Morgunblaðið - 02.09.2021, Page 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar í góðan mat
og notalegt andrúmsloft
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–22:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
Nýttu ferðagjöfina
hjá okkur
Skeifan 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
URBANIA
KERTAHÚS
Verð frá 3.590,-
TÖKUM VEL
Á MÓTI
HAUSTINU
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við í Fjarðabyggð höfum reynt
ýmsar útfærslur á akstri. Það hefur
verið keyrt á íþróttaæfingar og
keyrt í framhaldsskólann en við höf-
um ekki náð þessu saman. Nú er
stefnan að búa til samræmt kerfi inn
í framtíðina,“ segir Jón Björn Há-
konarson, bæjarstjóri í Fjarða-
byggð.
Akstur hófst í nýju kerfi almenn-
ingssamgangna í Fjarðabyggð í
gær. Nýju kerfi er ætlað að koma til
móts við þarfir íbúa sem sækja þurfa
þjónustu þvert á sveitarfélagið.
Keyrt er á tveimur leiðum. Annars
vegar leið 1 sem tengir saman svæð-
ið frá Norðfirði til Fáskrúðsfjarðar.
Sú leið verður ekin á föstum tímum
en vagnar verða misstórir eftir álagi
hverju sinni. Hins vegar er svo leið 2
sem er á milli Breiðdalsvíkur og Fá-
skrúðsfjarðar en sú leið verður ekin
eftir pöntunum íbúa.
Það er fyrirtækið ÍS – Travel á
Reyðarfirði sem sér um aksturinn
en gengið var til samninga við það á
grundvelli verðfyrirspurnar.
Jón Björn segir í samtali við
Morgunblaðið að hann skynji al-
menna ánægju með þessa sam-
göngubót. „Við viljum koma festu og
reglu á þennan akstur svo fólk geti
gengið að ferðunum vísum. Þá mun
notkunin smám saman aukast, sem
og traust og trú á þennan valkost.“
Ókeypis er í strætisvagna Fjarða-
byggðar og vonast skipuleggjendur
til að ferðirnar nýtist sem flestum. Á
leið 1 eru að morgni farnar tvær
ferðir frá Neskaupstað til Fáskrúðs-
fjarðar og tvær ferðir frá Fáskrúðs-
firði til Neskaupstaðar. Eftir hádeg-
ið eru síðan fjórar ferðir frá
Neskaupstað til Fáskrúðsfjarðar og
fjórar ferðir frá Fáskrúðsfirði til
Neskaupstaðar. Á leið 2 um suður-
hluta sveitarfélagsins, sem er ekin
eftir pöntunum, eru farnar þrjár
ferðir frá Breiðdalsvík til Fáskrúðs-
fjarðar og þrjár ferðir frá Fáskrúðs-
firði til Breiðdalsvíkur. Aðeins er ek-
ið á virkum dögum.
Áskoranir fyrir íþróttafélög
„Við munum meta hversu þörfin
er mikil og haga stærð bílanna eftir
því. Það verða auðvitað áskoranir
fyrir til dæmis íþróttafélög að skipu-
leggja starf sitt í kringum ferðirnar.
En heilt yfir vonumst við til að akst-
urinn hjálpi íbúum að stunda at-
vinnu, félags- og menningarlíf þvert
á byggðakjarna,“ segir Jón Björn.
Nýtt strætókerfi í Fjarðabyggð
Ljósmynd/Þórður V. Guðmundsson
Strætó Akstur hófst í gær í nýju strætókerfi í Fjarðabyggð. Hér má sjá far-
þega stíga um borð á Reyðarfirði síðdegis. Aðeins er ekið á virkum dögum.
- Hjálpi íbúum að sækja þjónustu þvert á sveitarfélagið - Þjónustan er ókeypis
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Lón Landsvirkjunar á hálendinu
hafa verið að fyllast eitt af öðru.
Öll hafa þau fyllst utan Þórisvatn,
sem sér virkjunum á Þjórsársvæð-
inu fyrir vetrarforða. Þar er
vatnsstaðan með því lægsta sem
þekkst hefur en vonir standa til
að það hafi ekki áhrif á afhend-
ingaröryggi raforku í vetur.
Í hlýindunum í júlí og ágúst
hefur innrennsli í lón verið um-
fram væntingar, að sögn Ragn-
hildar Sverrisdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Landsvirkjunar.
Þrjú af fjórum helstu miðl-
unarlónum Landsvirkjunar eru nú
full, Hágöngulón fylltist í lok júlí,
Blöndulón 21. ágúst og Hálslón
23. ágúst. Þegar Hálslón Kára-
hnjúkavirkjunar fylltist steyptist
jökulvatnið 90-100 metra niður í
Hafrahvammagljúfur og við það
myndast foss sem kallaður hefur
verið Hverfandi. Fossinn er svo
aflmikill að jafna má við Detti-
foss.
Talsvert vantar upp á fyllingu
Þórisvatns og þrátt fyrir að hraði
fyllingar lónsins hafi verið um-
fram væntingar er samt nokkuð
ljóst að lónið fyllist ekki í ár, seg-
ir Ragnhildur. Vonir standa til að
það nái 576 metra hæð yfir sjáv-
armáli, sem samsvarar um 1.170
Gl vatnsforða í Þórisvatni. Ef það
gerist er miðlunarforði Þjórs-
ársvæðis í byrjun vetrar um 1.500
Gl eða 85% fylling sem er talið
viðunandi. Sú staða kallar ekki á
skömmtun rafmagns, nema aðrar
ófyrirsjáanlegar aðstæður komi
til að mati sérfræðinga Lands-
virkjunar.
Staða heildarmiðlunarforða nú,
1. september, er tæp 92% fylling.
Ef Þórisvatn nær 576 metrum í
haust og önnur miðlunarlón full í
upphafi vetrar þá verður staða
miðlunarforða um 95% fylling.
Öll miðlunarlón full
nema Þórisvatn
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hverfandi Tignarlegt þegar fossinn
steypist í Hafrahvammagljúfur.
Dr. Ragnhildur
Helgadóttir hef-
ur verið ráðin
rektor Háskólans
í Reykjavík, en
hún hefur verið
sviðsforseti sam-
félagssviðs og
prófessor við
lagadeild skól-
ans. Ragnhildur
tekur við stöð-
unni af dr. Ara Kristni Jónssyni,
sem gegnt hefur stöðunni und-
anfarin ellefu ár.
Í tilkynningu frá HR kemur fram
að Ragnhildur muni leggja áherslu
á að tryggja að starfsemi skólans
verði sem eðlilegust að nýju, að
lögð verði meiri áhersla á al-
þjóðatengsl í námi og rannsóknum
og á tengsl við samfélagið utan há-
skólans og nýsköpun.
Ragnhildur er fædd 1972. Hún
lauk doktorsprófi frá Háskólanum í
Virginíu 2004, LL.M. gráðu frá
sama skóla 1999 og embættisprófi í
lögfræði frá Háskóla Íslands 1997.
Ragnhildur
tekur við HR
- Eðlilegt skólastarf
og meiri alþjóðatengsl
Ragnhildur
Helgadóttir