Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, for-
maður Viðreisnar, segist þakklát fyr-
ir þann stuðning og meðbyr sem birt-
ist í skoðanakönnunum, en vill ekki
fagna of snemma. „Við sem höfum
verið í íþróttum vitum að leikurinn er
ekki búinn fyrr en hann er flautaður
af. Tíu dagar eru langur tími í pólitík
og margt sem getur gerst. En við
finnum að fólk er móttækilegra fyrir
okkar skilaboðum.“ Hún segist heyra
kvartanir um óvissu vegna geng-
ismála og vaxtaþróunar, sem eigi
bæði við um fyrirtæki og fjölskyldur.
Biðlistavæðing á kjörtímabilinu
„Svo er það heilbrigðiskerfið. Það
stendur upp úr öllum um allt land,
það er þessi biðlistavæðing sem ríkis-
stjórnin hefur staðið fyrir vegna
kredduhugsunar í heilbrigðismála-
ráðuneytinu. Það er verið að taka
pólitískar ákvarðanir sem þvæla kerf-
ið.
Við erum ekki að kalla eftir einka-
væðingu, við erum einfaldlega að
segja að við viljum sterkt opinbert
kerfi samhliða einkarekstri, blandað
kerfi eins og er á Norðurlöndunum.
Það þýðir að við notum kraftana sem
koma úr einkaframtakinu til þess að
ýta undir þjónustu og framleiðni í
heilbrigðiskerfinu.“
Nú var Viðreisn stofnuð utan um
Evrópumálin á sínum tíma og þið er-
uð u.þ.b. eini flokkurinn sem er að
minnast á þau …
„Þakka þér fyrir að benda á það!“
Þokið þið þeim ein?
„Ef við tölum ekki um það, þá gerir
það enginn. Við erum ekki að því bara
til þess að fara inn í Evrópusam-
bandið samningsins vegna. Við teljum
að lífskjörin muni batna og styrkjast,
efnahagslegur stöðugleiki aukast og
svo framvegis. En ef og þegar við
náum samningum og þeir eru ekki
góðir, þá verður Viðreisn fyrsti flokk-
urinn til þess að leggjast gegn þeim.
Ég fæ þessa spurningu oft, af
hverju eruð þið að tala um það sem
enginn er að hugsa. Ef við setjum mál
aðeins á dagskrá út frá því sem skoð-
anakannanir segja – það eru ekki
þannig stjórnmál sem ég vil vera í.
Það eru vindhanastjórnmál.“
Þú varst á þingi 2009 þegar
aðildarumsóknin var samþykkt, sast
raunar hjá, en þú spurðir þá hvort
þingið ætti bara að vera upp á punt.
Hvað nú?
Þörf á meiri upplýsingu
„Ég geri mér grein fyrir að við
þurfum meiri umræðu, meiri upplýs-
ingu. Við erum að heyra alls konar
rangfærslur um að útlendingar fái
fiskimiðin okkar og orkan verði tekin
– tómt píp, auðvitað – en við þurfum
meiri upplýsingu. Þess vegna höfum
við lagt til að þverpólitísk nefnd taki
við málinu og undirbúi þá atkvæða-
greiðslu, þar sem við spyrjum fólkið
hvað eigi að gera.“
Er það ekki uppgjöf?
„Nei, við erum að halda málinu
gangandi. En við þurfum þá að hlusta
á fólkið og gerum ekkert nema þjóðin
sé búin að tala.
Þetta er risamál og þó að við séum
eindreginn Evrópuflokkur, þá þýðir
ekkert að vaða áfram eins og gert var
2009.“
Ykkur verður tíðrætt um upptöku
evrunnar. Hver má fórnarkostnaður-
inn vera milli efnahagslegs stöð-
ugleika og hagvaxtar?
Sex til tíu ára ferli
„Það er stefna okkar að ganga í
Evrópusambandið og taka upp evru.
Það tekur einfaldlega langan tíma, 6
til 10 ár. Það þarf þjóðaratkvæða-
greiðslu, samningaviðræður og
stjórnarskrárbreytingu til.“
En þið bíðið ekki eftir evrunni?
„Nei, við erum að leita lausna. Það
er fullt af fólki sem er að spyrja um
þessi mál, vill ekki þessar gengis-
sveiflur, vill að verðbólgan sé lág eins
og annars staðar, að lágir vextir séu
ekki tímabundið ástand.“
Má fórna hagvextinum fyrir stöð-
ugleika með nýjum gjaldmiðli?
„Eftir hrunið 2009 var réttilega tal-
að um að efla nýsköpun, en þegar bet-
ur áraði vildi fólk ekki rugga bátnum,
en nú þegar aftur gefur á bátinn, m.a.
vegna heimsfaraldursins, þá förum
við aftur að huga að því hvernig við
getum styrkt fjórðu stoðina. Styrkt
þennan hagvöxt, styrkt alþjóða-
samstarfið og útflutningsgreinarnar
sem byggjast á hugviti, sem byggjast
á nýsköpun, á þjónustu við útlönd.
Það er sama við hvern ég tala í þeim
hópi, þar kalla allir eftir stöðugum
gjaldmiðli.“
Hefði það verið ákjósanlegt í kór-
ónukreppunni undanfarna 18 mánuði,
þar sem ferðaþjónustan þurrkaðist
út, að gjaldmiðillinn hefði ekki hagg-
ast?
„Það er oft sagt um krónuna að það
megi láta hana falla til þess koma í
veg fyrir atvinnuleysi. Samt jókst at-
vinnuleysi meira hér en víða í sam-
bærilegum löndum. Ég hefði viljað
gjaldmiðil sem hefði veitt okkur meiri
fyrirsjáanleika.“
Í dag eru 29 ár síðan George Soros
gerði atlögu að Englandsbanka og
Bretar hrökkluðust úr evrópska
myntsamstarfinu. Þegar sú stóra
þjóð átti ekki séns, eigum við meiri
séns?
„Það hafa menn á undan mér í póli-
tík bent á að fara ætti einhverja svip-
aða leið. Á þeim tíma hefði það ekki
endilega verið skynsamlegt, en þar
sem staða gjaldeyrisvaraforðans er
jafnsterk og raun ber vitni, þá er það
raunhæft.“
En þið talið um gagnkvæmar
gengisvarnir, hvernig á Seðlabanki
Íslands að bjarga gervöllu evrusvæð-
inu? Er það ekki brandari?
„Nei nei. Ég er búin að lesa Morg-
unblaðið mjög lengi og það hefur spáð
falli evrunnar í 20 ár.“
Gagnkvæmar gengisvarnir
Þið talið um „gagnkvæmar geng-
isvarnir“ það hlýtur að hafa einhverja
merkingu hjá ykkur?
„Já já, þess vegna er samnings-
staða okkar með þennan gjaldeyris-
varaforða alveg ágæt til þess að fara í
þetta. Evrópusambandið vill sýna að
það sé ekki þetta bákn og það sé
sveigjanlegt …“
En Evrópusambandið hlær vænt-
anlega að 800 milljarða króna gjald-
eyrisforða í heildarsamhenginu?
„Eigum við þá ekki bara að fá hlát-
urinn? Af hverju ekki að láta á það
reyna? Við erum alltaf búin að semja
við sjálf okkur áður en við förum út.
Hvers konar sjálfstraust er það?
Ríkisstjórnin samþykkti mjög víð-
tækar heimildir um gjaldeyrishöft til
Seðlabankans. Mér finnast það ekki
góð skilaboð, en ríkisstjórnin er að
segja að þau treysta sér ekki til þess
að vera með krónu, nema með gjald-
eyrishöft í bakhöndinni. Fyrir ný-
sköpunarfyrirtæki og fyrir fyrirtæki
almennt, þá eru þetta ekki bestu
skilaboðin til alþjóðlegra fjárfesta.“
Á hvaða gengi verður krónan fest
við evruna?
„Á markaðsgengi.“
Á markaðsgengi dagsins þegar
bindingin á sér stað? Þá verðum við
nú fljótt vogunarsjóðunum að bráð.
Dauð á fyrsta degi.
„Ef þú getur sagt mér það hvað
gengið er eftir ár, þá skal ég svara
þér.“
Það eruð þið, sem eruð að leggja til
gengisbindingu.
„Ég er að segja þér þetta. Ef þú
getur svarað mér því.“
Er það þá stefna ykkar að taka
gengisbindingu upp á genginu sem
verður þegar skrifað verður undir?
„Við skulum bara sjá til með það.“
Það skiptir öllu. Sigmar Guð-
mundsson, frambjóðandi Viðreisnar,
lofaði okkur því hér í þættinum að
þetta yrði gert heyrinkunnugt fyrir
kosningar, af því að það skipti fólk
máli. Þið hljótið að hafa einhverja
hugmynd um á hvaða gengi það skuli
gert?
„Það er ekkert ólíklegt að það verði
einhvers staðar nálægt markaðs-
genginu. En það fer auðvitað allt eftir
samningunum.“
Hagkvæmni og sanngirni
Þorgerður segir ákall um aukið
gagnsæi þegar kemur að sjávar-
útveginum. Það skýrist ekki síst af
því að auðlindagjald sé reiknað út frá
opinberu fiskverði sem sé 30 til 40
prósentum lægra en markaðsverðið.
En er þá ekki einfaldasta lausnin
að rétta af fiskverðið í stað þess að
innkalla veiðiheimildirnar?
„Nei. Að fenginni reynslu, með
fullri virðingu fyrir m.a. eigendum
Morgunblaðsins og öðrum, þá segi
ég, það er betra að markaðurinn ráði
þessu heldur en að það séu stjórn-
málaflokkar sem eru að víla og díla
með þetta. Ég treysti einfaldlega
markaðnum til að gera þetta.“
Bendir hún á að hagnaður útgerð-
arinnar hafi numið um 40 milljörðum
á ári hin síðustu ár sem séu gríðar-
legar fjárhæðir. Það sé jákvætt en að
ákallið sé einnig um „réttlæti og hag-
kvæmni“ í senn.
Bendir hún á að flokkur hennar
vilji að 3-5% aflaheimilda fyrnist á ári
hverju og verði í kjölfarið boðnar upp
á markaði. Er hún sannfærð um að
það muni skila betri afkomu í ríkis-
sjóð en nú er raunin.
Úr fimm milljörðum í níu
„[...] Ef við erum að fá um 4,8 til 5
milljarða í dag þá verði u.þ.b. 9 millj-
arðar króna sem verði hægt að fá
með uppboði. Það er mjög líklegt
miðað við hvernig fiskverð er metið
og hvert gengið er á markaði.“
Ef við værum með kerfið sem þið
boðið nú í ár, þá myndi það skila níu
milljörðum?
„Já, mér finnst það mjög líklegt.
Við erum ekki að koma hérna eins og
aðrir flokkar sem eru að segja að við
ætlum að taka 20 til 30 milljarða og
sjá ekki hagsmunina í því að hafa hér
öflugan sjávarútveg. Sjávarútvegur-
inn er grundvallaratvinnuvegur í ís-
lensku samfélagi. við viljum ekki
kippa stoðunum undan honum. Við
viljum að það sé hagkvæmni og skil-
virkni, að það sé áfram þróun og
rannsóknir sem við höfum séð núna.
En við viljum líka réttlæti.“
Allt að áratugur í aðild að ESB
- Formaður Viðreisnar vill setja upptöku evru í forgang - Skiptigengið verði markaðsgengi við
upptöku - Með markaðsleið í sjávarútvegi væri auðlindagjaldið níu milljarðar í stað fimm nú í ár
Morgunblaðið/Ásdís
Dagmál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er í formannaviðtali í dag. Þar ber Evrópumál og sjávarútvegsmál hæst.
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15