Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
ÞAÐ ER LANDSBANKI
NÝRRA TÍMA
Í Landsbankaappinu getur þú
sinnt fjármálunum á ferðinni,
stofnað reikninga, kröfur, kort
og margt fleira sem sparar
sporin og einfaldar reksturinn.
Einfaldari rekstur
með Landsbanka-
appinu
LANDSBANKINN. IS
Haraldur og Andri
Eigendur HB tækniþjónustu
anlega hækkun á launataxta. Til
dæmis var áætlað í kynningarefni
með samningunum að 2% hagvöxtur
á mann á þessu ári gæti skilað laun-
þegum samtals 32 þúsund króna
launahækkun á mánuði (sjá graf) eða
um 384 þúsund krónum á ári.
Hið opinbera hafi gengið lengra
Launavísitalan hefur hækkað
meira hjá hinu opinbera en hjá einka-
geiranum frá gerð lífskjarasamning-
anna í apríl 2019. Spurður hvað skýri
þetta, í ljósi þeirrar áherslu atvinnu-
lífsins að laun í einkageiranum skuli
leiða launaþróunina, segir Halldór
Benjamín skýringuna þá að hið
opinbera hafi gengið lengra við gerð
kjarasamninga.
„Þau taka í raun grunninn sem lífs-
kjarasamningurinn byggir á og
teygja hann síðan í ranga átt. Og
þetta hefur reyndar verið sagan við
íslenska kjarasamningsgerð allt of
lengi, að sá grunnur sem samið er um
í stóru kjarasamningunum á almenn-
um vinnumarkaði myndar gólf í
kjarasamningum en ætti auðvitað að
mynda ófrávíkjanlegt þak. Hver
þrýstihópurinn á fætur öðrum vill fá
það sem búið er að semja um og síðan
aðeins meira. Og tölurnar tala sínu
máli í þessum efnum. Það er engin
leið að túlka þær með öðrum hætti,“
segir Halldór Benjamín.
Heimild til uppsagnar lífskjara-
samninganna rennur út í lok mánaðar
en þeir gilda út október 2022. Spurður
hvort endurskoðunarákvæði verði
virkjuð segir Halldór Benjamín að
fram fari heildsstætt mat samnings-
aðila. Forsendunefnd SA og ASÍ sé
með málin til skoðunar og hvor aðili
muni taka sína ákvörðun.
Horfa ber til styttri vinnutíma
Anna S. Halldórsdóttir er fagstjóri
launa hjá Hagstofu Íslands.
Spurð hvort lesa megi það úr þróun
launavísitölunnar frá gerð lífskjara-
samninganna að laun hjá hinu opin-
bera hafi hækkað meira en í einka-
geiranum segir Anna Sigríður að
horfa þurfi á málið í víðara samhengi.
„Í lögum um launavísitölu nr. 89/
1989 kemur fram að breytingar á
vinnutíma og samsetningu hans skuli
ekki hafa áhrif á vísitöluna nema um
sé að ræða samningsbundnar breyt-
ingar sem jafna má til launabreyt-
inga. Í kjarasamningum sem gerðir
voru á árunum 2019 og 2020 voru
ákvæði um styttingu vinnutíma sem
hafa áhrif til hækkunar á launavísi-
tölu þar sem verð vinnustundar
hækkar þegar færri vinnustundir eru
að baki launum. Útfærslur styttingar
eru mismunandi, svo sem dagleg
stytting eða styttri vinnudagur einu
sinni í viku, en þær hafa sömu áhrif á
launavísitölu þar sem heildarstytting
er sú sama,“ segir Anna Sigríður og
útskýrir málið frekar:
Fá hlutfallslega meiri hækkun
„Laun eru eitt og tímakaup annað.
Síðasta samningslota fól að mestu í
sér krónutöluhækkanir, bæði á opin-
bera markaðnum og í einkageiranum.
Í þessu samhengi er því vert að hafa í
huga að hækkun þeirra sem hafa
lægri laun verður hlutfallslega meiri
en þeirra sem hærri launin hafa.
Starfsfólk sveitarfélaga var árið 2020
með lægri laun að meðaltali en starfs-
fólk á almennum vinnumarkaði.
Krónutöluhækkun þess hóps hefur
því hlutfallslega meiri áhrif til hækk-
unar á launavísitölu sem byggist á
reglulegu tímakaupi.
Vinnutími hjá starfsmönnum hjá
hinu opinbera hefur að vissu leyti
styst meira [en í einkageiranum] og
þar af leiðandi hefur það enn meiri
áhrif á tímakaupið,“ segir Anna og
bendir á að samningar hjá hinu opin-
bera hafi verið gerðir ári eftir lífs-
kjarasamninginn. Styttingin hafi því
komið síðar til framkvæmda hjá hinu
opinbera. Loks hafi samningar verið
lausir lengur hjá hinu opinbera og
tvær kjarasamningsbundnar hækk-
anir verið framkvæmdar í apríl 2020.
Hagvaxtarauki ekki í myndinni
- Framkvæmdastjóri SA segir hið opinbera hafa teygt kjarasamninga í ranga átt - Áhrif þrýstihópa
- Fagstjóri hjá Hagstofunni segir styttingu vinnutíma hafa áhrif á samanburð milli launþegahópa
*H
ag
vö
xt
u
r
á
m
an
n
er
re
ik
n
að
u
r
se
m
h
ag
vö
xt
u
r
í
p
ró
se
n
tu
m
að
fr
ád
re
g
in
n
if
jö
lg
u
n
íb
ú
a
íp
ró
se
n
tu
m
Sviðsmyndir lífskjarasamnings árið 2021
Taxtahækkun launa og sviðsmyndir um hagvaxtartengdan launaauka
H
ei
m
ild
:S
A
SVIÐSMYND 1
1% hagvöxtur á mann*
SVIÐSMYND 2
2% hagvöxtur á mann*
SVIÐSMYND 3
3% hagvöxtur á mann*
Samningsbundin taxtahækkun Hagvaxtarauki
24.000
3.000
27.000 8.000
32.000
24.000
13.000
37.000
24.000
Hækkun, kr. á mánuði
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Anna Sigríður
Halldórsdóttir
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir með öllu ótímabært að
ræða greiðslu hagvaxtarauka til laun-
þega á næsta ári.
Tilefnið er samtal við Ragnar Þór
Ingólfsson, formann VR, í Morgun-
blaðinu sem taldi ljóst að greiddur
yrði hagvaxtarauki, samkvæmt lífs-
kjarasamningnum, á næsta ári. Hag-
kerfið hafi enda tekið hratt við sér í ár
eftir snarpa niðursveiflu í fyrra.
Halldór Benjamín segir hagtölur
þær sem liggja hagvaxtaraukanum til
grundvallar ekki munu birtast fyrr en
næsta vor. Þ.e.a.s. tölur um hagvöxt-
inn á þessu ári.
Hagspárnar misjafnar
Seðlabankinn spáir í síðustu Pen-
ingamálum 4% hagvexti á næsta ári.
Halldór Benjamín kveðst ekki
svara spurningum í viðtengingar-
hætti þegar hann er spurður hvort
hagvöxtur þessa árs muni standa
undir hagvaxtaraukanum.
„Hagspárnar eru mjög misjafnar
og við höfum séð að fljótt geta skipast
veður í lofti. Ég ætla ekki að gefa mér
hver þróunin verður á svona mæli-
kvarða fyrr en tölurnar liggja fyrir og
tel að þetta séu með öllu ótímabærar
vangaveltur.“
Hagvaxtaraukinn skal reiknaður út
frá hagvexti á mann og felur í sér var-