Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 14

Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu versl- unum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/- veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR FORNAR BORGIR Í SUÐUR OG AUSTUR EVRÓPU Saga Rómar spannar yfir 2800 ár, borg sem óx úr litlu ítölsku þorpi á 9. öld f. Krist yfir í að vera höfuðborg heimsveldis á tímum Rómverja. Í dag er Róm höfuð- borg Ítalíu, menningarleg miðstöð, stórborg á heims- vísu og er fremst í flokki þeirra borga sem þykja einna hvað fallegastar frá fornum og horfnum heimi. Þar finnur þú allt fyrir ferðamanninn. Róm er einstakur vettvangur mikillar sögu, menningar og lista er einnig borg sem iðar af fjölskrúðugu og litríku mannlífi. Sælureitur góðrar matseldar og frábærra vína með veitinga- og kaffihús á hverju horni. Stórkostlegar byggingar príða þessa glæsilegu borg sem unun er að skoða á tveimur jafnfljótum. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kasta- linn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI RÓM TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow,Varsjá, Bratislava,Wroclaw St. Pétursborg,Vínar- borg, Napolí,Mílanó og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borgarinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. STJÓRNMÁL Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Úrsagnir alþingismanna úr þing- flokkum hafa verið mun algengari á síðustu árum en ætla mætti af um- ræðum um mál Birgis Þórarinssonar að undanförnu. Sú leið sem hann fór er hins vegar einstök í þingsögunni. Þingmaður hefur ekki áður sagt sig úr flokki, sem hann var í framboði fyr- ir, nokkrum dögum eftir kosningar og áður en þing er komið saman. Þá hafa ýmsir fundið að því að málsástæður hans fyrir úrsögninni hafi ekki verið trúverðugar. Í bókinni Þingræði á Íslandi, sem nokkrir fræðimenn skrifuðu og kom út 2012, segir að úrsagnir úr þingflokkum hafi ekki verið algengar fram til um 1970. Flokkshollusta hafi verið mjög sterk lengi vel. Pólitísk vistaskipti voru þó ekki óþekkt á þessu tímabili en þau voru ætíð hluti af stærra pólitísku um- róti. Þar má minna á klofninginn í Framsóknarflokknum og stofnun Bændaflokksins 1934 og klofninginn í Alþýðuflokknum og stofnun Alþýðu- bandalagsins 1956. Dregur úr flokksaga Fram kemur að frá árinu 1969 hafi hins vegar orðið algengara að menn segðu skilið við þingflokk sinn og tengist það m.a. minni flokksaga í breyttu þjóðfélagi. Úrsagnir tengdust stundum veigamiklum pólitískum breytingum í þjóðfélaginu en því til viðbótar komu úrsagnir sem voru meira persónubundnar. Á þessu tíma- bil hefur á fjórða tug þingmanna skipt um flokka meðan þing var starfandi. Yfirlit um þessar úrsagnir fram til 2011 er að finna í áðurnefndu riti en á vef Alþingis má finna upplýsingar um þær úrsagnir sem við hafa bæst á síð- ustu árum. Tíu úrsagnir 1969 til 1989 Í tímaröð hafa úrsagnir þingmanna úr þingflokkum verið með þessum hætti frá 1969 til 2021: Í desember 1969 gengu Björn Jónsson og Hannibal Valdimarsson úr þingflokki Alþýðubandalagsins og mynduðu þingflokk Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna. Í október 1970 gekk Karl Guðjóns- son úr þingflokki Alþýðubandalagsins og starfaði utan flokka fram að þing- lokum 1971. Í desember 1972 sagði Bjarni Guðnason sig úr þingflokki Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og starfaði utan flokka fram að þinglok- um árið 1974. Í maí 1974 tilkynnti Magnús Torfi Ólafsson að hann tæki ekki þátt í störfum þingflokks Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna síðustu dag- ana fyrir þinglok. Í nóvember 1982 sagði Vilmundur Gylfason sig úr þingflokki Alþýðu- flokksins og starfaði utan flokka fram að þinglokum 1983. Í október 1984 tilkynnti Ellert B. Schram, Sjálfstæðisflokki, að hann hefði ákveðið að starfa sem óháður þingmaður en sagði sig ekki formlega úr þingflokki sjálfstæðismanna. Í október 1986 sagði Kristín Kvar- an sig úr þingflokki Bandalags jafn- aðarmanna og gekk í þingflokk Sjálf- stæðisflokksins. Vorið 1987 hætti Albert Guð- mundsson í Sjálfstæðisflokknum og stofnaði Borgaraflokkinn. Þing var ekki starfandi þá vegna alþingiskosn- inga og kom því ekki til formlegrar úrsagnar hans úr þingflokki sjálf- stæðismanna. Í apríl 1989 sögðu Ingi Björn Al- bertsson og Hreggviður Jónsson sig úr þingflokki Borgarflokksins og stofnuðu þingflokk Frjálslyndra hægrimanna. Þeir gengu í þingflokk Sjálfstæðisflokksins árið 1990. Átta vistaskipti á tíunda áratugnum Fyrsta úrsögn úr þingflokki á tí- unda áratugnum var í september 1994 þegar Jóhanna Sigurðardóttir sagði sig úr þingflokki Alþýðuflokks- ins. Hún starfaði utan flokka fram að þinglokum 1995. Í nóvember 1997 sagði Kristín Ást- geirsdóttir sig úr þingflokki Kvenna- listans og starfaði utan flokka fram til september 1998. Í september 1998 gengu Hjörleifur Guttormsson, Steingrímur J. Sigfús- son og Ögmundur Jónasson úr þing- flokki Alþýðubandalagsins og mynd- uðu nýjan þingflokk óháðra ásamt Kristínu Ástgeirsdóttur. Í október 1998 sagði Kristinn H. Gunnarsson sig úr þingflokki Alþýðu- bandalagsins. Hann gekk í þingflokk framsóknarmanna í desember 1998. Þegar þingflokkur Kvennalistans var lagður niður í febrúar 1999 gekk Kristín Halldórsdóttir, þingkona flokksins, í þingflokk óháðra. Önnur þingkona flokksins, Guðný Guð- björnsdóttir, gekk í þingflokk Sam- fylkingarinnar. Nítján úrsagnir á þessari öld Frá síðustu aldamótum hafa þing- menn 19 sinnum tilkynnt úrsagnir úr þeim flokkum sem þeir voru kjörnir fyrir. Um er að ræða 18 þingmenn og eru myndirnar á síðunni af þeim. Í mars 2003 sagði Kristján Pálsson sig úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins og starfaði utan flokka fram að þing- lokum sama ár. Í maí 2005 sagði Gunnar Örlygsson sig úr þingflokki Frjálslynda flokks- ins og gekk í þingflokk Sjálfstæðis- flokksins. Í nóvember 2006 sagði Valdimar Leó Friðriksson sig úr þingflokki Samfylkingarinnar. Hann starfaði fyrst utan þingflokka en gekk í Frjálslynda flokkinn í janúar 2007. Í febrúar 2007 sagði Kristinn H. Gunnarsson sig úr þingflokki Fram- sóknarflokksins og fór yfir í Frjáls- lynda flokkinn. Í febrúar 2009 sagði Jón Magnús- son sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins. Hann starfaði fyrst utan flokka en gekk í sama mánuði í þing- flokk Sjálfstæðisflokksins. Í febrúar 2009 tilkynnti Kristinn H. Gunnarsson um úrsögn sína úr þingflokki Frjálslynda flokksins og gekk aftur í Framsóknarflokkinn. Í mars sama ár sagði Karl V. Matt- híasson sig úr þingflokki Samfylking- arinnar og gekk í þingflokk Frjáls- lynda flokksins. Í ágúst 2009 sagði Þráinn Bertels- son sig úr þingflokki Borgarahreyf- ingarinnar. Hann starfaði fyrst utan flokka en gekk síðan í september 2010 í þingflokk Vinstri hreyfingar- innar – græns framboðs, VG. Í mars og apríl 2011 sögðu þrír þingmenn, Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, sig úr þingflokki VG og störfuðu utan flokka. Í ágúst sama ár sagði Guðmundur Steingrímsson sig úr þingflokki Framsóknarflokksins og var utan flokka. Í október 2012 sagði Róbert Mars- hall sig úr þingflokki Samfylkingar- innar og gekk til liðs við þingflokk Bjartrar framtíðar. Í janúar 2013 sagði Jón Bjarnason sig úr þingflokki VG og starfaði utan þingflokka. Í desember 2018 sögðu Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson sig úr Flokki fólksins og voru fyrst utan- flokka en gengu síðan til liðs við Mið- flokkinn. Í nóvember 2019 sagði Andrés Ingi Jónsson sig úr þingflokki VG og starfaði utan flokka en gekk síðar til liðs við Pírata. Í september 2020 fór fyrrum flokkssystir hans, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sömu leið en gekk til liðs við Samfylkinguna. Nýjasta dæmið er svo nú á dögun- um þegar Birgir Þórarinsson sagði sig úr þingflokki Miðflokksins og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Algengara hjá vinstri flokkum Eins og samantektin hér að framan sýnir eru úrsagnir úr vinstri flokkum algengari en úr mið- og hægriflokk- um. Úrsagnarmetið eiga Alþýðu- bandalagið og arftaki þess, Vinstri hreyfingin – grænt framboð. Úrsagnir úr þingflokki Alþýðubandlagsins voru sex á því tímabili sem hér er til um- fjöllunar og sex úr Vinstrihreyfing- unni – grænu framboði. Þá vekur at- hygli að einn þingmaður, Kristinn H. Gunnarsson, hefur þrívegis sagt sig úr þingflokki, fyrst úr Alþýðubandalag- inu 1998, þá úr Framsóknarflokknum 2007 og loks úr Frjáslynda flokknum 2009. Oft er talað óvirðulega um úrsagnir manna úr þingflokknum sem „flokka- flakk“. Það orð er reyndar víðtækara því fleiri en kjörnir alþingismenn færa sig á milli stjórnmálaflokka. „Flakkið“ má hins vegar telja til grundvallarréttinda í okkar lýðræð- isskipulagi. Engan má neyða til að vera í ákveðnum flokki eða fylgja honum, hvorki alþingismenn né aðra. Algengt viðkvæði er að kjörnir þing- menn sem yfirgefa flokka sína séu að svíkja kjósendur sína og skuldi þeim áframhaldandi viðveru í þingflokkn- um. Ella eigi þeir að segja af sér. En þótt þingmenn séu vissulega kosnir af flokkslistum ber að hafa í huga ákvæði 8. greinar stjórnarskrárinnar sem segir skýrt og ákveðið að alþing- ismenn séu „eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum“. Sumir hætta – öðrum vegnar vel Ekki hefur, svo kunnugt sé, verið gerð nein rannsókn á því hvernig þingmönnum sem skipta um flokka reiðir af í stjórnmálum í framhaldinu. Sé horft yfir lista úrsagnarmanna frá síðustu tveimur áratugum sést að flestir þeirra hafa hætt í pólitík og nokkrum verið hafnað í kosningum. Örfáum hefur þó gengið vel. Á ný- kjörnu þingi sitja þrír þingmenn sem upphaflega buðu sig fram fyrir aðra flokka en þeir tilheyra nú, Ásmundur Einar Daðason, Andrés Jónsson og Birgir Þórarinsson. Er þá miðað við kosningaúrslit eftir seinni talningu í Norðvesturkjördæmi. Frá fyrri tíð má nefna að Ásgeir Ásgeirsson var upphaflega í Fram- sóknarflokknum á Alþingi, gekk síð- an í Alþýðuflokkinn og ekki hindraði „flokkaflakkið“ forsetakjör hans 1952. Hannibal Valdimarsson naut líka pólitískrar velgengni þótt hann væri í þremur flokkum, fyrst Alþýðu- flokknum, síðan Alþýðubandalaginu og loks Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Sama er að segja um Ólaf Ragnar Grímsson sem ungur gekk í Framsóknarflokkinn og varð áhrifamaður þar, gekk síðan í Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna og að lokum í Alþýðubandalagið. Fyrir þann flokk var hann kosinn á þing og varð síðar formaður flokksins. Loks má nefna að Jóhanna Sigurðardóttir, sem sagði sig úr Alþýðuflokknum og stofnaði Þjóðvaka, varð forsætisráð- herra í vinstri stjórninni 2009. Úr Kvennalista í Íhaldsflokk Yfirlitið hér að framan sýnir að sjaldgæfara er að konur yfirgefi þingflokka sína en karlar. Það er þó ekki alveg marktækt því konur hafa lengst af verið mun færri á þingi en karlar. Fyrst kvenna til að setjast á þing var Ingibjörg H. Bjarnason sem bauð sig fram á vegum Kvennalist- ans eldri í landskjörinu sumarið 1922. Glæsileg stytta af henni er fyrir framan Alþingishúsið. Þar sem hún var ein kvennanna á framboðslistan- um á þingi taldist hún ekki þing- flokkur og var utanflokka í fyrstu. Snemma árs 1924 myndaði hópur al- þingismanna Íhaldsflokkinn, forvera Sjálfstæðisflokksins, og gekk Ingi- björg í þann þingflokk. Margir yfirgefið þingflokka sína - Átján þingmenn sagt sig úr þingflokki frá aldamótum - Á fjórða tug úrsagna frá 1969 - Oftast tengdarAlþýðubandalaginu og arftaka þess, VG - Einn þingmaður sagt sig úr þremur þingflokkum Gunnar Örn Örlygsson Valdimar Leó Friðriksson Kristinn H. Gunnarsson Kristján Pálsson Jón Magnússon Ásmundur Einar Daðason Andrés Ingi Jónsson Karl V. Matthíasson Karl Gauti Hjaltason Atli Gíslason Lilja Mósesdóttir Guðmundur Steingrímsson Ólafur Ísleifsson Róbert Marshall Þráinn Bertelsson Birgir Þórarinsson Rósa Björk Brynjólfsdóttir Jón Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.