Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 LAGARLÍF 2021 Ráðstefna um eldi og ræktun Grand Hótel Reykjavík, 28. - 29. október Skráning fer fram áwww.lagarlif.is 10:00 13:00 13:00 15:00 15:00 16:30 Gullteigur - Þróun byggða í tengslum við strandbúnað Gullteigur - Menntun Starfsfólks í fiskeldi Setur - Helstu hindranir á vegi þörungaræktunar Gullteigur Staðleysur og áhrif þeirra á umræður um laxeldi Setur - Skeldýrarækt Móttaka við barinn 9:00 9:00 11:00 11:00 13:20 13:20 15:00 Gullteigur - Öryggismál starfsfólks í fiskeldi Hvammur - Landeldi á Íslandi Gullteigur - Framboð af vöru og þjónustu (sjóeldi) Hvammur - Framboð af vöru og þjónustu (landeldi) Gullteigur - Leyfisveitingar til sjókvíaeldis Hvammur - Reynslusögur úr fiskeldi Ráðstefnuslit Fimmtudagurinn 28. október Föstudagurinn 29. október Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ egar ég hafði lokið krabba- meinsmeðferð og var að fara aftur út í samfélagið, þá skráði ég mig í há- skólanám í stjórnmála- fræði og ritlist. Ég gerði það mér til endur- hæfingar, því ég þurfti að takast á við mikla heilaþoku eftir krabba- meinsmeðferðina, ég þurfti í raun að endur- hæfa heilann, minnið og einbeitinguna. Á þessu tímabili var ég að reyna að átta mig á hver ég væri, því ég breyttist mikið við það að veikjast alvarlega. Ég er ekki sama manneskjan og ég var áður en ég greindist með krabbameinið. Við svona stórt áfall þá komu öll gömlu áföllin upp á yfirborðið, sem ég hafði aldrei unnið úr,“ segir Ragnheiður Guðmunds- dóttir sem sendi nýlega frá sér ljóða- bókina PTSD, ljóð með áfallastreitu, en þar yrkir hún ljóð til að vinna úr áföllum og átta sig betur á sjálfri sér. Móðir hennar, Bryndís Björgvins- dóttir, teiknaði myndirnar í bókinni. Ragnheiður greindist árið 2016 með krabbamein sem var mjög sjald- gæft afbrigði. „Það var aldrei hægt að full- greina hverslags krabbamein ég fékk. Tvisvar voru sýni send á rann- sóknastofu í Boston en það eina sem kom út úr því var að krabbameinið væri skylt lífhimnu- og eggjastokkakrabba- meini. Fyrsta lyfja- meðferðin sem ég fór í virkaði ekki og sú næsta var hryllilega erfið, en hún virkaði á endanum og ég fór líka í skurð- aðgerð,“ segir Ragn- heiður sem lauk sinni krabbameinsmeðferð fyrir fjórum árum. „Ég þurfti að byggja sjálfsmynd mína alveg upp á nýtt, því gömul áföll höfðu mótað hana og hún var fyrir vikið í molum. Hún var brengluð og ég var full af sjálfshatri og mér fannst ég einskis virði og ekki eiga nokkra ást skilið. Á þessu tímabili sem ég skrifaði ljóðin þá upplifði ég mig nánast í tilfinningalegu frjálsu falli. Ég þurfti að takast á við mikla áfallastreitu og ofsakvíða. Í einum tíma í ritlistinni vorum við að lesa ljóð eftir Ástu Sigurðar og ungu krakk- arnir sem voru með mér í tímanum þau sáu allt annað út úr ljóðunum en ég. Þau sáu kynlíf og ást en ég sá of- beldi og meðvirkni. Ég veit að líf Ástu var mjög erfitt og litað af of- beldi sem hún varð fyrir og öðrum áföllum. Ég tengdi strax við þessi ljóð og það kveikti á áfallastreitunni hjá mér þannig að ég var allt í einu komin í svakalegt kvíðakast þarna inni í tíma í háskólanum,“ segir Ragnheiður og bætir við að hún hafi hugsaði með sér að fyrst Ásta gat skrifað um áföllin sín, þá ætti hún að geta gert það líka. Þráhyggja og meðvirkni „Mig grunaði að það að skrifa um áföllin mín gæti hjálpað mér að skilja hvað var í gangi, hvers vegna mér leið eins og mér leið og hvaðan þær tilfinningar komu. Ég tók því upp pennann og fór að skrifa. Þessi ljóð fæðast á því tímabili sem ég var að takast á við mikla áfallastreitu og flest ljóðin eru skrifuð í kvíðaköstum. Þarna er ég að reyna að skilja hvaðan þessar hugsanir koma, en partur af áfallastreitu er til dæmis skemmt samskiptamunstur, meðvirkni og þráhyggja. Með því að skrifa þessi ljóð er ég líka að reyna að koma þessu frá mér, ég þarf að geta horft á þau utan frá með smá fjarlægð. Fólk sem er ekki með áfallastreitu les kannski ljóðin og telur þau vera ást- arljóð, en fyrir mér eru þau alls ekki ástarljóð, heldur ljóð um þráhyggju og meðvirkni. Eitthvað sem maður vill losna við,“ segir Ragnheiður og bætir við að hún eigi það til að per- sónugera áföllin í ljóðunum. „Til dæmis í fyrsta ljóðinu í bók- inni sem heitir Hernám, þar er ég að persónugera krabbameinið sem réðst inn í líf mitt og umturnaði öllu. Þegar ég fékk krabbamein þá leið mér eins og einhver væri að ráðast á mig.“ Skömmin er ekki mín Í mörgum ljóðanna er fjallað um þversagnakenndar og sjúkar tilfinn- ingar sem fylgja ofbeldi, til dæmis að elska þann sem er vondur við mann. „Þegar gerandinn er einhver sem er náinn manni, einhver sem maður elskar, þá er maður miklu lengur að koma auga á skemmdina í samskiptunum. Sjálfsásökun er eitt af því sem einkennir þá sem verða fyrir ofbeldi, mér fannst allt sem ég hafði orðið fyrir vera mér að kenna. Ég hef verið að takast á við þessa skömm sem fylgir því að verða fyrir ofbeldi, ég er að reyna að hreinsa hana út og átta mig á að skömmin er ekki mín og var það aldrei,“ segir Ragnheiður og bætir við að henni hafi fundist það hjálpa sér mikið að skrifa ljóðin niður. „Ég skrifaði mig með einhverj- um hætti frá þessum tilfinningum. Að skrifa ljóðin hjálpaði mér að skilja hvað var í gangi og ég þurfti að horfa á þetta utan frá til að sjá hvar rót þessara tilfinninga væri og að áföllin sem ég hef orðið fyrir eru ekki mér að kenna. Ég varð að losna við þá til- finningu.“ Ragnheiður segir að með útgáfu ljóðabókarinnar upplifi hún sig mjög berskjaldaða. „Ljóðin eru svo opinská, ég segi frá mínum innstu tilfinningum. Ég er að opna mig og ég efaðist um hvort ég ætti að þora að gefa út þessa ljóða- bók, en það er líka hluti af geranda- meðvirkni minni, ég óttast hvaða áhrif þetta hafi á suma þá sem ljóðin eru um. Ég verð auðsæranleg með því að sýna svona inn í kvikuna, en um leið er það ákveðin leið til að ná bata.“ Hefur tekið toll af mér Eiginmaður Ragnheiðar er Raví Rawat frá Indlandi, en þau kynntust í Himalajafjöllum þegar hún var þar á háfjallanámskeiði árið 2013. „Hann stendur þétt við hlið mér og hefur stutt mig heilshugar í öllum mínum erfiðleikum. Hann gefur mér eðlilega og heilbrigða ást, en ég hef verið í samböndum sem eru alls ekki heilbrigð og það hefur stundum áhrif á samskipti okkar. Raví skilur mig og þekkir mig og hann veit að ljóðin eru aðferð mín til að tjá mig og koma ákveðnum tilfinningum og hugsunum frá mér,“ segir Ragnheiður sem er afar þakklát fyrir að vera laus við krabbameinið. „Veikindin og krabbameins- meðferðin hafar tekið rosalegan toll af mér og ég er enn að takast á við af- leiðingar, síþreytu, vefjagigt og kvíðaröskun. Ég er þakklát fyrir það góða sem kom út úr þessum veik- indum, að þau urðu til þess að ég fór að vinna í gömlu áföllunum. Í dag er ég miklu sterkari einstaklingur en ég var og sjálfsmynd mín hefur eflst mikið. Mér finnst samt erfitt að sætta mig við að hafa ekki sömu orku og ég hafði, einbeitingu og annað slíkt. Þótt ég sé viðkvæmari á einhvejrum svið- um, þá er ég sterkari í grunninn, heil- steyptari manneskja,“ segir Ragn- heiður sem ætlar að halda ótrauð áfram að skrifa og nú er hún að vinna að skáldsögu. Ekki sama manneskja og ég var „Við svona stórt áfall, að greinast með krabbamein, þá komu öll gömlu áföllin upp á yfirborðið, sem ég hafði aldrei unnið úr,“ segir Ragnheiður Guðmundsdóttir sem orti ljóð til að vinna úr erfiðum tilfinningum. Morgunblaðið/Eggert Ljóðskáld „Ég verð auðsæranleg með því að sýna svona inn í kvikuna, en um leið er það ákveðin leið til að ná bata.“ þú gerðir innrás í líkama minn lagðir undir þig hug minn sundraðir hjarta mínu reifst niður veggi og kveiktir í Hernám mig langar heim mig langar heim í hnipri í dimmu skúmaskoti með hnén í faðminum rugga ég mér fram og aftur heim – þaðan sem sál mín kemur Uppruni sálar minnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.