Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Qupperneq 74
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur?
Alda Karen Hjaltalín, hún, 27 ára.
Hver er þín fyrsta hinsegin minning?
Þegar ég sá Natalie Portman leika Padmé
í SW: Episode 3. Það var svona „ókei ég vil
ekki vera hún, ég vil kyssa hana“ móment
þar sem ég áttaði mig á því að ég laðaðist
einungis að konum. En kom samt ekki út úr
skápnum fyrr en 10 árum seinna lol. Svo er
sagt að hinsegin konur geri hlutina hratt? Ég
er allavega ekki ein af þeim hahaha.
Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd?
Megan Rapinoe og Hannah Gadsby eru
í miklu uppáhaldi akkúrat núna sem eru
lifandi og svo Virginia Woolf og Eleanor
Roosevelt sem eru ekki á lífi í dag.
Draumurinn væri að bjóða öllum fjórum plús
kannski Frida Kahlo í eitt stórt matarboð. Ég
tengi svo mikið við þær allar.
Hvað gleymdist að segja þér þegar þú
varst ungmenni?
Vá svo mikið. Svona burtséð frá því hvernig
maður setur mörk, kynjaskalinn og að læra
hvernig maður vill vera elskaður og hvernig
kynlíf virkar á milli tveggja kvenna (sem var
bara alveg sleppt þegar ég var í kynfræðslu),
þá held ég að það hefði verið ótrúlega gott
að vita af svona innbyggðum fordómum
þegar maður er ungmenni. Að vita að maður
er með fordóma gagnvart því hver maður
er, og þess vegna getur maður ekki leyft sér
að upplifa allt sem maður er. Lífið breyttist
gjörsamlega hjá mér þegar ég fattaði litlu
fordómana sem ég var með gagnvart því
hver ég er.
Hvernig myndir þú vilja hafa elliheimilið?
Fullt af skemmtilegum konum og nóg af
bingó, rommí og scrabble.
Hvernig viltu taka þátt í hinsegin
samfélaginu?
Með því að vera alltaf ég sjálf og sýna
fordæmi í öllu sem ég geri. Hvort sem það
er að ráða transfólk, standa með lgbtqia+ í
samræðum við fjölskyldumeðlimi sem vita
ekki betur, mæta á hinsegin viðburði og
styðja allt hinsegin samfélagið við minnsta
tilefni. Því margar litlar samræður, baráttur
og breytingar geta gert mikið í því að ryðja
leiðina fyrir alls konar hinsegin fólk.
Við styðjum réttindabaráttu hinsegin fólks
ÁTVR,
Vörður,
Garðabær