Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 32
32 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Greið leið – til fram Við ráðum í 100 stöðu a r 30. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.19 Sterlingspund 174.17 Kanadadalur 101.32 Dönsk króna 20.132 Norsk króna 14.82 Sænsk króna 14.686 Svissn. franki 138.1 Japanskt jen 1.15 SDR 181.41 Evra 149.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.3589 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Í yfirlýsingu fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands sem birt var í gær segir að ört hækkandi fasteignaverð hafi farið saman við aukna skuldsetn- ingu heimila á síðustu mánuðum. Því hafi bankinn ákveðið að setja reglur um hámark greiðslubyrðar um fast- eignalán í hlutfalli við tekjur neyt- enda og skal greiðslubyrðarhlutfall fasteignalána almennt takmarkast við 35% en 40% fyrir fyrstu kaupend- ur. Varanleg ákvörðun Á kynningarfundi í Seðlabankanum í gær sagði Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri að um varanlega ákvörðun væri að ræða og verið væri að koma upp sambærilegum vörnum og tíðkast hjá öðrum þjóðum. Tryggja eigi að fólk sé ekki að taka of mikla áhættu í sínum fasteignakaupum til að varna því að fasteignabóla myndist á mark- aðnum. Ráðstöfunin skapi jarðsam- band við tekjur fólks í landinu. „Við viljum ekki að fasteignaverð fari úr takti við tekjur í landinu,“ sagði Ásgeir á fundinum. Í frétt í ViðskiptaMogganum í gær var sagt frá því að íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu væru nú 18% færri en á sama tíma á síðasta ári og fjöldi íbúða í byggingu hefði ekki ver- ið minni síðan í mars 2019. Minna framboð fasteigna hafi áhrif til hækk- unar verðbólgu. Talað á sömu nótum Ingólfur Bender, aðalhagfræðing- ur Samtaka iðnaðarins, segir að Seðlabankinn sé að tala á sömu nótum og Samtökin hafi verið að gera síð- ustu misseri. Bent sé á að framboð íbúðarhúsnæðis sé vandamál og að áframhaldandi ójafnvægi milli fram- boðs og eftirspurnar á húsnæði þrýsti verði upp og að það geti skapað áhættu á markaðnum. Ingólfur segir að ráðstöfun Seðla- bankans sé í sjálfu sér fín eins og hann orðar það. Bankinn sé að leitast við að tryggja fjármálastöðugleika og í leiðinni stöðugleika á íbúðamarkaði, líkt og SI hafi lengi talað fyrir. Ingólfur segir að eina lausnin á vandanum sé að auka framboð á lóð- um. „Þar er flöskuhálsinn, eins og við höfum lengi bent á. Sveitarfélögin hafa haldið að sér höndum í þessum efnum. Það sem Seðlabankinn er að gera núna hefur áhrif á eftirspurnina en framboðshliðin er rót vandans,“ segir Ingólfur. Ingólfur segir að um fyrirbyggj- andi aðgerðir sé að ræða af hálfu bankans sem hafi ekki áhrif til skamms tíma. „Þarna er verið að setja upp ákveðnar girðingar til að tryggja að fólk sé ekki að lenda í vandræðum með greiðslubyrði litið fram á við.“ Ingólfur segir að ef yfirvöld hefðu hlustað á ítrekuð varnaðarorð SI í gegnum tíðina væri þjóðfélagið ekki í þeirri stöðu sem það er í í dag. „Við viljum stöðugleika á þennan markað og að uppbygging sé í samræmi við þörf. Þannig er það ekki í dag.“ Vaxtahækkanir Seðlabankinn hefur brugðist við hækkandi verðbólgu með vaxtahækk- unum. Ingólfur segir að gallinn við vaxtahækkanir bankans sé að þar er verið að hafa áhrif á eftirspurnarhlut- ann og framboðshlutann á sama tíma. Vaxtagjöld íbúðalána hækki ásamt því sem fjármagnskostnaður fram- kvæmdaraðila hækki. „Vaxtatækið er ekki fullkomið tæki til að taka á þessu.“ Heimatilbúinn vandi Ingólfur segir að lokum að ef fram- boðsvandinn á íbúðamarkaði yrði leystur og verðþrýstingur minnkaði, væri verðbólgan líklega að lækka til- tölulega hratt. Verðbólgumarkmið SÍ næðust fyrr og verðbólguvæntingar yrðu frekar í markmiði bankans. Þar með yrði minni þörf fyrir vaxtahækk- anir af hálfu SÍ. „Þá væri að birtast mun jákvæðari mynd. Þessi vandi okkar er heimatilbúinn og lausnin er í höndum stjórnvalda,“ segir Ingólfur að lokum. Lítið framboð íbúða vandamál Morgunblaðið/Sigurður Bogi Uppbygging Íbúðir í byggingu eru 18% færri en á sama tíma á síðasta ári. - SÍ setur reglur um hámark greiðslubyrðar - Hætta á fasteignabólu - Framboðshliðin rót vandans Víkurverk, sem sérhæfir sig í sölu á ferðavögnum, hagnaðist um 82 millj- ónir króna á síðasta ári. Hagnaður- inn margfaldaðist á milli ára en hann var rúmar 27 milljónir árið á undan. Tekjur Víkurverks á síðasta ári námu tæplega 1,7 milljörðum króna en árið á undan voru þær 1,3 millj- arðar. Það sem fer upp kemur niður Arnar Barðdal, framkvæmda- stjóri og eigandi fyrirtækisins, segir að árið í fyrra hafi verið stærsta ár þess frá upphafi. „En það má ekki gleyma því að það sem fer upp kem- ur aftur niður. Mikilvægt er að hafa byggt upp sterkan grunn í fyrir- tækinu til að það þoli slíkar sveiflur og er ljóst að við erum ekkert án starfsfólks okkar. Víkurverk er sér- verslun sem krefst mikillar sérþekk- ingar af okkar fólki og það er mik- ilvægt að þjónustustigið sé hátt. Við erum svo heppin að vera með frá- bæran starfsmannahóp sem er eins og ein stór fjölskylda. Þau hafa lagt mikið á sig til að fyrirtækið nái þess- um árangri, jafnvel unnið langt fram á kvöld og erum við nú að uppskera eftir þá vinnu,“ segir Arnar. Faraldurinn ástæða Faraldurinn hefur haft sitt að segja um velgengnina að sögn Arn- ars en vegna hans ákváðu margir að ferðast innanlands sumarið 2020. „Það jók álagið á okkur til muna en sem betur fer tókst okkur að komast ágætlega í gegnum þetta. Margir voru að ferðast með ferðavagna í fyrsta sinn og þurftu því að læra á allt sem þeim viðkemur.“ Morgunblaðið/G.Rúnar Ferðalag Arnar Barðdal fram- kvæmdastjóri Víkurverks. Hagnaður Víkur- verks 82 m.kr. - Tekjur 1,7 millj- arðar - Stærsta ár frá upphafi Nýjar íbúðir í Sunnu- smára 2-6, suður af Smáralind, voru aug- lýstar sl. föstudag og var opið hús síðustu helgi. Þar eru sam- tals 84 íbúðir í þrem- ur stigagöngum. Þórhallur Biering, löggiltur fast- eignasali hjá Miklu- borg, segir búið að selja 60 íbúðir í hús- inu síðan opnað var fyrir tilboð á mánu- daginn var. Stefnt sé að því að afhenda íbúðir í Sunnusmára 6 í mars og svo fylgi Sunnusmári 4 í kjölfarið í apríl og loks Sunnusmári 2 í maí, ef áætlun heldur. Þórhallur segir aðspurður að salan vitni um skort á íbúðum, ekki síst 2 til 3 herbergja íbúðum, en íbúðirnar í Sunnusmára 2-6 kosti frá 40,9 milljónum króna. Kaupendahópurinn sé fjölbreyttur en meðal annars sé fólk sem keypti fyrstu íbúðirnar í hinu nýja hverfi, Smára- byggð, að færa sig yfir í stærri íbúðir. Bílastæði í kjallara fylgi flest- um íbúðanna. Á norðurhlið Sunnusmára 2 verður atvinnurými á fyrstu tveimur hæðunum og er þar gert ráð fyrir veitingarekstri. Allar íbúðirnar, alls 213, í sex fyrstu fjölbýlishúsunum í Smára- byggð eru seldar og hafa nú selst 60 til viðbótar í Sunnusmára 2-6. Áformað er að ljúka uppbyggingu íbúða í Smárabyggð árið 2023 en gert er ráð fyrir 675 íbúðum, auk atvinnuhúsnæðis. baldura@mbl.is ÍBÚÐIR Í SUNNUSMÁRA 2-6 RJÚKA ÚT Salan þykir vitna um skortinn Í byggingu Sunnusmári 2-6 er suður af Smáralind. Morgunblaðið/Baldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.