Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Side 60
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Bára Halldórsdóttir, hún/hei þú
þarna, 4-5 ára.
Hver er þín fyrsta hinsegin
minning?
Man það ekki skýrt en ég yrði
ekki hissa ef Sigga Beinteins
hefði komið inn í þá mynd.
Hvað gleymdist að segja þér
þegar þú varst ungmenni?
Að það er engin skylda að vera
eins og allir hinir. Sérkenni
hvers og eins er það sem gerir
heiminn áhugaverðan. Leitaðu
uppi þá sem skilja þig og leyfðu
orðum þeirra að hafa meira vægi
en hinna. Og tvíkynhneigð er
ekki tímabil, þú ert alveg eins
hinsegin og hinir í samfélaginu.
Hvernig myndir þú vilja hafa
elliheimilið?
Fullt af litlum litríkum húsum
í hlýjum móa. Heitir pottar og
nuddarar á hverju strái :)
Hvernig viltu taka þátt í
hinsegin samfélaginu?
Taka vel á móti nýja fólkinu og
láta það upplifa sig velkomið.
Draumastaðan væri að vera
einhvers konar hinsegin skrýtna
hlýja manneskjan sem alltaf
væri hægt að leita til. Mig
vantaði svoleiðis og ráðgjafarnir
núna eru æði, en ég gæti verið
einhvers konar „free hugs“
viðbót.
Ef ég fengi heilsuna aftur
myndi ég gerast „bio queen“ og
gleyma mér í núinu dansandi í
vindinum.
Ég vil aðallega styðja þá sem
þurfa það mest og njóta
samveru og menningu með
hinum. Gera gagn ef þarf en
annars hafa gaman af þessu
stutta lífi.
HINSEGIN DAGAR
REYKJAVIK PRIDE
Eftirtaldir ráðherrar styðja
Hinsegin daga:
Katrín Jakobsdóttir,
Forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson,
Fjármála- og efnahagsráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson,
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Svandís Svavarsdóttir,
Heilbrigðisráðherra
Lilja Alfreðsdóttir,
Mennta- og menningarmálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason,
Félags- og barnamálaráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
Umhverfis- og auðlindaráðherra
Hýrar þakkir fyrir
stuðninginn!
60