Morgunblaðið - 30.09.2021, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Sindrastóll
Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001)
Sindrastóllinn er bólstraður
með íslenskri lambagæru.
Verð frá: 199.000 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Kosningar um sl. helgi skila 25 nýjum fulltrúum sæti á Alþingi. Krefjandi staða í efnahagsmálum, úrbætur í heilbrigðiskerfinu, aðgerðir í
loftslagsmálum, flóttafólk og stjórnarskrá; stórmál sem bíða úrlausnar, segja nýir þingmenn sem Morgunblaðið ræddi við. sbs@mbl.is
„Nú eftir kosningar tel ég að Al-
þingi Íslendinga sé skipað fjölda
vel meinandi og hugsandi kjörinna
fulltrúa sem ég er handviss um að
styðja raunverulegar úrbætur. Í
einu auðugasta landi veraldar
reynast allt of margir fastir í
ósanngjörnum viðjum fátæktar. Að
bæta úr því er algjört forgangs-
mál,“ segir Jakob Frímann Magn-
ússon, þingmaður Flokks fólksins.
„Mikilvægt er að úrbætur á
kjörum þeirra lakast settu verði á
dagskrá í viðræðum þeirra sem
mynda nýja ríkisstjórn. Flokkur
fólksins hefur komið þessum mál-
um rækilega á dagskrá og fjöl-
margir þingmenn úr flestum flokk-
um virðast sammála um að
stórbæta þurfi stöðuna. Fólkið sem
stritað hefur alla sína ævi, lagt
grunn að innviðum okkar ríka
samfélags, þar með talið 6.400
milljarða króna lífeyrissjóðakerfi,
á hreinlega betra skilið, segir Jak-
ob sem kveðst hlakka til þeirra
verkefna sem nú bíða hans í póli-
tík. Hann var varaþingmaður Sam-
fylkingar fyrir bráðum 20 árum
auk þess að hafa í áratugi verið
áberandi á leiksviði íslensks sam-
félags.
„Þetta er spennandi tækifæri,
meðal annars til að bæta velferð-
arkerfið en einnig til að treysta
stoðir tekjuskapandi atvinnulífs.
Fiskeldið kemur æ sterkar inn í
landsframleiðsluna – og verð fyrir
afurðir bleikfisks er jafnan hærra
en þess hvíta. Þar þurfum við að
halda áfram. Þá vega hugverk og
tengdar greinar æ þyngra í þjóð-
arbúskapnum. Eru nú 16% af út-
flutningsverðmætum þjóðarinnar
en sú prósenta gæti tvöfaldast á
næstu árum ef rétt er á haldið. Því
er ég sammála þeim sem telja að
þar beri að gefa í, meðal annars
með því að koma á fót langþráðu
ráðuneyti skapandi greina. Tæki-
færi til aukinnar verðmætasköp-
unar brosa við okkur, bæði í bein-
hörðum peningum sem og þeim
menningarlegu verðmætum sem
seint verða að fullu metin til fjár.“
Margir fastir í ósanngjörnum
viðjum fátæktar í auðugu landi
„Kosningarnar nú fóru fram á
óvenjulegum tíma; við aðstæður sem
ætla má að séu upptaktur verðbólgu
og vaxtahækkana. Ný ríkisstjórn,
hvernig sem hún verður skipuð, þarf
að setja fram trúverðuga efnahags-
áætlun sem ver stöðu ríkissjóðs og
dregur úr vaxtahækkunum og verð-
bólgu, sem er mikilvægt fyrir heimili
og fyrirtæki. Að ná tökum á efna-
hagsmálum verður brýnt verkefni
stjórnvalda á næstunni,“ segir Sig-
mar Guðmundsson, þingmaður
Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi.
„Mikil umræða um heilbrigðismál
að undanförnu verður svo að skila
sér í aðgerðum. Ágreiningur milli
Sjálfstæðisflokks og VG um leiðir og
rekstrarform er augljós. Ef kostir
einkarekstrarins hefðu verið betur
nýttir hefði álagið á Landspítalanum
og öðrum heilbrigðisstofnunum ekki
orðið jafn mikið í kórónuveiru-
faraldrinum og gerðist. Þarna er tví-
mælalaust þörf á stefnubreytingu.“
Nú í vikunni hafa vanhöld og mis-
tök við talningu atkvæða í Norðvest-
urkjördæmi verið helsta fréttamálið.
„Þetta er vandræðalegt mál sem ég
tel að sýni okkur svart á hvítu hve
uppstokkun á allri kosningalöggjöf
og skipan kjördæma landsins er
mikilvæg. Fjögur ár eru til stefnu og
á þeim tíma ætti að nást einhver
lausn sem allir geta sætt sig við.“
Efnahagsmál
brýnt verkefni
„Mikilvægt er að ný ríkisstjórn klári
mál sem út af standa vegna lífskjara-
samningsins, til að mynda aðgerðir
gegn launaþjófnaði og breytingar á
lögum til að styrkja stöðu leigj-
enda,“ segir Jóhann Páll Jóhanns-
son, þingmaður Samfylkingar.
„Hagkerfið er enn viðkvæmt eftir
kórónuáfallið og brýnt að snúið
verði frá áformunum sem fram
komu í fjármálaáætlun stjórnar-
flokkanna um stórtækan niðurskurð
á næstu árum. Við í Samfylkingu
uppskárum ekki eins og við vildum í
þessum kosningum, en hægriflokk-
arnir sem töluðu um að lækka skatta
og minnka báknið töpuðu líka.
Sigurvegarar eru Framsókn, sem
rak kosningabaráttu um að fjárfesta
í fólki, og Flokkur fólksins, sem
lagði áherslu á bætt kjör eldra fólks
og öryrkja. Því er borðleggjandi að
ríkisstjórnin sem nú tekur við bæti
strax kjör þeirra sem hafa verið
skildir eftir og stöðvi kjaragliðnun
milli lífeyrisþega og launafólks. Svo
verður að stíga miklu fastar til jarð-
ar í loftslagsmálum. VG töluðu fyrir
60% samdrætti í losun gróðurhúsa-
lofttegunda fyrir 2030 í sinni stefnu
og hljóta að gera kröfu um að mælt
sé fyrir um það í stjórnarsáttmála.
Þá erum við í Samfylkingu boðin og
búin að leggja fram lausnir,“ segir
Jóhann Páll enn fremur.
Hagkerfið er
enn viðkvæmt
„Loftslagsmálin þurfa að vera í al-
gjörum forgangi á næstunni. Það
veldur mér áhyggjum að þeir flokk-
ar sem hlutu mest fylgi eru ekki með
neina raunhæfa stefnu í þessum
málum. Því reynir á okkur sem
stefnu höfum að vísa veginn,“ segir
Arndís Anna Kristínar- og Gunn-
arsdóttir, þingmaður Pírata.
„Við viljum líka að stjórnarskrár-
málið komist á dagskrá. Auðvitað
gengur ekki að þau sem völdin hafa
hverju sinni hummi fram af sér í ára-
tugi að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á þessu grundvallarplaggi
stjórnskipunar landsins, sem núver-
andi vandræðastaða sýnir einmitt
svo glöggt að breyta þarf. Vilji al-
mennings til úrbóta er skýr. Sjálf
hef ég mikinn áhuga á útlendinga-
málunum og þar er ýmislegt sem
ekki má bíða, svo sem að stöðva end-
ursendingar flóttafólks til Grikk-
lands og Ungverjalands. Slík með-
ferð er ómannúðleg. Annars verður
að segjast að nú á miðvikudags-
morgni er staðan í pólitíkinni enn
mjög óljós. Álitamál um talningu at-
kvæða í Norðvesturkjördæmi hafa
enn ekki verið leidd til lykta. Upp-
kosning er ekki útilokuð og komi til
hennar gætu úrslitin komið af stað
hringekju. Fólk sem í dag virðist
hafa náð kjöri til Alþingis gæti dottið
út og nýtt komið inn í þess stað.“
Loftslag og
stjórnarskrá
„Sé horft til þess hve félags- og heil-
brigðismál voru mikið rædd fyrir
kosningar hljóta þau að verða ofar-
lega á verkefnalista næstu mánaða.
Minn flokkur lagði áherslu á þessi
mál í kosningabaráttunni og sá
stuðningur sem við fengum er ákall
um úrbætur,“ segir Jóhann Friðrik
Friðriksson, þingmaður Fram-
sóknarflokks í Suðurkjördæmi.
„Biðlista á sjúkrastofnunum þarf
að vinna niður og auka þarf fjár-
veitingar til að svo megi verða. Úr-
bætur í málefnum barna, sem Ás-
mundur Einar Daðason félagsmála-
ráðherra hefur boðað, þurfa svo að
komast til framkvæmda fljótt. Svo
verður að taka á atvinnumálunum.
Skapa þarf tækifæri og styðja við
ýmsa sprota, nú eftir bakslagið sem
fylgdi kórónuveirunni. Þegar verst
lét var atvinnuleysi á Suðurnesjum
orðið um 24% en er nú komið niður í
10%. Staðan hefur breyst hratt til
batnaðar á síðustu mánuðum, með-
al annars þar sem fólk er að hverfa
aftur til fyrri starfa. Annars bara
bíðum við átekta og sjáum hver út-
koman verður í viðræðum for-
manna ríkisstjórnarflokkanna um
áframhaldandi samstarf. Bent er á
að aðstæður í efnahagsmálum á
næstunni kunni að verða krefjandi
og þá er mikilvægt að forystan sé
traust.“
Taka verður á
atvinnumálum
„Fyrsta mál nú eftir kosningar er að
mynda ríkisstjórn, sem þarf í byrjun
að takast á við krefjandi verkefni,“
segir Guðrún Hafsteinsdóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokks í Suður-
kjördæmi.
„Tekjufallið í heimsfaraldrinum
var mikið og fjárlagagatið er stórt.
Borga þarf niður þær skuldir sem
safnað var til og ríkisbúskapurinn
næstu tvö til þrjú árin verður krefj-
andi. Í þessari stöðu höfum við um
þrjá möguleika að velja: Að hækka
skatta eða fara í mikinn niðurskurð.
Ég held að fyrir hvorugu þessa sé
hljómgrunnur. En þá komum við að
þriðja kostinum, sem er að efla at-
vinnulífið og stækka þjóðarkökuna.
Efling atvinnulífsins, það er tækni-
greina- og hugverkageirans, er með-
al tækifæra.“
Eftir kosningabaráttuna segist
Guðrún koma til þings vel nestuð af
hugmyndum og viðhorfum sem kjós-
endur í kjördæminu hafi kynnt sér.
Heilbrigðisþjónustu hafi oft borið á
góma og þar leggi fólk áherslu á
betra aðgengi að heilsugæslunni.
Einnig að eyða þurfi biðlistum eftir
aðgerðum á sjúkrahúsum og þjón-
ustu á hjúkrunarheimilum.
„Krafan um úrbætur er skýr og
eins og ég sagði fyrir kosningar í
Morgunblaðinu er heilbrigðisþjón-
ustan átakalína þjóðmálanna í dag.“
Fjárlagagatið
er krefjandi
2021 ALÞINGISKOSNINGAR