Syrpa - 01.05.1949, Síða 18
eldhúsum, er bökunarskúffan. Hún er þannig, að
hliðarnar eru lægri innantil og án bakstykkis,
botninn kemur slétt með hliðunum að neðan og
þarf helzt að vera þykkri en venjulegur skúffu-
botn. Lengd skúffunnar er æskileg um 75—90 cm.
Við notkun er hún tekin út og sett ofan á borð-
plötuna, þannig að forstykkið snýr að veggnum
og síðan hnoðað á henni og skorið. Með notkun
bökunarskúffunnar er fyrirbyggt að skorið sé í
plötuna á vinnuborðinu og hreinlæti við bakstur.
inn mjög mikið aukið. Ég vil hiklaust mæla með
notkun hennar, því að hún gefst alls staðar vel,
þar sem ég þekki til.
Bökunarskúffan er nýjung,
sem hefur reynzt mjög vel,
og œtti helzt að vera i hverju
nútimaeldhúsi.
Veggskápar
Eitt veigamesta atriðið, er veggskápana varðar,
sem og raunar alla skápa, er að hillu-millibil séu
mátuleg og hæfi þeim hlutum, sem geyma á í
þeim. En hlutir þessir eru, eins og vitað er, mjög
misjafnir að stærð og lögun. Þess vegna er nauð-
synlegt að hafa stærð þeirra hvers og eins í huga,
þegar millibilin eru ákveðin. Þrátt fyrir þessa
staðreynd má víða í húsum sjá skápa með löngu
og jöfnu bili milli allra hillna, oft 30—40 cm.,
sem er það bil, er aðeins hæfir hæstu hlutum, er
í skápnum á að geyma. Til þess að rúmið í skáp-
unum notist til hlítar, þarf millibilið að vera
mjög misjafnt, það minnsta aðeins 12—16 cm. En
gæta verður þess auðvitað að nota hillurnar með
hinu hagkvæma bili á réttan hátt, t. d. láta ekki
kaffibollana þar sem lengst er millibilið og lenda
svo í vandræðum með stað fyrir háar mjólkur-
könnur. Hillurnar ættu ekki að ná alveg aftur að
baki skápanna, heldur að vera eins og 2 cm. frá
því, það atíðveldar hreingerningu.
Dýpt veggskápanna er oft ekki stillt í hóf sem
skyldi. 30 cm. utanmál er nægileg dýpt fyrir alla
þá hluti, sem í þeim eiga að vera. Meiri dýpt er
algerlega gagnslaus, en veldur óþægindum, þegar
unnið er við veggborðið, sem oftast er undir skáp-
unum. Millibilið milli vinnuborðs og veggskápa
ætti ekki að vera minna en 55 cm. Þess er oft ekki
gætt sem skyldi að hafa skápana þannig, að sem
90
allra auðveldast sé að halda þeim hreinum. Enn-
þá verður mörgum á af gömlum vana að hafa
breitt, fast stykki á milli hurðanna og út við enda
skápanna, en það torveldar mjög hreingerningu
skápsins að innan. Yfirskáparnir ættu alltaf að ná
alla leið til lofts, jafnvel þó að viðkomandi telji
sig ekki hafa not fyrir þá svo háa. Með tilliti til
hreinlætis er mjög óheppilegt að hafa þá 30—40
cm. frá lofti, því að ryk, sem fellur yfir sjónar-
hæð, vill oft gleymast í hinum daglegu önnum.
Eitt mjög varhugavert atriði er farið að láta á
sér bera í eldhúsinnréttingum hér og virðist vera
allvel séð af mörgum húsmæðrum. Það eru hinar
svonefndu „punthillur“. Þær hafa alls enga hag-
nýta þýðingu, en verða aðeins til að auka að mun
erfiði við daglega hreingerningu. Ef húsmóðirin
hefur einhverja stund afgangs frá hinum óhjá-
kvœmilegu störfum, væri henni þá ekki betur
varið til lesturs eða handavinnu, heldur en ryk-
hreinsunar eða þvotta á þýðingarlausum hillum
og sillum?
Fyrir nokkrum árum tfðkaðist það mjög að
hafa rammahurðir með gleri í fyrir eldhússkáp-
unum. Ymist var þá glerið glært eða marglitt,
slétt eða með ýmiss konar upphleyptu mynstri.
Þessar hurðir tilheyra að mestu leyti fortíðinni,
en þó munu vera til nýleg eldhús með þessari
hurðagerð. Rennihurðir úr gleri eru heldur ekki
óþekkt fyrirbrigði í eldhúsum hér seinni árin.
Báðar þessar hurðagerðir eru mjög óhagkvæmar
og ættu helzt hvergi að sjást, sízt af öllu í eldhús-
inu. Rennihurðir úr tré álít ég einnig óheppi-
legar í eldhús. Hinar sléttu krossviðarhurðir eru
þó sem betur fer algengastar, enda heppilegastar
og ódýrastar. Rimlahurðir úr tré, sem þannig eru
gerðar, að þær hverfa inn í skápana, þegar þeim
er ýtt til (vel mætti nefna þær hverfihurðir, ég
veit ekki til, að þær hafi hlotið neitt íslenzkt nafn
ennþá) eru þó eflaust beztar allra hurða, sem völ
er á, sérstaklega fyrir yfirskápana, því að ekki mun
það ósjaldan koma fyrir, að fólk reki sig óþyrmi-
Iega í hurðir þær, sem opnast á hinn venjulega
hátt. En rimlahurðir þessar eru talsvert dýrari en
hinar venjulegu, og þess vegna varla við því að
búast, að þær ryðji sér almennt til rúms í náinni
framtíð, þrátt fyrir góða raun, sem þær gefa, þar
sem þær hafa verið notaðar.
Búrin eins og þau tíðkuðust í gamla daga, með
öllum sínum kirnum og trogum, munu varla
þekkjast í kaupstöðum lengur. En sumir vilja
SYRP A