Morgunblaðið - 30.09.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Askalind 3,
201
Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst.
10—17
Laugardaga
11—15
HAUSTTILBOÐ
20% afsláttur af öllum
innréttingum út október
Það tíðkast fyrir kosningar að
ýmis frjáls félagasamtök sendi
stjórnmálaflokkunum spurningar
um afstöðu þeirra til aðskiljanlegra
mála og fá svo svör um stefnuna í
kattarækt, veganisma og geim-
ferðaáætlunum, svo fátt eitt sé
nefnt.
- - -
Á vef Skógrækt-
ar ríkisins má
sjá að fyrir nýliðn-
ar kosningar lagði
hún þrjár spurn-
ingar um skógrækt
fyrir stjórnmála-
flokkana, sem þeir
svöruðu flestir af
samviskusemi og
án verulegs ágrein-
ings.
- - -
En er virkilega við hæfi að rík-
isstofnanir bregði sér í líki
þrýstihópa og leggi slíkar spurn-
ingar fyrir framboðin, sem greini-
lega eru ætlaðar til þess að ota tota
og þrýsta á um auknar fjárveitingar
úr vösum skattborgara?
- - -
Svar Sósíalistaflokksins við spurn-
ingu um áherslur í skógrækt
hvað varðaði birki og kjarr var þó
mjög athyglisvert, en fram kom að
flokkurinn er and-rasískur í þessum
efnum: „Sósíalistaflokkur Íslands lít-
ur ekki svo á, að meta eigi verðleika
trjátegunda eftir uppruna – ekki
frekar en verðleikar fólks skuli
metnir eftir því frá hvaða landi það
er upprunnið. Hann telur engin rök
hníga að því að telja beri eina trjá-
tegund mikilvægari einungis vegna
þess að hún tilheyri „gömlu ætt-
unum í landinu“ og hafi ekki nýlega
flust til landsins. Flokkurinn aðhyll-
ist fjölbreytni og jöfnuð.“
- - -
Sem minnir á það, nú þegar aðeins
eru um átta mánuðir eftir til
borgarstjórnarkosninga: Hvað er að
frétta af pálmatrjánum í Vogunum?
Rasisminn í
Hallormsstað
STAKSTEINAR
Anna María Gunnarsdóttir, varafor-
maður Kennarasambands Íslands,
hefur tilkynnt að hún sækist eftir
formennsku í sambandinu, en kosið
verður um nýjan formann á þingi KÍ
í byrjun nóvember. Áður hafði
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, fram-
haldsskólakennari sem jafnframt er
í forsvari jafnréttisnefndar KÍ, til-
kynnt framboð sitt.
Í tilkynningu segist Anna María
vilja fylgja eftir ýmsum umbótamál-
um sem unnið hafi verið að síðustu
ár. Fjármagna þurfi menntastefnu
stjórnvalda sem miði meðal annars
að fjölgun kennara. Bæta verði kjör í
stéttinni og uppræta kynbundna
misskiptingu þar. Þá þurfi að þróa
starfsemi KÍ og efla þjónustu þess.
Miklar breytingar til batnaðar hafa
átt sér í starfsumhverfi kennara á
síðustu árum og á mikilvægt sé að
halda áfram á þeirri braut.
„Frá því ég hóf störf sem kennari
hef ég haft áhuga og metnað fyrir
bæði menntun í landinu og kjaramál-
um stéttarinnar. Það verður leiðar-
stef mitt ef kennarar treysta mér til
forystu. Grundvöllur kraftmikillar
kjarabaráttu er sterk sjálfsmynd
stéttarinnar og rík fagvitund,“ sagði
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir í yfir-
lýsingu þegar hún kynnti framboð
sitt nýlega
Frestur til að tilkynna framboð til
formennsku í KÍ rennur út 4. októ-
ber næstkomandi. sbs@mbl.is
Tvær vilja formannsembættið í KÍ
- Bæta kjör stéttar - Styrkja fagvit-
und - Framboðsfrestur til 4. október
Anna María
Gunnarsdóttir
Hanna Björg
Vilhjálmsdóttir
„Framlínufólkið á skilið miklu meira
en þakklætið eitt og sér og við köll-
um eftir því að það fái álagsgreiðslur
í samræmi við það sem þau hafa lagt
á sig til að koma samfélaginu okkar
út úr þessum heimsfaraldri,“ sagði
Sonja Ýr Þorbergsdóttir í setningar-
ávarpi formanns á þingi BSRB í gær
um þá stóru hópa opinberra starfs-
manna sem hafa verið í framlínunni í
heimsfaraldri kórónuveirunnar. „Við
getum ekki ætlast til þess að þau
standi vaktina endalaust án þess að
fá eitthvað á móti,“ sagði hún og
minnti á að í rúmlega eitt og hálft ár
hefði álagið á þennan hóp verið gríð-
arlegt.
Sonja var endurkjörin formaður
BSRB til næstu þriggja ára á
þinginu í gær. Einnig var Þórarinn
Eyfjörð, formaður Sameykis, kjör-
inn í embætti 1. varaformanns
BSRB og Arna Jakobína Björns-
dóttir, formaður Kjalar stéttarfélags
í almannaþjónustu, var endurkjörin í
embætti 2. varaformanns BSRB.
Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra ávarpaði þingið og fjallaði
m.a. um nauðsynlegar aðgerðir og
aðlögun vegna loftslagsbreytinga og
grundvallaráhrifa sem þær hafa í för
með sér. Sagði Katrín að rík hefð
fyrir samtali og samráði milli stjórn-
valda og aðila vinnumarkaðarins
myndi gagnast vel til að tryggja að
umskiptin í átt að kolefnishlutleysi
yrðu árangursrík og réttlát. „Því hef
ég gert að tillögu minni að þjóðhags-
ráð taki málefnið til sérstakrar skoð-
unar og umfjöllunar á vettvangi sín-
um,“ sagði Katrín.
Á þinginu voru sex fulltrúar
kjörnir í stjórn BSRB og eru nú
fimm konur og fjórir karlar í stjórn
BSRB. omfr@mbl.is
Framlínufólkið
fái álagsgreiðslur
- Sonja Ýr Þorbergs-
dóttir endurkjörin
formaður BSRB
Ljósmynd/BSRB
Rafrænt þing Sonja Ýr Þorbergs-
dóttir formaður BSRB flutti ávarp.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/