Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 58

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 58
Að eldast hinsegin – vangaveltur tveggja hjúkrunarfræðinga Fyrir nokkrum vikum var haft samband við okkur af stjórn Hinsegin daga þar sem við erum hjúkrunarfræðingar og höfum reynslu af því að vinna með öldruðum, til að ræða málefni eldri hinsegin einstaklinga. Úr varð að við munum stýra viðburði á Hinsegin dögum sem mun bera yfirskriftina „Að eldast hinsegin“ og við hvetjum sem flest til að mæta – enda eldumst við vonandi flest. Eldri borgarar eru þau sem náð hafa 67 ára aldri en meðalaldur hefur hækkað umtalsvert og er nú yfir 80 ár. Við erum því gömul lengur en nokkru sinni áður og því fylgir aukin þörf fyrir ýmiss konar heilbrigðisþjónustu – og skemmtun! Við fórum á stúfana og leituðum bæði eftir rannsóknum og sóttum í reynslu annarra í öldrunarþjónustu. Margar rannsóknir hafa verið gerðar um þarfir aldraðra bæði hér á landi og erlendis, en að okkur vitandi hafa aðeins verið gerðar erlendar rannsóknir sem taka mið af þörfum hinsegin aldraðra en engar íslenskar. Þessar rannsóknir sýndu meðal annars að aldraðir hinsegin einstaklingar eru hræddir við að nýta sér heilbrigðisþjónustu af ótta við fordóma frá þeim sem þeir leita til t.a.m. lækna og heimahjúkrunar. Þessar rannsóknir komu líka inn á að sú kynslóð LGBTQ+ sem er nú að komast á aldur á síður börn en gagnkynhneigðir jafnaldrar þeirra og er líklegri til að hafa misst tengsl við fjölskyldur sínar. Einnig eiga þau gjarnan flókna áfallasögu sem er mjög ólíkt þeim sem ekki eru hinsegin en á sama aldri. Erlendar rannsóknir sýna að aldraðir hinsegin einstaklingar óttast að þurfa að fara aftur „inn í skápinn“ þegar þeir nýta sér úrræði eins og heimahjúkrun eða flytji á hjúkrunarheimili vegna hræðslu við fordóma og útskúfun. Víða erlendis eru til hjúkrunarrými eða búsetuúrræði sem eru sérstaklega hugsuð fyrir hinsegin fólk þar sem þau geta lifað í ellinni, laus við ótta. Okkur langaði til að heyra hver reynsla þeirra sem unnið hafa á hjúkrunarheimilum hér á landi væri og bera saman við þá reynslu sem við höfum af okkar starfi innan heilbrigðiskerfisins síðustu 15-20 ár. Við sendum því nokkrar spurningar á hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og almenna starfsmenn sem allir áttu það sameiginlegt að vinna eða hafa unnið á hjúkrunarheimilum og voru svörin vægast sagt mjög áhugaverð. Meirihlutinn taldi sig aldrei hafa hjúkrað hinsegin einstaklingi en viðurkenndi að hafa grunað að nokkrir íbúar hafi verið hinsegin án þess að það hafi verið rætt. Allir voru sammála um að hinsegin umræðan væri meiri og á öllum hjúkrunarheimilunum var hinsegin starfsfólk. Innan nokkurra hjúkrunarheimila er hefð að flagga regnbogafánanum á Reykjavík Pride og ber það trúlega merki um opinn hug stjórnenda. Nokkrir töluðu þó um að enn bæri á fordómum hjá einstaka íbúum heimilanna. Það sem einnig er áhugavert er að á síðustu 12 árum hafa aðeins fimm umsóknir borist til Færni- og heilsumatsnefndar þar sem tekið er fram að um hinsegin einstakling sé að ræða. Hver eru næstu skref? Það er verulega mikilvægt að þessi umræða eigi sér stað og þarfir hinsegin fólks á Íslandi séu skoðaðar sérstaklega. Það þarf að skoða hvort heimahjúkrun þessa hóps þurfi að einhverju leyti að vera frábrugðin heimahjúkrun annarra og hvernig þá. Það er líka þörf á því að skoða hvort ótti hinsegin fólks við framkomu starfsfólks sé sambærilegur því sem sjá má í erlendum rannsóknum. En þá vakna ýmsar spurningar. Er raunhæft að vera með sér hjúkrunarheimili bara fyrir LGBTQ+ einstaklinga? Hvar ætti það hjúkrunarheimili að vera? Hver væru inntökuskilyrðin? Væri nóg að hjúkrunarheimili myndu „gefa það út“ að vera LGBTQ+ friendly? Hverjar eru þarfir þessa hóps? Þann 20. ágúst næstkomandi verður efnt til heilbrigðisþings þar sem málefni aldraðra eru til umræðu. Einnig er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda stefnumörkun í öldrunarþjónustu og er það opið til 1. september. Það væri ósk okkar að hægt verði að nota þær niðurstöður sem fást af umræðufundinum „Að eldast hinsegin“ til að senda inn ábendingar og þannig hafa áhrif. Sjáumst þar! Sandra Ósk Eysteinsdóttir, hún, 42 ára Selma Kristín Erlendsdóttir, hún, 44 ára 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.