Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Page 21
child. Eða þú veist, ég bjó ekki eitthvað
ratchet en það bara er eitthvað ratchet
við Voginn. Ég fór einmitt í Rimahverfið
um daginn og bara PTSD skilurðu!
Af því ég var alveg vandræðaunglingur,
þú veist, mér fannst ég vera æði. Always
with the spotlight on me!
Hvernig hefur ferill þinn þróast?
Það var bara dálítið fyndið, ég átti ekkert
að vera í Æði en svo beilaði Binni (Glee)
og Patti (Patrekur Jaime) hringdi í mig
og bað mig um að koma og þá voru allir
bara „ohh hann er alveg æði“ þannig að
þeir bættu mér bara meira inn í þættina.
Var það alltaf draumurinn að verða
frægur?
Já klárt, mig langaði aðallega að gera
einhverja list og annaðhvort leika eða
syngja, ég var bara all for it. Ég tók
alltaf þátt í Rímnaflæði og öllum svona
söngvakeppnum og úff, I can't sing sko.
Hvernig vildi það til að þú fórst út í
tónlist?
Eftir að ég sá Nicki Minaj í fyrsta skiptið í
kringum 2009 þá bara úff... þetta er það
sem ég vil gera, ég elska hana. Ég hlusta
ekki á neina aðra tónlist en Nicki.
Nýja lagið þitt náði miklum vinsældum
um leið og það var gefið út, var það
eitthvað sem þú bjóst við?
Ég átti von á að það myndi fá einhverja
smá athygli en ekki svona mikið, svo
bara púff púff og núna eru fjórir mánuðir
síðan ég gaf þetta út og það er geðveikt
skrítið að labba inn í Hagkaup og það eru
allir bara „úff Bassi Maraj“. Ég fer ekki inn í
Hagkaup lengur af því ég er svo hræddur
við goons og það er svo mikið af goons í
Hagkaup.
Hvernig fannst þér að vera beðinn um
að semja lag Hinsegin daga í ár?
Úff, mér fannst ég verða accepted in the
gay community, en ég hef ekki verið on
good terms with the gay community,
hommar á Íslandi hafa verið að beef-a.
Ég er all for everybody en hingað til hafa
hommarnir verið að reyna að rakka okkur
strákana í Æði niður.
Hvernig gekk að semja lagið?
Það var alveg pínu áskorun, líka af því ég
mátti ekki blóta og það er alveg erfitt.
Ég elska að blóta. En það gekk bara vel,
ég var bara í stúdíóinu með Martini
[framleiðandi] og við vorum bara að hafa
gaman. Mig langaði að gera lag sem allir
geta dansað við af því að það er eitthvað
svo gay að dansa.
Um hvað er lagið?
Það er bara um að fólk geti ekki breytt
mér, ég er eins og ég er. Ég er alltaf að
fara að vita að ég er æði, sama hvað
gerist.
Er textinn að einhverju leyti saminn til
þeirra sem eru ungir og að finna sig?
Jú það er alveg svolítið þannig. Ég málaði
mig alveg þegar ég var yngri og þegar ég
var í búðum og þannig þá átti ég það til
að fela löngu neglurnar mínar, af því ég
skammaðist mín alveg lengi fyrir að vera
hommi. Það var ekki fyrr en í fyrra sem
ég hugsaði bara æjj úff fuck it! Af því mér
hefur alltaf fundist ég vera æði, en það
hefur alltaf verið eitthvað svona in the
back of my head.
Hver er innblásturinn á bak við
textann?
Low-key að dissa straight fólk. Ég er
bara: ehh úff krakki, horfðu á mig ég
er fly, hvað ert þú? Þú ert bara eitthvað
basic bitch. Eða fattarðu mig, sérstaklega
straight menn og þá er ég ekki að tala
um alla straight menn, meira svona
fótboltastráka goons, þeir fríka mig út.
Finnst þér mikilvægt að koma
hinseginleika á framfæri með
tónlistinni þinni?
Já og líka þú veist, það er enginn gay
rapper á Íslandi og við erum low-key
að brjóta múra, við Æði strákarnir, við
gerðum fyrsta gay reality TV og ég er
fyrsti gay rapper.
Að lokum?
Ég er æði og ég er alltaf að ljúga að öllum
að ég sé 165 sentimetrar af því að mig
langar að vera pínulítið krútt.
Orðskýringar:
Vogurinn – Grafarvogur
Ratchet – óbeislað og hrátt
PTSD – Áfallastreituröskun
Goons – oft notað um ógnandi aðila
Beef-a – að takast á
Low-key – lúmskt