Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 10

Morgunblaðið - 16.09.2021, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021 ÞAÐ ER LANDSBANKI NÝRRA TÍMA Í Landsbankaappinu getur þú sinnt fjármálunum á ferðinni, stofnað reikninga, kröfur, kort og margt fleira sem sparar sporin og einfaldar reksturinn. Einfaldari rekstur með Landsbanka- appinu LANDSBANKINN. IS Haraldur og Andri Eigendur HB tækniþjónustu anlega hækkun á launataxta. Til dæmis var áætlað í kynningarefni með samningunum að 2% hagvöxtur á mann á þessu ári gæti skilað laun- þegum samtals 32 þúsund króna launahækkun á mánuði (sjá graf) eða um 384 þúsund krónum á ári. Hið opinbera hafi gengið lengra Launavísitalan hefur hækkað meira hjá hinu opinbera en hjá einka- geiranum frá gerð lífskjarasamning- anna í apríl 2019. Spurður hvað skýri þetta, í ljósi þeirrar áherslu atvinnu- lífsins að laun í einkageiranum skuli leiða launaþróunina, segir Halldór Benjamín skýringuna þá að hið opinbera hafi gengið lengra við gerð kjarasamninga. „Þau taka í raun grunninn sem lífs- kjarasamningurinn byggir á og teygja hann síðan í ranga átt. Og þetta hefur reyndar verið sagan við íslenska kjarasamningsgerð allt of lengi, að sá grunnur sem samið er um í stóru kjarasamningunum á almenn- um vinnumarkaði myndar gólf í kjarasamningum en ætti auðvitað að mynda ófrávíkjanlegt þak. Hver þrýstihópurinn á fætur öðrum vill fá það sem búið er að semja um og síðan aðeins meira. Og tölurnar tala sínu máli í þessum efnum. Það er engin leið að túlka þær með öðrum hætti,“ segir Halldór Benjamín. Heimild til uppsagnar lífskjara- samninganna rennur út í lok mánaðar en þeir gilda út október 2022. Spurður hvort endurskoðunarákvæði verði virkjuð segir Halldór Benjamín að fram fari heildsstætt mat samnings- aðila. Forsendunefnd SA og ASÍ sé með málin til skoðunar og hvor aðili muni taka sína ákvörðun. Horfa ber til styttri vinnutíma Anna S. Halldórsdóttir er fagstjóri launa hjá Hagstofu Íslands. Spurð hvort lesa megi það úr þróun launavísitölunnar frá gerð lífskjara- samninganna að laun hjá hinu opin- bera hafi hækkað meira en í einka- geiranum segir Anna Sigríður að horfa þurfi á málið í víðara samhengi. „Í lögum um launavísitölu nr. 89/ 1989 kemur fram að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans skuli ekki hafa áhrif á vísitöluna nema um sé að ræða samningsbundnar breyt- ingar sem jafna má til launabreyt- inga. Í kjarasamningum sem gerðir voru á árunum 2019 og 2020 voru ákvæði um styttingu vinnutíma sem hafa áhrif til hækkunar á launavísi- tölu þar sem verð vinnustundar hækkar þegar færri vinnustundir eru að baki launum. Útfærslur styttingar eru mismunandi, svo sem dagleg stytting eða styttri vinnudagur einu sinni í viku, en þær hafa sömu áhrif á launavísitölu þar sem heildarstytting er sú sama,“ segir Anna Sigríður og útskýrir málið frekar: Fá hlutfallslega meiri hækkun „Laun eru eitt og tímakaup annað. Síðasta samningslota fól að mestu í sér krónutöluhækkanir, bæði á opin- bera markaðnum og í einkageiranum. Í þessu samhengi er því vert að hafa í huga að hækkun þeirra sem hafa lægri laun verður hlutfallslega meiri en þeirra sem hærri launin hafa. Starfsfólk sveitarfélaga var árið 2020 með lægri laun að meðaltali en starfs- fólk á almennum vinnumarkaði. Krónutöluhækkun þess hóps hefur því hlutfallslega meiri áhrif til hækk- unar á launavísitölu sem byggist á reglulegu tímakaupi. Vinnutími hjá starfsmönnum hjá hinu opinbera hefur að vissu leyti styst meira [en í einkageiranum] og þar af leiðandi hefur það enn meiri áhrif á tímakaupið,“ segir Anna og bendir á að samningar hjá hinu opin- bera hafi verið gerðir ári eftir lífs- kjarasamninginn. Styttingin hafi því komið síðar til framkvæmda hjá hinu opinbera. Loks hafi samningar verið lausir lengur hjá hinu opinbera og tvær kjarasamningsbundnar hækk- anir verið framkvæmdar í apríl 2020. Hagvaxtarauki ekki í myndinni - Framkvæmdastjóri SA segir hið opinbera hafa teygt kjarasamninga í ranga átt - Áhrif þrýstihópa - Fagstjóri hjá Hagstofunni segir styttingu vinnutíma hafa áhrif á samanburð milli launþegahópa *H ag vö xt u r á m an n er re ik n að u r se m h ag vö xt u r í p ró se n tu m að fr ád re g in n if jö lg u n íb ú a íp ró se n tu m Sviðsmyndir lífskjarasamnings árið 2021 Taxtahækkun launa og sviðsmyndir um hagvaxtartengdan launaauka H ei m ild :S A SVIÐSMYND 1 1% hagvöxtur á mann* SVIÐSMYND 2 2% hagvöxtur á mann* SVIÐSMYND 3 3% hagvöxtur á mann* Samningsbundin taxtahækkun Hagvaxtarauki 24.000 3.000 27.000 8.000 32.000 24.000 13.000 37.000 24.000 Hækkun, kr. á mánuði Halldór Benjamín Þorbergsson Anna Sigríður Halldórsdóttir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir með öllu ótímabært að ræða greiðslu hagvaxtarauka til laun- þega á næsta ári. Tilefnið er samtal við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, í Morgun- blaðinu sem taldi ljóst að greiddur yrði hagvaxtarauki, samkvæmt lífs- kjarasamningnum, á næsta ári. Hag- kerfið hafi enda tekið hratt við sér í ár eftir snarpa niðursveiflu í fyrra. Halldór Benjamín segir hagtölur þær sem liggja hagvaxtaraukanum til grundvallar ekki munu birtast fyrr en næsta vor. Þ.e.a.s. tölur um hagvöxt- inn á þessu ári. Hagspárnar misjafnar Seðlabankinn spáir í síðustu Pen- ingamálum 4% hagvexti á næsta ári. Halldór Benjamín kveðst ekki svara spurningum í viðtengingar- hætti þegar hann er spurður hvort hagvöxtur þessa árs muni standa undir hagvaxtaraukanum. „Hagspárnar eru mjög misjafnar og við höfum séð að fljótt geta skipast veður í lofti. Ég ætla ekki að gefa mér hver þróunin verður á svona mæli- kvarða fyrr en tölurnar liggja fyrir og tel að þetta séu með öllu ótímabærar vangaveltur.“ Hagvaxtaraukinn skal reiknaður út frá hagvexti á mann og felur í sér var-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.