Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 46
L
jóðasam
keppni
H
insegin daga
Ljóðasamkeppni Hinsegin daga var fyrst haldin árið 2016
á Hýrum húslestrum og verður þetta því í sjötta sinn sem
keppnin er haldin. Markmið hennar var frá upphafi að gefa
hinsegin skáldum öruggt rými til að deila verkum sínum
með öðrum.
Fyrsta árið vissum við ekki hvað við vorum að fara út í.
Keppnin var öll hin glæsilegasta enda dómnefndin skipuð
einvala liði, þeim Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur, Fríðu
Ísberg og Viðari Eggertssyni. En ljóðin bárust og strax var
ljóst að full ástæða væri til þess að endurtaka keppnina að
ári og við það situr enn. Ljóðunum sem berast hefur fjölgað
ár frá ári og í fyrra bárust yfir 60 ljóð. Frá upphafi hafa ljóðin
borist nafnlaust til dómnefndar og ekkert verið gefið upp
um nöfn vinningshafa fyrr en á Hýrum húslestrum.
Heimsfaraldur setti svip sinn á Hinsegin daga árið 2020 eins
og flest annað það ár. Vegna samkomutakmarkana þurfti
að fella niður Hýra húslestra sem hefur frá upphafi verið
vettvangur hinsegin ljóðasamkeppni. Það var síðan í júnílok
á þessu ári að formaður dómnefndar 2020, Viðar Eggertsson,
veitti verðlaunahöfunum viðurkenningu í Máli og menningu
á Laugavegi.
Hér á eftir birtast vinningsljóð ársins 2020 ásamt
rökstuðningi dómnefndar. Við óskum þessum frábæru
skáldum til hamingju með sigurinn.
VERÐLAUNALJÓÐ
HINSEGIN DAGA 2020
1. sæti: Himnesk
Höfundur: Brynhildur Yrsa Valkyrja
Umsögn dómnefndar
Í vinningsljóðinu mætast furður og ást. Manneskja mætir náttúru í flæðarmáli og
stígandi ljóðsins fellur eins og flóð og fjara. Myndmálið er sterkt og myndirnar
stórar, sem dregur fram litbrigði án þess að verða um of. Eitt er allt og allt er eitt í
fullkomnum samruna.
Himnesk
Með fjögur augu og tvöfaldar varir opnar þú
arma þína á móti deginum.
Andlit þitt í móðu og andardrátturinn svo
grunnur að þú virðist vera af öðrum heimi.
Tiplar tánum á fjörugrjótið,
blæðandi hælar og brotin tá.
Þú stendur móti fullu tungli og breiðir út
vængina sem gerðir eru úr rifjagarði þínum.
Rifin hefja þig til flugs, krepptar tærnar
finna þyngdarpunktinn
og blóðið úr hælum þínum blandast freyðandi
sænum.
Logandi kertin á himnafestingunni minna á
kertafleytingu á gárandi tjörn
og þú veist að myrkrið í huga þínum getur á
einu augabragði tendrað loga í lófum
sem þú svo berð upp að vitunum, andar
að þér og tekur á móti eilífu lífi.
Texti: B
jarndís H
elga Tóm
asdóttir, hún, 39 ára