Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 2

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Snarpur skjálfti skók suðvesturhorn landsins upp úr klukkan 11 fyrir há- degi í gær. Upptök hans voru skammt suðvestur af fjallinu Keili á Reykjanesskaga. Jarðskjálftinn mældist 3,5 að stærð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Hans varð vart víða á suðvesturhorninu, eða allt frá Sand- gerði til Reykjavíkur. Annar, 3,0 að stærð, mældist um klukkan 15 og svo um hálfsex í gærkvöldi mældist einn 2,9 að stærð. Skjálftavirkni hefur tekið sig upp að nýju í kvikuganginum sem liggur suðvestur af Keili og var undanfari jarðeldanna sem upp komu í Geld- ingadölum. „Skjálftavirkni hefur verið óvenjulega lítil meðan á gosinu hefur staðið, svo að þetta er kannski end- urhvarf til fyrra lífs á Reykjanes- skaga,“ sagði Páll Einarsson jarðeðl- isfræðingur í samtali við mbl.is á þriðjudag. „Það eru einhverjar spennubreyt- ingar í gangi, en það er erfitt að segja nákvæmlega til um hvað það er.“ Þegar gosið liggur niðri eins og það gerir núna, er þá ekki mögulegt að kvikan byrji að brjóta sér leið upp annars staðar? „Það er vissulega einn af mögu- leikunum, að það sé breyting á gos- opinu, sem sé breyting á gosinu sjálfu. En það er sennilega líklegra að þetta tákni einhvers konar lægð í gosinu eða jafnvel endi á gosi. Þann- ig að það eru ýmsar sviðsmyndir uppi og of snemmt að segja til um hver þeirra er í gangi.“ sh@mbl.is Jörð skelfur enn á ný - Skjálfti af stærðinni 3,5 reið yfir í gærmorgun Lo ft m yn d ir eh f. Ný skjálftahrina á Reykjanesskaga Keflavík Njarðvík Vogar Grindavík Keilir Kleifarvatn Krýsuvík Fagradals- fjall 3,5 Skjálfti af stærðinni 3,5 mældist 0,8 km suðvestur af Keili kl. 11:05 í gær.Annar skjálfti varð klukkan 15:00, sem var 3,0 að stærð. Karl Gauti Hjalta- son, frambjóðandi Miðflokksins í Suðvest- urkjördæmi, hefur gert þá kröfu við yfirkjörstjórn Norðvest- urkjördæmis að niðurstöður fyrstu talningar úr kjör- dæminu verði látnar standa sem lokatölur í kjör- dæminu. Endurtalning á sunnudeg- inum breytti úthlutun jöfnunarsæta töluvert en framkvæmd hennar hefur verið harðlega gagnrýnd. Karl greindi frá því í gær að hann hefði kært niðurstöður alþingiskosn- inganna til lögreglu en hann datt út af þingi eftir endurtalningu sunnudags- ins. Í bréfi sem Karl sendi yfirkjör- stjórn í Norðvesturkjördæmi, og mbl.is fjallaði um í gær, dregur hann lögmæti endurtalningarinnar sjálfrar í efa. Í bréfinu, sem var einnig sent á landskjörstjórn, segir Karl töluverðan mun hafa verið á upprunalegri taln- ingu og þeirri sem fór fram á sunnu- deginum, sem Karl segir vekja fjöl- margar spurningar. baldurb@mbl.is Fyrsta talningin standi - Telur endurtaln- ingu í NV ólögmæta Karl Gauti Hjaltason ljósi kosningaúrslitanna, en hitt er óljósara, nákvæmlega hvernig það eigi að gerast, með fleiri eða feitari bitum. Fleiri kostir koma til greina Í samtölum sem Morgunblaðið átti við stjórnarþingmenn í gær er athyglisvert að í öllum flokkum fannst fólk, sem taldi aðra stjórnar- myndunarkosti koma til greina, þótt ekki hefði verið látið á þá reyna enn. Þannig var nefnt að í þingflokki sjálfstæðismanna væru sumir lang- þreyttir á samstarfinu við Vinstri græn og vildu frekar ræða við Flokk fólksins. Eins má finna vinstra grænt fólk, sem kysi annað stjórn- armynstur. Fyrst verður þó látið reyna á endurnýjað samstarf. Meðal stjórnarþingmanna er þó ekki aðeins rætt um aðra hlutföll í ríkisstjórninni eða mögulegan mál- efnasamning. Þar er einnig rætt um að breyta verði ýmsu vinnulagi til þess að fyrirbyggja ýmsan vanda, sem upp kom á liðnu kjörtímabili. Þar benda menn fyrst og fremst á að ekki gangi að ríkisstjórn sé að af- greiða frá sér mál, sem eru í bullandi ágreiningi milli þingflokkanna eða jafnvel innan þeirra, og vona hið besta. Hlutverk stjórnarandstöðu. Þá er einnig um það talað í öllum stjórnarflokkum, að tilraunin með að fela stjórnarandstöðu nefndafor- mennsku hafi mistekist. Bent er á að stöku nefndarformaður hafi ekki verið yfir það hafinn að notfæra sér stöðuna í pólitískum æfingum, en að- allega er þó rætt um að það sam- ræmist illa lýðræðislegu hlutverki stjórnarandstöðunnar að vera falið að annast afgreiðslu þingmála, sem flest eru stjórnarmál. Það kann þó að vera snúnara en virðast kann, því þetta fyrirkomulag sneri í raun ekki síður að umbun- arkerfi þingmanna. Skrifstofa Al- þingis er áfram um að stjórnarand- staðan komi að þeim störfum, svo stjórnarmeirihlutinn búi ekki við betri kjör. Stjórnarþingmenn, sem blaðið ræddi við, viðurkenna það sjónarmið, en segja að kjaramál þingsins megi ekki ganga framar stjórnskipan og pólitískri ábyrgð; þau þurfi að leysa með öðrum hætti. Þingflokkar hugsa stjórnarmyndun - Hlutföll og verkaskipting við ríkisstjórnarborðið rædd - Aðrir stjórnarmeirihlutar kæmu til álita SVIÐSLJÓS Andrés Magnússon andres@mbl.is Viðræður formanna stjórnarflokk- anna um endurnýjað stjórnarsam- starf féllu niður í gær, vegna erinda forsætisráðherra norður á Húsavík. Þingmenn og trúnaðarmenn stjórn- arflokkanna felldu hins vegar ekki talið sín á milli um kosti í stjórnar- samstarfi á meðan. Flestir viðurkenna að koma þurfi til móts við óskir framsóknarmanna í Brot úr borgarísjaka var strandað inni á Sigurðarstaðavík á Melrakka- sléttu í gærmorgun. Stór borgarísjaki lónaði þá 2-3 sjómílur norður af Blikalónsey, sem er landfastur tangi. Brot brotnuðu úr borgarísjakanum í brælunni í fyrradag og voru sum þeirra allt að 3-4 metra há, að sögn Krist- jönu Bergsdóttur á Sigurðarstöðum. Tilkynnt var um allstóran jaka á Sléttugrunni á laugardag og rak hann til suðsuðausturs. Þá sást til annars jaka í norðnorðvestri frá sama stað. Á sunnudag sá skip borgarísjaka norð- ur af Skaga og annar var á Hornbankasvæðinu. gudni@mbl.is Ljósmynd/Kristjana Bergsdóttir Borgarísjakinn brotnaði mikið í brælunni Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. A 595 1000 Alicante At h. t 4. október, aðra leið Flugsæti til 32.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.