Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 61

Morgunblaðið - 30.09.2021, Síða 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021 „ÉG BÍÐ BARA EFTIR EINHVERJUM SEM GETUR BJARGAÐ HEIMINUM – EÐA VILL BORGA MÉR FYRIR MINN STAÐ Í RÖÐINNI.“ „ÉG ÞARF BARA AÐ ÆFA MIG SVOLÍTIÐ LENGUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga tvennt af öllu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞESSI ÚTILOKA ALLT HLJÓÐ. BESTA. UPPGÖTVUN. Í. HEIMI. Á ÉG EKKI AÐ KVEIKJA Á KERTI TIL AÐ GERA ÞETTA RÓMANTÍSKARA? EINKALEYFA- STOFA stunda einnig fluguveiði þegar færi gefst og hef óbilandi áhuga á alls kyns tónlist og spila á gítar og úkú- lele þegar ég finn tímann í það.“ Fjölskylda Eiginkona Árna Más er Hrafn- hildur Hlín Hjartardóttir, f. 8.10. 1984, leikskólakennari. Þau hafa búið í Þorlákshöfn frá 2014 en þar áður bjuggu þau um skamman tíma á bóndabænum Læk í Ölfusi þar sem tengdafjölskylda hans bjó. Foreldrar Hrafnhildar eru hjónin Hrönn Guðmundsdóttir, f. 6.12. 1959, skógfræðingur, og Hjörtur Bergmann Jónsson, f. 13.10. 1955, hafnarstjóri. Börn Árna Más og Hrafnhildar eru Embla Guðlaug Árnadóttir, f. 4.11. 2012, Kolfinna Lára Árnadótt- ir, f. 7.11. 2017, og Haraldur Berg- mann Árnason, f. 12.11. 2020. Bræður Árna Más eru Birgir Haraldsson, f. 20.7. 1984, vélvirki, búsettur í Grafarvogi, og Guð- mundur Kristinn Haraldsson, f. 13.10. 1992, bílstjóri og rafvirkja- nemi, búsettur í Þorlákshöfn. Foreldrar Árna Más eru hjónin Haraldur Magnús Kristjánsson, f. 30.10. 1957, frá Selfossi, og Guð- laug Guðmundsdóttir, f. 28.9. 1961, frá Birnustöðum á Skeiðum. Har- aldur er sóknarprestur í Víkur- prestakalli og hefur starfað þar síð- an 1986 ásamt því að hafa verið prófastur 1998-2011 í Skafta- fellsprófastdæmi. Hann er á leið- inni á eftirlaun. Guðlaug er hjúkr- unarfræðingur og starfaði lengst af sem hjúkrunarforstjóri og for- stöðumaður á dvalar-og hjúkr- unarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal frá stofnun þess 1989 til 2016. Hún er nú hjúkrunar- fræðingur á líknardeild Landspít- ala í Kópavogi. Haraldur og Guð- laug bjuggu lengst af í Vík í Mýrdal en búa núna í Reykjavík þó að enn séu þau með aðsetur á prestsetrinu í Vík. Árni Már Haraldsson Valgerður Jónsdóttir húsfreyja á Birnustöðum Kristbjörn Hafliðason bóndi á Birnustöðum Sigrún Kristbjörnsdóttir húsfreyja á Birnustöðum Guðmundur Jónsson smiður og frístundabóndi á Birnustöðum II á Skeiðum Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur á lPíknardeild Landspítalans í Kópavogi, búsett í Reykjavík Guðlaug Eiríksdóttir húsfreyja í Þverspyrnu Jón Guðmundur Jónsson bóndi í Þverspyrnu í Hrunamannahr., Árn. Þuríður Árnadóttir húsfreyja á Hurðarbaki Guðmundur Kristinn Gíslason bóndi á Hurðarbaki í Flóa Guðmunda Guðmundsdóttir kjólameistari á Selfossi Kristján Sigurður Guðmundsson vélvirki og rennismiður á Selfossi Lára Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja á Ísafirði Guðmundur Guðni Kristjánsson skrifstofumaður á Ísafirði Úr frændgarði Árna Más Haraldssonar Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur í Víkurprestakalli, búsettur í Reykjavík Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir á Boðnarmiði: Kári gnauðar kólnar tíð kveður bára í nausti. Sölna grösin foldar fríð finn ég keim af hausti. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir svarar: Haustið kemur, harðnar tíð herðir golan raust. Bráðum kemur blíðan blíð burtu hverfur haust. Reyr frá Drangsnesi: Undan brimi bunkast þang – bálhvasst orðið getur – Lóðbeint nú um lægða-gang leiðir haustið vetur. Hallmundur Kristinsson er á sömu nótum: Válynd gerast veður, vindar tefja för. Sorti í norðri séður. Samt ég legg úr vör. Válynd gerast veður, vindar hamla för. Mér er búinn beður. Best að liggja í kör. Maðurinn með hattinn: Veðráttan er varla blíð, – í vetrarhaminn sest’ann. Er að skella á illskuhríð austan, norðan, vestan. Ingólfur Ómar hefur orð á því, að Framsókn sé að hjarna við: Sigurfeng úr býtum bar brátt mun aukast kraftur. Nú hefur fylgi Framsóknar í fjósið ratað aftur. Hér eru tvær öfugmælavísur: Fljúgandi ég sauðinn sá, saltarann hjá tröllum, hesta sigla hafinu á, hoppa skip á fjöllum. Vikurkol er í vaðstein best, vatn til ljósa brúka, á grjótinu vex grasið mest, gildir steinar fjúka. Þá er limra eftir Ingvar Gíslason: Hún Matta var húskross og heks og hafði ekki brúk fyrir sex. Þótt bóndinn þess bæði þau nytust í næði hún neitaði og maulaði kex. Anton Helgi Jónsson kvað og kallar „Kalt á toppnum“: Ég finn vel að höfuðið hækkar því hitinn á kollinum lækkar. Á gránandi hnjúk er gustur og fjúk og gróðurlaus blettur sem stækkar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Veður gerast nú válynd Hægðu á þér! Umferðarskilti af öllum stærðum og gerðum. Bannmerki Viðvörunarmerki Bílastæðamerki Einkastæði ATHUGIÐ! Bílastæði eingöngu ætluð starfsmönnum og gestum skólanna frá 07:30 - 17:00 Óviðkomandi bílar verða fjarlægðir Skilti BSV S:5514000 Boðmerki Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 555 65 00 | xprent@xprent.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.