Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
#9?4+ C :CB=23). 15= <8--+ 2E3 0?+32DA<+0-+ !9-93?=F
%D;6*31)<0+< G 'A<
"E--23). G (B23). G !>00+<
&13=?)7 *;5+<
!4042/5, " 650-53*2)./ '& " 7+/1# $%$%(%( <)3/-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Bændum á Hæli í Húnavatnshreppi
tókst með aðstoð björgunarsveit-
armanna að bjarga öllu því fé sem
þar fennti í kaf í hríðarskotinu sem
gekk yfir norðanvert landið í fyrra-
dag. Á heimatúnum voru hundruð
fjár og um 80-100 kindur fóru ofan í
skurði og stöfluðust þar hver ofan á
aðra. Einnig var nokkuð um að lömb
hrektust að girðingum og væru þar
föst.
„Veðrið var stjörnuvitlaust, en öllu
fé hér á bæ tókst að bjarga,“ segir
Jón Kristófer Sigmarsson, bóndi á
Hæli, í samtali við Morgunblaðið.
Strax í bítið á þriðjudagsmorgun hafi
verið komin snjókoma og stormur,
sem hafi hert eftir því sem leið á dag-
inn. Hríðarveður þetta hafi staðið
þar til síðdegis og þá hafi verið komið
20-30 cm lag af snjó yfir tún.
„Ef lömb fara ofan í skurði stendur
yfirleitt eitt upp úr. Því var fljótlegt
að lesa sig í gegnum þetta og finna
féð. Núna teljum við okkur hér á
Hæli vera búin að leita af okkur allan
grun og heimta allt okkar fé. Dóttir
mín, sem býr á Akureyri, kom reynd-
ar hingað til að taka þátt í leit og
björgun og fann tvo eða þrjá hausa
sem ég vissi ekki um. Núna er allt féð
komið á öruggan stað og bíður þess
að farið verði með það í sláturhús,
sem verður vonandi einhvern næstu
daga,“ segir Jón. Hann bætir við að
óveðrið nú hafi kannski ekki verið
óvænt. Kona sín, Bergrún Ingólfs-
dóttir, hafi í síðustu viku veitt mikl-
um músagangi athygli en margra trú
er að við slíkar aðstæður að hausti sé
harður vetur í nánd. Þau á Hæli hafi
verið sammála um eftir þetta að allra
veðra væri von, eins og kom á dag-
inn.
Hjálparstörf í Vatnsdal
Mannskapur úr björgunarsveit-
inni Blöndu á Blönduósi, alls 10
manns, fór í gær til aðstoðar bænd-
um í Vatnsdal, sem leituðu að fé sínu.
„Við erum við hjálparstörf á tveimur
bæjum í dalnum, en á þeim jörðum
sem efst standa er talsverður snjór
eftir þetta hríðarskot,“ sagði Þorgils
Magnússon björgunarsveitarmaður.
Músagangur boðaði hríðarveður
- Fé fennti nyrðra - Staflaðist í
skurðum - Björgunarsveitir á fullu
Ljósmynd/Bergrún Ingólfsdóttir
Sauðfé Hafa þurfti hraðar hendur þegar óveðrinu slotaði við að tína upp lömb og fullorðið fé úr sköflunum. Á Hæli
var hverjum haus bjargað, en fjár er enn leitað til dæmis á þeim bæjum í Vatnsdalnum sem hæst standa í landinu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Tveir hreindýrskálfar sem fundust móður-
lausir og illa til reika í vor hafa undanfarnar
vikur glatt börn og ferðamenn á Austurlandi.
Kálfunum var komið í góðar hendur og fengu
þeir gott atlæti á gistiheimilinu Vínlandi sem
er rétt við Fellabæ.
„Kálfarnir voru litlir og virkilega illa
haldnir þegar þeir fundust á Fljótsdalsheiði í
vor,“ segir Björn Magnússon, fyrrverandi
bóndi. „Það var hringt í mig því fólk veit að
ég hef verið mikið upp í Lapplandi við smölun
á hreindýrum þar og ég tók við þeim. Þeir
komust strax undir hendur tveggja dýra-
lækna á Egilsstöðum og í samráði við Múla-
þing komum við þeim fyrir á Vínlandi og þar
eru þau enn. Dýrin eru enn á pela og þau eru
mjög gæf og blíð,“ segir Björn.
Ferðamenn áhugasamir
Björn og tengdasonur hans hafa sótt um
heimild hjá Umhverfisstofnun til vörslu
hreindýranna og hafa óskað eftir aðkomu
Múlaþings að málinu. Björn segir að MAST
og umhverfisráðuneytið hafi verið upplýst
um vörslu kálfanna þegar í upphafi.
Hreindýrskálfarnir hafa fengið nöfnin
Garpur og Mosi og hafa margir sýnt þeim
áhuga. Björn segir að fjöldi ferðamanna,
bæði íslenskir og erlendir, sem frétt hafi af
dýrunum, hafi skoðað þau. „Svo hafa komið
krakkar úr alla vega tveimur bekkjum í
Fellaskóla og þau hafa tvisvar komið úr leik-
skólanum í Fellabæ. Krökkunum finnst auð-
vitað einstakt að það sé hægt að kalla á kálf-
ana og þeir komi. Og auðvitað að geta fengið
að gefa þeim pela,“ segir hann og kveðst vona
að fleiri geti kynnst kálfunum og gælt við þá.
Sjálfur kveðst Björn nota hvert tækifæri til
að líta eftir kálfunum. „Alltaf þegar ég hef
tíma sleppi ég þeim úr gerðinu, fer með þá í
langan göngutúr og beiti þeim. Svo komum
við aftur heim og þeir fá pela og rúgbrauð. Þá
eru allir sáttir og glaðir.“
Garpur og Mosi fá
pela og rúgbrauð
- Hreindýrskálfar í fóstri við Fellabæ
Alúð Börnin sýna kálfunum mikinn áhuga. Peli Kálfarnir hafa braggast vel í sumar.
Ljósmyndir/Fannar Magnússon
Fóstur Kálfarnir voru veikburða í vor.