Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 60

Morgunblaðið - 30.09.2021, Side 60
Hafnarfjörður Brynjar Berg Bryde fæddist 14. janúar 2021 kl. 9.25. Hann vó 3.666 g og var 53 cm langur. For- eldrar hans eru Vala Rún Magnús- dóttir og Björn Berg Bryde. Nýr borgari 60 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 Vindur Úlpa fyrir börn Kr. 18.990.- 50 ÁRA Þórunn Erla Stefánsdóttir er Pat- reksfirðingur en býr í Hafnarfirði. Hún er grunnskólakennari að mennt, kenndi í 18 ár og hefur verið deildarstjóri stoðþjónustu í Lækjar- skóla í tvö ár. Áhugamál Þórunnar eru útivist með fjöl- skyldunni, prjónaskapur og ferðalög á framandi slóðir. FJÖLSKYLDA Jóhann Samsonarson, f. 1969, leiðtogi í álverinu í Straumsvík. Börn þeirra eru Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, f. 1995, og Samson Jóhannsson, f. 1997. Kærasta Samsonar er Íris Þórdís Jónsdóttir, og dóttir hennar er Stella Rós. Foreldrar Þórunnar Erlu eru Stefán Skarphéðinsson, f. 1945, fyrrverandi sýslumað- ur á Patreksfirði og í Borgarnesi, og Ingibjörg Ingimarsdóttir, f. 1949, fyrrverandi launa- fulltrúi hjá Borgarbyggð. Þau eru búsett í Borgarnesi. Þórunn Erla Stefánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hnökrar af ýmsu tagi gætu gert vart við sig í vinnunni. Brynjaðu þig gegn utan- aðkomandi áhrifum og taktu málin í þínar hendur. 20. apríl - 20. maí + Naut Þeir sem segja: enga eftirsjá, rugla þig í ríminu. Ef þig endilega langar að láta taka eftir þér þá er dagurinn í dag kjörinn til þess. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Oft var þörf en nú er nauðsyn á að þú beinir athyglinni að því að rækta sjálfa/n þig andlega og líkamlega. Ekki breyta um stefnu í ákveðnu máli. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hefur látið aðra ganga fyrir og nú er kominn tími til þess að þú sinnir sjálfum/ sjálfri þér. Hvað forðastu? Horfstu í augun við það og óttinn hverfur. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú getur nýtt sannfæringarkraft þinn til að styrkja stöðu þína. Gerðu þér glaðan dag og bjóddu vini þínum út að borða. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Haltu ró þinni á hverju sem gengur og líttu bara á björtu hliðar tilverunnar. Bestu hugmyndirnar koma oft alveg að óvörum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert að velta fyrir þér leiðum til að bæta heilsu þína. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Góður göngutúr er ágætisbyrjun. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er oft gaman að kynnast nýju fólki, sérstaklega þegar það getur kynnt manni nýjar hugmyndir og framandi lönd. Láttu athugasemdir annarra sem vind um eyrun þjóta. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Fáirðu ekki viðurkenningu verka þinna áttu það til að fara í baklás. Brostu framan í heiminn og þú sérð að þér eru allir vegir færir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Tilfinningar þínar til vinar gætu breyst á næstu vikum. Reyndu að ná betri tökum á skapi þínu, þannig að það hlaupi ekki með þig í gönur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Gættu þess að hafa báða fæt- urna á jörðunni þegar þú metur eigin frammistöðu. Ekki flýta þér svona alla daga, hægðu á þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú gætir uppgötvað alveg nýja tekju- möguleika í dag. Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann á stuðningi þínum að halda. tíma í senn og ákvað ég því árið 2015 að hefja störf aftur á gömlu deildinni minn á gjörgæslunni í Fossvogi.“ Þar starfaði Árni Már vann þá á hinum ýmsu gjörgæslu- deildum um allan Noreg, mest þó í Ósló. Það var talsvert álag á fjöl- skyldulífinu að vera í burtu í langan Á rni Már Haraldsson er fæddur 30. september í Reykjavík og bjó þar með foreldrum sínum til 5 ára aldurs. Síðan flutti fjölskyldan til Víkur í Mýrdal. „Í Vík var gott að alast upp. Mik- ið frelsi og skemmtilegt að leika sér í þorpinu og í náttúrunni í kringum það. Einnig átti ég ömmu og afa á Skeiðunum, á Birnustöðum II, og var oft lengi í heimsókn í sveitinni þar sem afar gott var að vera. Ég bjó í Vík þangað til ég flutti til Þor- lákshafnar til að fara í Fjölbrauta- skóla Suðurlands. Þar bjó ég hjá móðursystur minni meðan ég stundaði nám og vann svo í Humar- vinnslunni í bænum á sumrin. Þarna eignaðist ég marga góða vini sem enn eru mínir bestu vinir.“ Árni Már stundaði grunnskóla- nám í Vík og framhaldsskóla á Sel- fossi í Fjölbrautaskólanum þar. Hann útskrifaðist af félagsfræði- braut 2001. Að loknum framhalds- skóla fluttist Árni Már til Reykja- víkur og fór að vinna sem starfs- maður á geðdeild 12 á Kleppi. Þar fékk hann áhuga á hjúkrunarfræði og ákvað að reyna við klásus í því fagi ári seinna. Hann komst inn í námið eftir haustönn í klásus og út- skrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 2006. „Í náminu var stefnan alltaf tek- in á að verða geðhjúkrunarfræð- ingur en á þriðja ári í náminu fór ég í verknám á gjörgæsludeild og heillaðist algerlega af þeirri deild. Ég hóf störf á gjörgæslunni í Foss- vogi sem nemi árið 2005 og vann þar eftir útskrift 2006 og alveg þangað til 2008. Árið 2008 flutti ég til Kaupmannahafnar með kærust- unni minn sem er í dag konan mín. Við vorum þar í fimm ár og bjugg- um á Norðurbrú.“ Árni Már hóf störf á gjörgæslu- deild á spítalanum Bispebjerg í Kaupmannahöfn og kláraði fram- haldsmenntun í gjörgæsluhjúkrun. „Eftir útskrift úr HÍ hef ég alltaf unnið á gjörgæsludeildum. Eftir að við fluttum heim aftur hélt ég samt áfram að vinna erlendis í tvö ár og þó aðeins í nokkra mánuði því fljót- lega var hann beðinn um að taka að sér deildarstjórastöðu á gjörgæsl- unni á Hringbraut, tímabundið í eitt ár. Eftir að ár var liðið var staðan auglýst og sótti hann um stöðuna og fékk. „Það voru heilmikil viðbrigði að verða allt í einu stjórnandi á nokk- uð stórri deild með um 80 starfs- menn. Ég starfa þar enn sem deild- arstjóri og mér þykir mjög vænt um vinnustaðinn minn og fólkið sem vinnur með mér. Að vera deildarstjóri á gjörgæsludeild á Co- vid-tímum hefur verið mikil reynsla og oft á tíðum mjög krefjandi.“ Í frítímanum reynir Árni Már að eyða sem mestum tíma með fjöl- skyldu sinni. „Við búum í rólegu og góðu bæjarfélagi og kunnum afar vel við okkur í Þorlákshöfn. Ég set fjölskylduna mína í fyrsta sæti í frí- tíma mínum og ef Covid hefur kennt mér eitthvað þá er það það að nýta frítímann minn vel og leika við börnin mín og hafa gaman. Ég Árni Már Haraldsson, deildarstjóri gjörgæslu á Landspítalanum við Hringbraut – 40 ára Fjölskyldan Árni Már, Hrafnhildur og börn stödd í fjörunni í Þorlákshöfn. Fjölskyldan í fyrsta sæti Á gjörgæslunni Hjúkrunarfræðing- arnir Árni Már og Ólafur G. Skúlason. Feðgarnir Árni Már og Halli. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.