Syrpa - 01.05.1949, Blaðsíða 8
málum — í fjármálum — í hjúskaparmálum — í
menningarmálum og launamálum?
Mér finnst ekki líklegt, að þeir verði ýkjamarg-
ir. — Það er nefnilega örugglega víst, að aukin
mannréttindi kvenna brjóta ekki í bág við hags-
muni þjóðfélagsins.
Og þó hefur Alþingi að þessu sinni fellt að
verða við réttmætum óskum um jafnrétti kvenna
og karla. — Frumvarpinu um réttindi kvenna var
mætt með rökstuddri dagskrá, þar sem segir, að
vegna þess að það sé óvíst og óljóst, að hve miklu
leyti konur búi við þrengri rétt í þjóðfélaginu en
karlmenn, verði blessaðri ríkisstjórninni falið að
athuga og rannsaka málið, og leggja síðan frum-
varp um réttarbætur fyrir Alþingi — einhvern
tíma seinna — ef purfa þykir. — Þetta verkefni var
þó stjórninni óljúft að taka að sér, og var dag-
skrártillagan felld við aðra umræðu málsins. Því
næst var svo frumvarpið sjálft einnig fellt með
jöfnum atkvæðum. — Við vitum vel, hversu sjald-
gæft það er, að eikin falli við fyrsta högg og mun.
um enda líka það, sem Þorsteinn kvað. Þess vegna
segjum við nú við þig, íslenzka kona:
,,Þú skalt ekki að eilífu efast um það,
að aftur mun þar verða haldið af stað,
unz brautin er brotin til enda.“
ÞRJÚ SMÁLJÓÐ
eftir Dorothy Parker
Nocturne
Alltaf ég fann, að það endanlegt var.
(Úlfgráir skýflókar. Blaðvana greinar).
Manni ég unni — og það fór þar.
(Þykknar í lofti og náttvindur kveinar).
Breiðsla’ yfir staðreynd er bleyðileg,
brunnið er eldfjallið, storknar þess hliðar.
Alltaf ég fann, að það fceri á einn veg,
fyrr eða síðar.
Allatið var mér sá endir Ijós.
(Úrhellisregn lemur mioldir, sem flaka).
Bliðara lœtur ný blómarós.
(Blik undir sólstöfum. Smáfuglar kvaka).
Nú kýstu þá, sem mér yngri er,
urðar hamingju liðinnar tiðar.
Jceja, það fer vist eins fyrir mér,
fyrr eða síðar.
Myndir í tóbaksreyk
Hve glcest var fyrs'a ástin, svo æskudjörf og fin!
Sú önnur likust vatni i hreinu, hvítu glasi.
Þriðja ástin ást lians, en öll sú fjórða min,
iog eftir það ég hefi ei reiðu á mínu kcerleiksbrasi.
N iðurstaða
Rakhnifur blóðgar.
Bróm veldur kvöl.
Fýla’ er af gasi.
Fljót eru svöl.
Blásýra brennir.
Bregst snara flest.
Skammbyssa’ ei lögleg.
----Að lifa er vist bezt.
Sigurður Þórarinsson þýddi.
80
SYRPA