Syrpa - 01.05.1949, Side 17
eldhússins) o. s. frv. Stundum er dálítið erfitt að
korna þessu æskilega fyrir, vegna þess að gluggum
og dyrum hefur verið óheppilega fyrirkomið.
Að óathuo;uðu máli munu fáir gera sér í hugar-
lund, hve húsmóðurinni eru spöruð mörg auka-
spor í vel skipulögðu eldhúsi.
Skýringamyndirnar, er fylgja hér með, sýna nið-
urstöður rannsókna, sem Svíar hafa framkvæmt
varðandi fyrirkomulag í eldhúsum. Hin síðari
ár hafa þeir einnig haldið uppi mjög athyglis-
verðum rannsóknum varðandi notagildi hinna
ýmsu áhalda, sem daglega eru notuð í eldhúsinu.
Hcr scst greinilega, að mismunurinn er mikill á sporafjölda
þeim, setn húsmóðirin verður að stiga daglega í illa (efri mynd-
in) og vel skipulögðu eldhúsi.
Vinnuborð og upppvottaborð
Bor(Sliœðin skiptir mjög miklu máli. Hún hef-
ur breytzt talsvert á seinni árum. Fyrir um það
bil 15—20 árum var þægileg hæð á eldhúsborði
álitin um 78 cm. Síðan hefur liæðin farið vaxandi
vegna rannsókna, sem fram hafa farið á þessu
sviði. Á Norðurlöndum er 85 cm. hæð algengust
síðari árin, en í Ameríku mun 90 cm. hæð álitin
henta bezt.
Fótstykki (sökkull), 10 cm hátt, ætti að vera
undi;r öllum veggborðum, 4—5 cm innar en
fremsta brún borðanna. Ekki færri en tvær út-
dragsplötur ættu að vera í hverju eldhúsi, önn-
ur til brauðskurðar, en hin til að skera á fisk-
og kjötmeti. Plata uppþvottaborðsins ásamt
„vaskinum“ ætti helzt að vera úr ryðfríu stáli,
enda algengast nú á seinni tímum. Fötu undir
úrgang er heppilegast að hafa á palli innan á
Fötunni, sem cetluð er undir úr-
gang, er hentugast að homa fyrir á
palli innan á hurð i uppþvotta-
borðinu.
hurð í uppþvottaborðinu. Lok ætti lielzt að vera
á þessari fötu. Nauðsynlegt er að loftræsa þenn-
an skáp vel. Viðvíkjandi uppþvottinum langar
ar mig til að minnast á þurrkgrindina, sem ég
held að ennþá sé of lítið notuð hér, en mjög
þekkt annars staðar sem liinn þarfasti gripur
í eldhúsinu. Margar gerðir eru til af þeim á
markaðnum erlendis, bæði úr tré og málmi, en
fáar munu hafa komið í verzlanir hér. Þó hefur
ein búsáhaldaverzlun bæjarins öðru hvoru haft
góða gerð úr ryðfríu stáli á boðstólum. En þær
hafa stundum verið lengi í sýningargluggunum,
og bendir það til þess, að húsmæður sækist ekki
mjög eftir þeim, sennilega vegna þess að þær
þekkja ekki hina miklu kosti þeirra.
Mörgum eldhússtörfum er þannig háttað, að
mjög þægilegt er að vinna að þeim sitjandi, þó
of lítið sé það tíðkað. Með tilliti til þess er lieppi-
legt að hafa kafla undir vinnuborðinu án skápa
og opna til veggjar, svo að hægt sé að sitja þar
við borðið. Stóllinn þarf þó auðvitað að vera
talsvert hærri en venjulegir stólar, helzt þannig
að hægt sé að hækka hann og lækka eftir vild.
Slíkir stólar eru talsvert notaðir í eldhúsum
víða erlendis og þykja mjög hentugir.
Ef að miðstöðvarofninn er ekki undir glugga
í eldhúsinu, er mjög hentugt að setja þurrkskáp
á vegginn fyrir ofan liann, til að þurrka þar upp.
þvottaklúta o. fl.
Ein nýjung, sem hér mun vera aðeins í örfáum
Vel hólfuð hnífaparaskúffa i
upþþvottaborðinu er til mikilla
þæginda.
S YRPA
89