Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í Evrópu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu
tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða
lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk.
Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu versl-
unum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar-
ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/-
veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGAR FORNAR BORGIR
Í SUÐUR OG AUSTUR EVRÓPU
Saga Rómar spannar yfir 2800 ár, borg sem óx úr litlu
ítölsku þorpi á 9. öld f. Krist yfir í að vera höfuðborg
heimsveldis á tímum Rómverja. Í dag er Róm höfuð-
borg Ítalíu, menningarleg miðstöð, stórborg á heims-
vísu og er fremst í flokki þeirra borga sem þykja einna
hvað fallegastar frá fornum og horfnum heimi. Þar
finnur þú allt fyrir ferðamanninn. Róm er einstakur
vettvangur mikillar sögu, menningar og lista er einnig
borg sem iðar af fjölskrúðugu og litríku mannlífi. Sælureitur góðrar matseldar og
frábærra vína með veitinga- og kaffihús á hverju horni. Stórkostlegar byggingar príða
þessa glæsilegu borg sem unun er að skoða á tveimur jafnfljótum.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast
í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu
1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kasta-
linn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli
bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er
og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
RÓM
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest, Prag
Gdansk, Krakow,Varsjá,
Bratislava,Wroclaw
St. Pétursborg,Vínar-
borg, Napolí,Mílanó
og Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli
bæjarhlutinn sá hluti borgarinnar sem mesta
aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini
lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint
aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta
miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á
heimslista UNESCO.
STJÓRNMÁL
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Úrsagnir alþingismanna úr þing-
flokkum hafa verið mun algengari á
síðustu árum en ætla mætti af um-
ræðum um mál Birgis Þórarinssonar
að undanförnu. Sú leið sem hann fór
er hins vegar einstök í þingsögunni.
Þingmaður hefur ekki áður sagt sig
úr flokki, sem hann var í framboði fyr-
ir, nokkrum dögum eftir kosningar og
áður en þing er komið saman. Þá hafa
ýmsir fundið að því að málsástæður
hans fyrir úrsögninni hafi ekki verið
trúverðugar.
Í bókinni Þingræði á Íslandi, sem
nokkrir fræðimenn skrifuðu og kom út
2012, segir að úrsagnir úr þingflokkum
hafi ekki verið algengar fram til um
1970. Flokkshollusta hafi verið mjög
sterk lengi vel. Pólitísk vistaskipti voru
þó ekki óþekkt á þessu tímabili en þau
voru ætíð hluti af stærra pólitísku um-
róti. Þar má minna á klofninginn í
Framsóknarflokknum og stofnun
Bændaflokksins 1934 og klofninginn í
Alþýðuflokknum og stofnun Alþýðu-
bandalagsins 1956.
Dregur úr flokksaga
Fram kemur að frá árinu 1969 hafi
hins vegar orðið algengara að menn
segðu skilið við þingflokk sinn og
tengist það m.a. minni flokksaga í
breyttu þjóðfélagi. Úrsagnir tengdust
stundum veigamiklum pólitískum
breytingum í þjóðfélaginu en því til
viðbótar komu úrsagnir sem voru
meira persónubundnar. Á þessu tíma-
bil hefur á fjórða tug þingmanna skipt
um flokka meðan þing var starfandi.
Yfirlit um þessar úrsagnir fram til
2011 er að finna í áðurnefndu riti en á
vef Alþingis má finna upplýsingar um
þær úrsagnir sem við hafa bæst á síð-
ustu árum.
Tíu úrsagnir 1969 til 1989
Í tímaröð hafa úrsagnir þingmanna
úr þingflokkum verið með þessum
hætti frá 1969 til 2021:
Í desember 1969 gengu Björn
Jónsson og Hannibal Valdimarsson
úr þingflokki Alþýðubandalagsins og
mynduðu þingflokk Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna.
Í október 1970 gekk Karl Guðjóns-
son úr þingflokki Alþýðubandalagsins
og starfaði utan flokka fram að þing-
lokum 1971.
Í desember 1972 sagði Bjarni
Guðnason sig úr þingflokki Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna og
starfaði utan flokka fram að þinglok-
um árið 1974.
Í maí 1974 tilkynnti Magnús Torfi
Ólafsson að hann tæki ekki þátt í
störfum þingflokks Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna síðustu dag-
ana fyrir þinglok.
Í nóvember 1982 sagði Vilmundur
Gylfason sig úr þingflokki Alþýðu-
flokksins og starfaði utan flokka fram
að þinglokum 1983.
Í október 1984 tilkynnti Ellert B.
Schram, Sjálfstæðisflokki, að hann
hefði ákveðið að starfa sem óháður
þingmaður en sagði sig ekki formlega
úr þingflokki sjálfstæðismanna.
Í október 1986 sagði Kristín Kvar-
an sig úr þingflokki Bandalags jafn-
aðarmanna og gekk í þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins.
Vorið 1987 hætti Albert Guð-
mundsson í Sjálfstæðisflokknum og
stofnaði Borgaraflokkinn. Þing var
ekki starfandi þá vegna alþingiskosn-
inga og kom því ekki til formlegrar
úrsagnar hans úr þingflokki sjálf-
stæðismanna.
Í apríl 1989 sögðu Ingi Björn Al-
bertsson og Hreggviður Jónsson sig
úr þingflokki Borgarflokksins og
stofnuðu þingflokk Frjálslyndra
hægrimanna. Þeir gengu í þingflokk
Sjálfstæðisflokksins árið 1990.
Átta vistaskipti
á tíunda áratugnum
Fyrsta úrsögn úr þingflokki á tí-
unda áratugnum var í september
1994 þegar Jóhanna Sigurðardóttir
sagði sig úr þingflokki Alþýðuflokks-
ins. Hún starfaði utan flokka fram að
þinglokum 1995.
Í nóvember 1997 sagði Kristín Ást-
geirsdóttir sig úr þingflokki Kvenna-
listans og starfaði utan flokka fram til
september 1998.
Í september 1998 gengu Hjörleifur
Guttormsson, Steingrímur J. Sigfús-
son og Ögmundur Jónasson úr þing-
flokki Alþýðubandalagsins og mynd-
uðu nýjan þingflokk óháðra ásamt
Kristínu Ástgeirsdóttur.
Í október 1998 sagði Kristinn H.
Gunnarsson sig úr þingflokki Alþýðu-
bandalagsins. Hann gekk í þingflokk
framsóknarmanna í desember 1998.
Þegar þingflokkur Kvennalistans
var lagður niður í febrúar 1999 gekk
Kristín Halldórsdóttir, þingkona
flokksins, í þingflokk óháðra. Önnur
þingkona flokksins, Guðný Guð-
björnsdóttir, gekk í þingflokk Sam-
fylkingarinnar.
Nítján úrsagnir á þessari öld
Frá síðustu aldamótum hafa þing-
menn 19 sinnum tilkynnt úrsagnir úr
þeim flokkum sem þeir voru kjörnir
fyrir. Um er að ræða 18 þingmenn og
eru myndirnar á síðunni af þeim.
Í mars 2003 sagði Kristján Pálsson
sig úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins
og starfaði utan flokka fram að þing-
lokum sama ár.
Í maí 2005 sagði Gunnar Örlygsson
sig úr þingflokki Frjálslynda flokks-
ins og gekk í þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins.
Í nóvember 2006 sagði Valdimar
Leó Friðriksson sig úr þingflokki
Samfylkingarinnar. Hann starfaði
fyrst utan þingflokka en gekk í
Frjálslynda flokkinn í janúar 2007.
Í febrúar 2007 sagði Kristinn H.
Gunnarsson sig úr þingflokki Fram-
sóknarflokksins og fór yfir í Frjáls-
lynda flokkinn.
Í febrúar 2009 sagði Jón Magnús-
son sig úr þingflokki Frjálslynda
flokksins. Hann starfaði fyrst utan
flokka en gekk í sama mánuði í þing-
flokk Sjálfstæðisflokksins.
Í febrúar 2009 tilkynnti Kristinn
H. Gunnarsson um úrsögn sína úr
þingflokki Frjálslynda flokksins og
gekk aftur í Framsóknarflokkinn.
Í mars sama ár sagði Karl V. Matt-
híasson sig úr þingflokki Samfylking-
arinnar og gekk í þingflokk Frjáls-
lynda flokksins.
Í ágúst 2009 sagði Þráinn Bertels-
son sig úr þingflokki Borgarahreyf-
ingarinnar. Hann starfaði fyrst utan
flokka en gekk síðan í september
2010 í þingflokk Vinstri hreyfingar-
innar – græns framboðs, VG.
Í mars og apríl 2011 sögðu þrír
þingmenn, Atli Gíslason, Ásmundur
Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir,
sig úr þingflokki VG og störfuðu utan
flokka.
Í ágúst sama ár sagði Guðmundur
Steingrímsson sig úr þingflokki
Framsóknarflokksins og var utan
flokka.
Í október 2012 sagði Róbert Mars-
hall sig úr þingflokki Samfylkingar-
innar og gekk til liðs við þingflokk
Bjartrar framtíðar.
Í janúar 2013 sagði Jón Bjarnason
sig úr þingflokki VG og starfaði utan
þingflokka.
Í desember 2018 sögðu Karl Gauti
Hjaltason og Ólafur Ísleifsson sig úr
Flokki fólksins og voru fyrst utan-
flokka en gengu síðan til liðs við Mið-
flokkinn.
Í nóvember 2019 sagði Andrés Ingi
Jónsson sig úr þingflokki VG og
starfaði utan flokka en gekk síðar til
liðs við Pírata. Í september 2020 fór
fyrrum flokkssystir hans, Rósa Björk
Brynjólfsdóttir, sömu leið en gekk til
liðs við Samfylkinguna.
Nýjasta dæmið er svo nú á dögun-
um þegar Birgir Þórarinsson sagði
sig úr þingflokki Miðflokksins og
gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Algengara hjá vinstri flokkum
Eins og samantektin hér að framan
sýnir eru úrsagnir úr vinstri flokkum
algengari en úr mið- og hægriflokk-
um. Úrsagnarmetið eiga Alþýðu-
bandalagið og arftaki þess, Vinstri
hreyfingin – grænt framboð. Úrsagnir
úr þingflokki Alþýðubandlagsins voru
sex á því tímabili sem hér er til um-
fjöllunar og sex úr Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði. Þá vekur at-
hygli að einn þingmaður, Kristinn H.
Gunnarsson, hefur þrívegis sagt sig úr
þingflokki, fyrst úr Alþýðubandalag-
inu 1998, þá úr Framsóknarflokknum
2007 og loks úr Frjáslynda flokknum
2009.
Oft er talað óvirðulega um úrsagnir
manna úr þingflokknum sem „flokka-
flakk“. Það orð er reyndar víðtækara
því fleiri en kjörnir alþingismenn
færa sig á milli stjórnmálaflokka.
„Flakkið“ má hins vegar telja til
grundvallarréttinda í okkar lýðræð-
isskipulagi. Engan má neyða til að
vera í ákveðnum flokki eða fylgja
honum, hvorki alþingismenn né aðra.
Algengt viðkvæði er að kjörnir þing-
menn sem yfirgefa flokka sína séu að
svíkja kjósendur sína og skuldi þeim
áframhaldandi viðveru í þingflokkn-
um. Ella eigi þeir að segja af sér. En
þótt þingmenn séu vissulega kosnir af
flokkslistum ber að hafa í huga
ákvæði 8. greinar stjórnarskrárinnar
sem segir skýrt og ákveðið að alþing-
ismenn séu „eingöngu bundnir við
sannfæringu sína og eigi við neinar
reglur frá kjósendum sínum“.
Sumir hætta –
öðrum vegnar vel
Ekki hefur, svo kunnugt sé, verið
gerð nein rannsókn á því hvernig
þingmönnum sem skipta um flokka
reiðir af í stjórnmálum í framhaldinu.
Sé horft yfir lista úrsagnarmanna frá
síðustu tveimur áratugum sést að
flestir þeirra hafa hætt í pólitík og
nokkrum verið hafnað í kosningum.
Örfáum hefur þó gengið vel. Á ný-
kjörnu þingi sitja þrír þingmenn sem
upphaflega buðu sig fram fyrir aðra
flokka en þeir tilheyra nú, Ásmundur
Einar Daðason, Andrés Jónsson og
Birgir Þórarinsson. Er þá miðað við
kosningaúrslit eftir seinni talningu í
Norðvesturkjördæmi.
Frá fyrri tíð má nefna að Ásgeir
Ásgeirsson var upphaflega í Fram-
sóknarflokknum á Alþingi, gekk síð-
an í Alþýðuflokkinn og ekki hindraði
„flokkaflakkið“ forsetakjör hans
1952. Hannibal Valdimarsson naut
líka pólitískrar velgengni þótt hann
væri í þremur flokkum, fyrst Alþýðu-
flokknum, síðan Alþýðubandalaginu
og loks Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna. Sama er að segja um
Ólaf Ragnar Grímsson sem ungur
gekk í Framsóknarflokkinn og varð
áhrifamaður þar, gekk síðan í Sam-
tök frjálslyndra og vinstri manna og
að lokum í Alþýðubandalagið. Fyrir
þann flokk var hann kosinn á þing og
varð síðar formaður flokksins. Loks
má nefna að Jóhanna Sigurðardóttir,
sem sagði sig úr Alþýðuflokknum og
stofnaði Þjóðvaka, varð forsætisráð-
herra í vinstri stjórninni 2009.
Úr Kvennalista í Íhaldsflokk
Yfirlitið hér að framan sýnir að
sjaldgæfara er að konur yfirgefi
þingflokka sína en karlar. Það er þó
ekki alveg marktækt því konur hafa
lengst af verið mun færri á þingi en
karlar. Fyrst kvenna til að setjast á
þing var Ingibjörg H. Bjarnason sem
bauð sig fram á vegum Kvennalist-
ans eldri í landskjörinu sumarið 1922.
Glæsileg stytta af henni er fyrir
framan Alþingishúsið. Þar sem hún
var ein kvennanna á framboðslistan-
um á þingi taldist hún ekki þing-
flokkur og var utanflokka í fyrstu.
Snemma árs 1924 myndaði hópur al-
þingismanna Íhaldsflokkinn, forvera
Sjálfstæðisflokksins, og gekk Ingi-
björg í þann þingflokk.
Margir yfirgefið þingflokka sína
- Átján þingmenn sagt sig úr þingflokki frá aldamótum - Á fjórða tug úrsagna frá 1969 - Oftast
tengdarAlþýðubandalaginu og arftaka þess, VG - Einn þingmaður sagt sig úr þremur þingflokkum
Gunnar Örn
Örlygsson
Valdimar Leó
Friðriksson
Kristinn H.
Gunnarsson
Kristján
Pálsson
Jón
Magnússon
Ásmundur Einar
Daðason
Andrés Ingi
Jónsson
Karl V.
Matthíasson
Karl Gauti
Hjaltason
Atli
Gíslason
Lilja
Mósesdóttir
Guðmundur
Steingrímsson
Ólafur
Ísleifsson
Róbert
Marshall
Þráinn
Bertelsson
Birgir
Þórarinsson
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
Jón
Bjarnason