Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 67
sími 551-2344
tapas.is
Spánn
er handan
við hornið
SJÁUMST Á TAPASBARNUM
gleðilega hátíð!
Krónprinsessa Dana, hin ástralska Mary, er verndari
Copenhagen 2021 og um leið fyrsti fulltrúi konungsfjölskyldu
sem gegnir slíku hlutverki á svo stórum LGBTQ+ viðburði.
World Pride 2023 verður haldið í Sidney í Ástralíu, borginni þar
sem Mary kynntist Friðriki krónprinsi árið 2000, þegar Ástralir
héldu Ólympíuleikana.
EuroGames 2021 verður í Kaupmannahöfn 18.-20. ágúst. Þar
keppir hinsegin fólk í 22 íþróttagreinum. Keppt verður bæði í
Kaupmannahöfn og Malmö. Búist er við að um 4.000 manns
taki þátt.
Dagana áður en EuroGames 2021 eru haldnir verður sérstök
ráðstefna fyrir fólk sem stýrir íþróttafélögum í Evrópu eða
starfar fyrir þau, t.d. við þjálfun. Ráðstefnunni er ætlað að styðja
sérstaklega við starfsemi hinsegin íþróttafélaga, en jafnframt
stuðla að aukinni þekkingu á hinsegin málefnum innan íþrótta
almennt.
Ásta Kristín Benediktsdóttir, doktor í bókmenntafræði
og fyrrum göngustjóri Gleðigöngunnar, flytur
fyrirlesturinn Copenhagen: The Gay Capital of Iceland?
í menningarhúsi Íslands, Færeyja og Grænlands á
Norðurbryggju (Nordatlantens Brygge) fimmtudaginn
19. ágúst. Ásta Kristín hefur unnið að rannsóknum á
hinsegin bókmenntum og sögu. Í fyrirlestrinum beinir
hún sjónum sérstaklega að öllum þeim sem flúðu
fordóma, réttindaleysi og fásinnið á Íslandi á síðustu öld,
en mörg þeirra settust að í Kaupmannahöfn.
Íslenska kvikmyndin Hjartasteinn verður sýnd í
menningarhúsi Íslands, Grænlands og Færeyja á
Norðurbryggju miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20. Myndin
gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi og fjallar um sterka
vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref
inn í unglingsárin og uppgötva ástina.
Ukulellurnar spila við ýmis tækifæri á Copenhagen 2021.
Fyrir utan að spila fyrir krónprinsessu og ýmsa gesti í
tveimur móttökum á vegum borgarinnar og InterPride
spila þær undir berum himni á Fluid Festival á Gammel
Strand, fallegu torgi við síki í miðri Kaupmannahöfn.
Þar verður níu daga hátíð fyrir konur og kynsegin
einstaklinga þar sem verður spjallað og rökrætt, talað um
pólitík og baráttu og flutt ljóð, en þegar líður á daginn
stígur tónlistarfólk á svið. Ukulellur troða upp síðdegis á
laugardeginum. Þessi hátíð er hugsuð fyrir konur, kvár og
öll þau sem skilgreina sig utan kynjatvíhyggjunnar, hún
leitast við að fagna fjölbreytileikanum hvað kynvitund
varðar og skorar á hólm hinn hefðbundna skilning
samfélagsins á kyntjáningu. Með áherslu á breytileika
kyntjáningar, kynvitundar og kynhneigðar býður Fluid
Festival upp á inclusive rými fyrir þau sem skilgreina kyn
sitt kvenkyn, kynsegin eða binda sig ekki við neitt kyn.
Stjórn Hinsegin daga mun funda með kollegum sínum
á Norðurlöndunum og treysta samstarfið, en Hinsegin
dagar studdu Kaupmannahöfn og Malmö í umsókn sinni
um að halda World Pride. Hinsegin dagar leggja áherslu
á að fylgjast vel með stöðu mála hjá öðrum þjóðum og
ætla að viðhalda góðu sambandi við okkar nánustu.
Saman erum við sterkari.