Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 43
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Felix Bergsson, hann, 54 ára.
Hver er þín fyrsta hinsegin minning?
Ég man að þegar talað var um homma
þegar ég var barn að aldri lækkuðu menn
alltaf róminn og fóru að hvísla. Svo sagði
einhver stundarhátt: „Æ þetta vesalings
fólk.“ Ég held að þetta hafi verið eitt af því
sem varð til þess að maður var lengi að
sætta sig við kynhneigðina. Ég vildi ekki
vera „vesalings fólk“. Svo man ég mjög vel
eftir mömmuleikjum með vinum mínum
þegar ég hef verið 5-6 ára. Ég vildi alltaf vera
mamman og taka á móti pabbanum þegar
hann kom heim úr vinnunni með faðmlögum
og kossum.
Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd?
Ég er mjög hrifinn af baráttufólki eins og
Peter Tatchell, en hann er Ástrali sem hefur
unnið gríðarmikið og óeigingjarnt starf að
mannréttindamálum í Bretlandi og um heim
allan. Annars sæki ég mínar fyrirmyndir fyrst
og fremst í hugrakka vini mína og félaga
um heim allan sem þora að standa upp og
vera þau sem þau eru þrátt fyrir allar þær
hindranir sem verða í vegi, bæði í einkalífi en
eins á opinberum vettvangi.
Hvað gleymdist að segja þér þegar þú
varst ungmenni?
Að njóta þess að vera ungur, njóta þess
að vera frjáls í námi og festa ekki ráð mitt
of snemma, ferðast um heiminn, kynnast
mismunandi menningarheimum og eignast
vini alls staðar. Já og það gleymdist að
segja mér hvað það væri æðislegt að vera
samkynhneigður. Eiginlega forréttindi.
Hvernig myndir þú vilja hafa elliheimilið?
Geggjað skemmtilegt, opið, með góðum
mat og drykk (kampavíni), skemmtilegum
hinsegin vinum og almennri gleði. Helst
myndi ég vilja að Jón Þór Þorleifsson og Eva
María og Birna Glimmer yrðu þar líka til að
halda partýinu gangandi.
Hvernig viltu taka þátt í hinsegin
samfélaginu?
Ég vil fyrst og fremst vera til staðar til
stuðnings góðum málum. Ég vil halda áfram
að segja söguna okkar til að tryggja að hún
gleymist ekki. Þannig getum við best haldið
áfram veginn til mikilvægrar framtíðar þar
sem fjölbreytileikinn nýtur skilnings og
kemur öllum í heiminum til góða.
GLÆNÝ
HÝRYRÐI!
Texti: Bjarndís Helga Tómasdóttir, hún, 39 ára
Árið 2020 blésu Samtökin ´78, í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar, til
hýryrðakeppni. Markmiðið var að eignast fleiri orð til þess að við getum öll tjáð
okkur um veruleika okkar á íslensku. Sérstaklega var óskað eftir tillögum að
kynhlutlausum orðum í stað mágkona/mágur, strákur/stelpa og ekkja/ekkill.
Í dómnefnd Hýryrða 2020 sátu Alda Villiljós, Ágústa Þorbergsdóttir, Eiríkur
Rögnvaldsson, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Valgerður Hirst Baldurs
og Þorbjörg Þorvaldsdóttir. Hér má sjá þau orð sem urðu fyrir valinu ásamt
rökstuðningi dómnefndar.
Kvár (sbr. kona, karl)
Dómnefnd var sammála um að orðið kvár væri heppilegast sem ókyngreint
nafnorð um fullvaxta manneskju. Orðið hefur þegar hlotið nokkra útbreiðslu
meðal hinsegin fólks, en er þó ekki nema nokkurra mánaða gamalt. Orðasmiður er
Hrafnsunna Celeste Ross.
Stálp (sbr. stelpa, strákur)
Orðið stálp er heppilegt að því leyti að það tengist lýsingarorðinu stálpaður og
hljómar því kunnuglega ásamt því að byrja á st- líkt og bæði strákur og stelpa. Auk
þess hefur orðið -á- líkt og strákur, og -lp- líkt og stelpa. Dómnefnd var sammála
um að gagnsæi þessa orðs gæti orðið til þess að það næði útbreiðslu auðveldlega.
Orðasmiður er Inga Auðbjörg Straumland.
Mágkvár (sbr. mágkona, mágur) og svilkvár (sbr.
svilkona, svili)
Fyrir frændsemisorðin sem hefjast á mág- og svil- fannst dómnefnd liggja beint
við að skeyta aftan við nafnorðinu kvár, en þessi orðmyndun kom einnig fram
í tillögum þátttakenda. Þessi aðferð gæti jafnframt reynst vel fyrir fleiri orð í
framhaldinu, þá sérstaklega þar sem seinni hluti samsetts orðs er -kona og/eða
-maður. Orðasmiður er Regn Sólmundur Evu.
Fengið af síðu Samtakanna ´78
Við fögnum þessum frábæru orðum og aukinni notkun þeirra í daglegu tali; þau
eru alveg örugglega komin til að vera. Það hafa líka heyrst nýjar og skemmtilegar
útgáfur af samsettum orðum, til dæmis þegar Ugla Stefanía var fundarstjóri á
aðalfundi Samtakanna ´78 í mars síðastliðnum. Þar stýrði hún kosningu í gegnum
Zoom þar sem fundargestir voru beðnir um að kjósa með „broskvári“ í stað
„broskalls“.
Er hugsanlegt að þess sé ekki langt að bíða þar til almenningur í landinu velur
kynhlutlaus orð við hvert tækifæri?
43