Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 48

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 48
ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn, aldur? Árni Grétar Jóhannsson, hann, 38 ára. Hver er þín fyrsta hinsegin minning? Sem ungur strákur var ég ægilega skotinn í öllum Miami Vice sundfatamódelunum í Freemans príslistanum sem amma mín var dyggur áskrifandi að. Skildi samt alls ekkert í því hvað var svona djúsí, hélt bara að ég hefði svona ægilega góðan smekk fyrir sundskýlum. Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd? Svo margar! En að öllum forverum okkar í baráttunni ólöstuðum held ég að Þorvaldur Kristins sé mitt „idol“. Hann reyndist mér svo vel. Óþreytandi brunnur visku þegar ég vann sem framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78, svaraði alltaf í símann þegar mig rak í rogastans. Læs á þróun senunnar. Svo vel máli farinn að unun er að hlusta á og hafði óendanlega þolinmæði fyrir spjalli um öll þau verkefni sem mættu mér óhörðnuðum í starfinu. Legend í lifanda lífi. Hvað gleymdist að segja þér þegar þú varst ungmenni? Að þú átt þína líffræðilegu fjölskyldu þegar þú fæðist. Þegar þú kemur út úr skápnum eignastu aðra bónus-fjölskyldu sem er þín hinsegin fjölskylda. Allt í einu er maður ríkari en lífið sjálft, hommar og hækjur, lesbíur og sjálf hinsegin flóran býður mann velkominn í fangið og maður á hauk í hverju horni. Ómetanlegt. Hvernig myndir þú vilja hafa elliheimilið? Í flestum mötuneytum eru Nýmjólkur- beljuvélar. Ég myndi vilja hafa hvítvínsbeljur í staðinn og nóg af hressu liði úr allri flórunni, hinsegin fólk og bandafólk að jöfnu. Stolt alla daga og rýmið býður upp á frelsi einstaklingsins til að vera hán sjálft alla daga! Hvernig viltu taka þátt í hinsegin samfélaginu? Ég reyni að gera það alla daga, ekki bara með því að vera sýnilegur í minni tilveru heldur líka með því að rækta hommann í mér, skapa vettvang fyrir allskonar hinsegin og líka gefa af tíma mínum til að Reykjavík Pride geti verið sem skemmtilegast! Allir í sjálfboðastörf. Kaupfélag Aðgengismál Hinsegin dagar gæta þess í hvívetna að þeir einstaklingar sem taka þátt í hátíðinni hafi góðan og greiðan aðgang að öllum viðburðum. Þess er gætt að húsnæði þar sem viðburðir fara fram hafi gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða og sérstakur aðgengispallur verður til staðar á útihátíðinni í Hljómskálagarðinum. Þar að auki verða Opnunarhátíð Hinsegin daga, Hýrir húslestrar, Útihátíð í Hljómskálagarði og flestir fræðsluviðburðir hátíðarinnar táknmálstúlkaðir. Ítarlegar upplýsingar um aðgengismál á hátíðinni er að finna á heimasíðu Hinsegin daga. Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi er sérstakur styrktaraðili aðgengismála á Hinsegin dögum í Reykjavík. Kaupfélag Hinsegin daga og upplýsingamiðstöð Pride Store and Service Center Forsala miða er út 3. ágúst. Kaupfélagið er í Aðalstræti 2, jarðhæð, við Ingólfstorg. Presale price tickets available through August 3rd. The Pride Store is located at Aðalstræti 2, ground floor, by Ingólfstorg square. Afgreiðslutími: þriðjudaginn 3. ágúst 11:00 – 18:00 miðvikudaginn 4. ágúst 11:00 – 18:00 fimmtudaginn 5. ágúst 11:00 – 18:00 föstudaginn 6. ágúst 11:00 – 18:00 laugardaginn 7. ágúst 11:00 – 15:00 Opening hours: Tuesday August 3rd 11 a.m. – 6 p.m. Wednesday August 4th 11 a.m. – 6 p.m. Thursday August 5th 11 a.m. – 6 p.m. Friday August 6th 11 a.m. – 6 p.m. Saturday August 7th 11 a.m. – 3 p.m.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.