Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 47
2. sæti: Fjallkonan
Höfundur: Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Umsögn dómnefndar
Hér er íslenska fjallkonan hyllt á erótískan og kraftmikinn hátt. Stígandinn magnast í sterkum
náttúrumyndum og sífelldum endurtekningum. Þetta er einmitt ljóðið sem vantaði um
íslensku fjallkonuna.
Fjallkonan
Þú ert falleg
Vil ég vera þú eða vil ég
að þú gangir öll til eins og jörðin undir okkur
Vil ég vera þú eða vil ég
að vatn flæði niður hlíðarnar
kvíslist yfir sanda
og endi
uppí mér
á endanum
Vil ég vera þú eða vil ég
að þú sért sleip eins og steinarnir í flæðarmálinu
Vil ég vera þú eða vil ég
vera aldan sem skolast yfir þig, á þig
yfir en samt undir þig
bleyti þig
Ég fletti upp um þig
3. sæti: Flosi játar
Höfundur: Anton Helgi Jónsson
Umsögn dómnefndar
Endurvinnsla á sagnaarfi hefur oftsinnis skilað frjóum skáldskap. Hér er dreginn fram
undirtexti Njálssögu á myndríkan og skemmtilegan hátt. Karlmennskuhugmyndir fyrri tíma
mæta nútímanum í bland við vangaveltur ljóðmælandans sjálfs, svo úr verður frumlegur og
fyndinn usli.
Flosi játar
Það er satt, sem sagt var. Við hittumst reglulega Svínafellsás og ég.
Ég var vissulega karlmenni
en varla nógu mikið hraustmenni gat ekki látist
vera brúður
nema níundu hverja nótt.
Allt leyfðist í bræðralagsþögninni upphátt réði samt öllu um sæmd mína hvort ég
hitti ásinn
klæddur slæðum brúðar
eða hertygjum brúðguma.
Ég var karlmenni og óttaðist ekkert
að fráteknum slæðunum
þeirra vegna
stytti ég gjarnan líftíma meintrar hetju.
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Hólmar Hólm, hann, 30 ára.
Hver er þín fyrsta hinsegin
minning?
Þegar Dana International
sigraði Eurovision – ég
var ekki nema 7 ára en ég
vissi að það væri líklega
skynsamlegast að halda því
fyrir mig hversu mjög mig
langaði að vera eins töff og
hún.
Hver er þín helsta hinsegin
fyrirmynd?
Hver sem þarf að lifa í felum
en finnur þó styrkinn til þess
að takast á við heiminn dag
hvern.
Hvernig viltu taka þátt í
hinsegin samfélaginu?
Hinseginleikinn fylgir
mér hvert sem ég fer en
ég geri mitt besta til að
tala fyrir auknum sýni- og
fjölbreytileika á öllum
vígstöðvum, bæði í lífi og
starfi.
47