Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 18
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Gógó Starr, hún/hann, tuttugu
og eitthvað.
Hvað gleymdist að segja þér
þegar þú varst ungmenni?
Að það væri valmöguleiki
að vinna í fullu starfi sem
dragdrottning. Hverjum datt
það í hug?
Hvernig myndir þú vilja hafa
elliheimilið?
Elliheimilið? Afsakið mig, ég
verð að játa að ég er alveg núll
búin að pæla í því. Ég verð
ung að eilífu, takk fyrir.
En svona fyrst þú spyrð þá
hugsa ég að þar þurfi að
vera gott svið fyrir reglulegar
skemmtanir og sýningar og
ég vil vera umkringd öðru
hinsegin fólki – straight liðið
má halda sér einhvers staðar
annars staðar. Það væri líka
mjög nett ef þetta elliheimili
væri á skemmtiferðaskipi eða
eitthvað álíka flippað. Og að
sjálfsögðu þarf fordómalaust
og vel frætt starfsfólk – það er
soldið möst.
Hvernig viltu taka þátt í
hinsegin samfélaginu?
Ég reyni að koma hinsegin
list á stærri vettvang og vinn
stöðugt að því að ungt fólk
sem hefur áhuga á dragi hafi
svið til að koma fram á og
senu til að taka þátt í.
eða kynvitundar. Öll frestunartímabil þurfa
að vera innan marka og réttlætanleg.
Þetta á einnig við þegar heilbrigðisyfirvöld
tryggja að:
- Ákvarðanir um tímatakmarkanir séu
teknar á einstaklingsgrundvelli og byggðar
á áhættumati tengdu kynhegðun almennt
en ekki kynhneigð eða kynvitund.
- Kynferðisleg saga þess sem gefur blóð er
meðhöndluð án fordóma.
- Skjöl og gögn séu ekki notuð til að
mismuna körlum sem hafa mök með
körlum eða trans fólki.
Á Íslandi er mjög skýrt bann við því að
karlmaður sem hefur haft mök við annan
karlmann megi gefa blóð. Eins ef einhver
hefur sofið hjá karlmanni sem hefur haft
mök við annan karlmann, þá má sá aðili
heldur ekki gefa blóð. Samtökin ’78 hafa
tekið afstöðu í málinu og aðalfundur
samþykkti ályktun en þar segir m.a.:
Aðalfundur Samtakanna ´78 beinir því
til stjórnvalda, heilbrigðisráðherra og
Blóðbankans að aflétta þeirri hrópandi
mismunun sem felst í því að meina
karlmönnum sem stunda kynlíf með
öðrum karlmönnum, t.a.m. hommum, tví-
og pankynhneigðum körlum, að gefa blóð.
Samkvæmt núgildandi reglum
Blóðbankans má ekki undir neinum
kringumstæðum gefa blóð ef maður er
karlmaður sem hefur haft samfarir við
sama kyn, eða ef rekkjunautur er karlmaður
sem hefur sofið hjá karlmanni. Hér er ekki
á neinn hátt tekið tillit til kynhegðunar
að öðru leyti. Í reglum Blóðbankans
felast því gamalgrónir fordómar þar
sem kynlíf hinsegin karla er flokkað sem
áhættuhegðun algjörlega óháð öðrum
þáttum, t.d. sambandsstöðu.
Í vefkönnun Samtakanna ´78, sem
framkvæmd var haustið 2020, kemur
skýrt í ljós að yfirgnæfandi meirihluti
þeirra 140 einstaklinga sem tóku þátt í
könnuninni telja að hverfa þurfi frá þessum
úreltu reglum sem viðhalda fordómum
gagnvart þeim einstaklingum sem flokkast
undir MSM. Eðlilegast væri að skima alla
blóðgjafa fyrir áhættuhegðun í kynlífi.
Mikill meirihluti svarenda taldi hugmyndir
um að krefja hinsegin karla um ákveðinn
skírlífistíma fyrir blóðgjöf niðurlægjandi.
Lög um hatursglæpi og hatur
Til að uppfylla skilyrði ILGA-Europe þarf að
vera skýrt í lögum að glæpir gegn hinsegin
fólki séu hatursglæpir og að möguleiki sé á
refsiþyngingu vegna þeirra.
Á Íslandi er engin skilgreining á
hatursglæpum og ekkert í lögum sem
fjallar sérstaklega um hatursglæpi. Í
skýrslu ríkislögreglustjóra frá 2008 segir
m.a.: „Lög er fjalla um hatursglæpi geta
verið mismunandi en talið er að hægt sé
að setja þau í þrjá flokka. Í fyrsta lagi má
nefna lög við broti sem þegar eru við lýði,
ef það brot er framið þar sem fórnarlambi
er mismunað fellur brotið undir aðra grein
í lögunum. Þessi aðferð er ekki algeng en
segja má að með breytingum á almennum
hegningarlögum, nr. 19/1940, árið 1973
hafi íslensk stjórnvöld notast við fyrrgreinda
aðferð. Árið 1973 var með lögum nr.
96/1973, um breytingu á almennum
hegningarlögum, bætt inn 233. gr. a sem
tekur sérstaklega á mismunun. Algengasta
aðferð ríkja er að hafa t.a.m. klausu í grein
um líkamsárásir þar sem heimilað er að
þyngja dóm þegar sannað er að fórnarlambi
hafi verið mismunað. Ýmis vandkvæði
fylgja þessari aðferð, m.a. getur verið erfitt
að greina hversu oft dómari hefur ákveðið
að þyngja dóm yfir sakborningi eftir
aðildarríkjum. Þriðja leiðin er að ríki hafi lög
um hatursglæpi en geri engar breytingar á
hegningarlögunum.“
Í almennum hegningarlögum er átta
sinnum minnst á „þyngingu refsingar“
en í þeim tilfellum er ekkert sem
viðkemur hinsegin fólki eða þeim
mismununarbreytum sem unnið er eftir.
Almenn lög er varða hinsegin fólk og
alþjóðlega vernd
Í raun er þessi punktur sá einfaldasti, eina
krafan sem er sett fram af ILGA-Europe
er að í lögum um alþjóðlega vernd,
útlendingalögum í okkar tilfelli, sé minnst
á mismununarbreyturnar kynhneigð,
kynvitund og kyneinkenni og þá í þeim
tilgangi að einstaklingurinn eigi að fá frekari
vernd vegna þeirra.
Á Íslandi er hinsegin fólk ekki á meðal
þeirra hópa sem nefndir eru undir
liðnum „Einstaklingar í sérstaklega
viðkvæmri stöðu“. Þrátt fyrir að finna megi
lögskýringargögn sem tæpa á þessum
breytum þá náðu þær ekki fram að ganga
og enduðu ekki í lögum. Vegna þessa þá
uppfyllir Ísland engin skilyrði fyrir þessa
kröfu.
Eins og hér má lesa þá er nóg eftir í
baráttu hinsegin fólks. Við í Samtökunum
’78 munum aldrei hætta baráttunni.
Þú getur lagt okkur lið með því að
gerast Regnbogavinur eða skrá þig sem
sjálfboðaliða. Ég hvet þig til að skoða
heimasíðuna okkar, en þar er margt
gagnlegt og skemmtilegt.
Höldum áfram, öll sem eitt!
18