Morgunblaðið - 30.09.2021, Page 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Það er mjög mikil eftirvænting í loft-
inu. Maður finnur að fólk er orðið bíó-
þyrst sem er náttúrulega frábært,“
segir Hrönn Marinósdóttir, stjórn-
andi Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Reykjavík, RIFF. Há-
tíðin hefst í dag, 30. september, og
stendur yfir til sunnudagsins 10.
október.
Hátíðin í fyrra var að mörgu leyti
óvenjuleg vegna faraldursins og því
gleðilegt að hún verði með nokkuð
hefðbundnu sniði í ár. Það eru þó
vissar nýjungar frá hátíðinni í fyrra
sem verða áfram. Hrönn nefnir sér-
staklega það sem kallað er „RIFF
heima“, sýningar á myndum hátíð-
arinnar á netinu. „Okkar hlutverk er
að miðla kvikmyndamenningu en
margir eiga ekki heimangengt. Fólk
er í fangelsum, úti á sjó eða býr ein-
hvers staðar úti á landi. Við viljum að
það fólk fái að njóta þessara mynda
líka.“
Retró stemning
Hrönn nefnir einnig að bílabíóið
svokallaða verði aftur á dagskrá í ár,
á bílaplani Samskipa á Holtavegi.
„Þetta er pínu „retró“ stemning. Svo
verður bíll, innréttaður sem bíó, á
ferðinni með erlenda gesti hátíðar-
innar og fleiri. Hann mun einnig
stoppa fyrir utan skóla og dvalar-
heimili. „Það er líka liður í því að þeir
sem komast kannski ekki í Bíó Para-
dís akkúrat þessa daga geti samt
skellt sér á einhverjar sýningar. Við
erum að reyna að færa hátíðina til
fólksins. Okkur þykir það svo spenn-
andi. Það er alltaf gaman að gera eitt-
hvað nýtt.“
Það er ekki að sjá á dagskránni í ár
að kófið hafi haft neikvæð áhrif á
reksturinn. „Þetta var erfitt ár því
auðvitað minnkaði miðasalan töluvert
en að sama skapi eyddum við minni
peningum í flug og gistingu. Þannig
þetta reddaðist eins og maður segir,“
segir Hrönn.
Komin á kortið
„Við erum metnaðargjörn. RIFF
er komin á hið alþjóðlega kvikmynda-
hátíðarkort sem virt hátíð. Ég er búin
að vera að þessu lengi og er líka að
vinna með frábæru fólki.“ Dagskrár-
stjóri hátíðarinnar er Frédéric Boy-
er. „Hann rak vídeóleigu í París, var
uppgötvaður þar og sendur beint á
kvikmyndahátíðina í Cannes þar sem
hann stýrði risastórum flokki í mörg
ár.“ Nú stýrir hann einnig hinni virtu
Tribeca-hátíð í New York.
„Við viljum gera hlutina vel og
hjálpa til við að gera Reykjavík að
alþjóðlegri kvikmyndahátíðaborg og
okkur finnst þetta mjög mikilvægt
hlutverk að sýna þessar óháðu kvik-
myndir, ekki síst evrópskar sem við
Íslendingar getum speglað okkur í.
Ég er ekki að gera lítið úr Holly-
wood-myndum, þær eru frábærar, en
það er svo miklu meira til. Þetta er
haf af æðislegum myndum, bæði
leiknum og heimildarmyndum. Mér
finnst mjög mikilvægt að miðla þessu.
Maður getur lært svo mikið af því að
horfa á kvikmyndir. Þetta er svo
sterkur miðill sem getur skemmt
manni í leiðinni,“ segir Hrönn.
Hollenskar myndir verða í brenni-
depli. „Við höfum verið að kynna ein-
stök lönd á hverri hátíð. Það eru ekki
margir sem vita af því en Hollend-
ingar standa framarlega og eru að
eyða heilmiklum peningum í kvik-
myndagerð. Þeir eru virkilega að
gera spennandi hluti. Þetta er spenn-
andi kvikmyndaland og það er gaman
að kynnast landinu í öðru ljósi. Marg-
ir fara til Amsterdam eða Rotterdam
en fæstir hafa séð hollenskar myndir.
Mér finnst það vera okkar hlutverk
að kynna nýja framsækna hluti.“
Gríðarlega flott fyrirmynd
Erlendir heiðursgestir hátíðar-
innar í ár eru ekki af verri endanum.
Fyrst ber að nefna tónlistarkonuna
Debbie Harry, aðalsöngkonu hljóm-
sveitarinnar Blondie, sem Hrönn seg-
ir að sé spennt fyrir Íslandi, vilji sjá
eldgosið og fara í Bláa lónið.
Tónleikamyndin Blondie: Að lifa í
Havana verður sýnd í tengslum við
tónlistarmyndadagskrá hátíðarinnar.
Bergur Ebbi og Andrea Jónsdóttir
munu stýra spjalli við Harry eftir að
myndin verður sýnd 2. september.
„Þetta er gríðarlega flott fyrirmynd
fyrir margar konur og hefur mikið
talað um sína lífsreynslu, um eitur-
lyfjaneyslu og ofbeldi og hefur látið
sig ýmis góð málefni varða.“
Hátíðinni lýkur 10. október með
sýningu myndarinnar Margrét
fyrsta, þar sem danska stórleikkonan
Trine Dyrholm túlkar fyrsta kven-
kyns þjóðhöfðingja Norðurlanda.
Dyrholm er einmitt annar heiðurs-
gestur. Leikstjórinn Charlotte Siel-
ing og framleiðendur myndarinnar
munu einnig vera viðstaddir sýningu
á henni í Bíó Paradís og Hrönn segir
að það verði stór stund. „Dyrholm
verður formaður dómnefndar í
keppnisflokknum Vitranir, sem er
hjartað í hátíðinni. Það er flokkur
með átta myndum sem eru tileink-
aðar ungum kvikmyndaleikstjórum í
fremstu röð.“
Vandaðar og flottar myndir
Norski leikstjórinn Joachim Trier
og franski leikstjórinn Mia Hansen-
Løve hljóta heiðursverðlaun RIFF
fyrir framúrskarandi listræna sýn.
„Þetta er ungt fólk en þeirra myndir
eru vandaðar og flottar og þetta eru
mjög eftirsóttir kvikmyndaleikstjór-
ar þannig það er mikill heiður að þau
hafi bæði þekkst boðið. Þetta eru úr-
valsleikstjórar með svolítið nýja sýn á
miðilinn.“
Hrönn þykir mikilvægt að hátíðir
sem þessi leggi sitt af mörkum til að
stuðla að betra samfélagi. „Þegar
verið er að eyða opinberum fjár-
munum í að reka svona listahátíð,
okkar stuðningur kemur frá ríki og
borg, þá finnst mér mikilvægt að hún
bæti einhvern veginn samfélagið eða
þroski umræðuna með þessum sterka
miðli sem kvikmyndirnar eru.“
Það sé mikilvægt að efna til um-
ræðu í kringum sýningarnar. „Í
heimildarmyndaflokki erum við til
dæmis með myndina Gabi sem fjallar
um barn sem langar að skipta um
kyn. Við fylgjumst með barninu
þroskast og taka sínar ákvarðanir.
Við ætlum að vera í samstarfi við þá
sem eru að vinna að þessum málum
hér á landi og vera með málþing eftir
sýninguna, á sunnudaginn kemur,“
segir Hrönn.
„Við höfum mikinn áhuga á um-
hverfismálum, stjórnmálum og jafn-
réttismálum. Við reynum að stuðla að
því að fjölmiðlar fjalli um myndirnar
og setji þær í samhengi við það sem
er að gerast á Íslandi. Við viljum líka
hjálpa fólki að læra að lesa miðilinn.
Þetta er svo sterkur miðill sem er oft
vanmetinn. Þetta er afþreying, og
verður að vera það, en svo er ekki
verra að það sé eitthvað sem maður
getur tekið með sér út í sitt daglega
líf,“ segir Hrönn og bætir við að það
að fara á svona kvikmyndahátíð sé
eins og að fara í ferðalag um heiminn.
Myndirnar komi frá yfir 50 löndum.
Hátíðin sé því afar fjölmenningaleg
og þar megi heyra alls kyns tungumál
sem fólk hafi ef til vill aldrei heyrt.
„Þetta verður veisla.“
Framsæknar og ögrandi
Að lokum er Hrönn spurð hvort
hún geti nefnt einhvern dagskrárlið
sem gestir ættu alls ekki að láta fram
hjá sér fara og segir þá: „Mér finnst
alltaf mjög spennandi að kynna þess-
ar átta myndir sem eru í flokknum
Vitranir. Þetta eru framsæknar og
ögrandi myndir. Ég mæli sérstaklega
með þeim. En annars er erfitt að
velja eitthvað eitt. Ég bendi samt á
The Last Film Show, Casablanca
Beats, The Most Beautiful Boy in the
World, Blind Ambition, Scars of Ali
Boulala, Verstu manneskju í heimi,
Vildman, Benadette og Harm.“
Í þessu samhengi nefnir hún þó
líka minningardagskrá um tvo vini
hátíðarinnar sem féllu frá á þessu ári,
leikstjórann Árna Óla Ásgeirsson og
fyrrum dagskrárstjórann Dimitri
Eipides. „Það er mikill heiður að fá að
sýna nýjustu myndina hans Árna Óla
Ásgeirssonar, Wolku. Hann var mik-
ill vinur okkar og við sýnum allar
myndirnar hans.“
Sérstök dagskrá verður tileinkuð
Eipides þar sem sýndar verðar
nokkrar af hans eftirlætismyndum.
„Eipides kom eiginlega hátíðinni á
þann stall sem hún er í dag,“ segir
Hrönn. Á dagskránni verður meðal
annars myndin Dogtoot frá 2009, sem
sló í gegn í Cannes og fjallar um fjöl-
skylduföður sem lokar börn sín inni á
heimilinu. Þau Hrönn voru saman á
frumsýningu myndarinnar í Cannes.
„Það er ótrúlega flott mynd. Ef ég
ætti að nefna einhverja algjöra uppá-
haldsmynd þá myndi ég segja Dog-
tooth. Hún er alveg frábær.“
Drottning Danska leikkonan Trine Dyrholm í hlutverki Margrétar fyrstu í samnefndri mynd. Heiðursgestur Hin heimsfræga söngkona Blondie, Debbie Harry, kemur á RIFF.
Sterkur miðill sem oft er vanmetinn
- Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst í dag - Vilja kynna nýja og framsækna hluti
Morgunblaðið/Unnur Karen
Metnaðargjörn Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri RIFF, kynnti fjöl-
breytta dagskrá hátíðarinnar á blaðamannafundi í síðustu viku.
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Allt að 3
mánaða
skammtur
í glasi.
Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni
og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik,
C-vítamíni og rósaldin.
C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir eðlilega starfsemi brjósks.
Í þínu liði fyrir þína liðheilsu!
Glucosamine
& Chondroitin Complex
„Ég lenti í bílslysi og fann til í öllum líkamanum,
það komu dagar sem voru rosalega erfiðir
þangað til ég kynntist Glucosamine og
Chondroitin frá Natures aid, ég er töluvert
betri og ég gæti ekki mælt meira með þessu
liðbætiefni.“ Petra Breiðfjörð