað sér í hjónabandi sínu, og ennfremur á þekkingu, sem
sálfræðingar, læknar og aðrir ábyrgir aðilar hafa miðlað
höfundunum á umræðufundum um kynferðismál. Annar
höfundur bókarinnar er auk þess útlærður sálfræðingur og
á að baki margra ára reynslu sem ráðunautur i hjónabands-
vandamálum. Og bókin hefir að geyma tæmandi upplýs-
ingar um það, sem sérhver hjón þurfa að vita, til þess að
geta lifað fullkomlega hamingjusömu kynlífi.
Bók þessi hefir hlotið gífurlega útbreiðslu í Ameriku
og þótt hið ágætasta rit sinnar tegundar. Einnig hefir
hún verið þýdd á ýms önnur tungumál, þar á meðal á
Norðurlandamál, og hvarvetna hlotið geysi-útbreiðslu og
góða dóma. Þess er þó ekki að dyljast, að ýmsar myrk-
ursálir hafa hneykslast é bókinni og fordæmt hana, enda
þótt hinir sömu hafi sennilega ekki lesið hana með
minni áfergju en aðrir.
HJÓNALlF fæst hjá bóksölum um land allt og kostar að-
eins kr. 11.—. Hrafnsútgáfan.
5 Y R P A
27