Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 16
VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Arnaldur Indriðason hefur í aldar- fjórðung haft þann vana að senda frá sér nýja bók hinn 1. nóvember. Hann heldur uppteknum hætti í ár en nú ber svo við að lesendur fá ekki glæpasögu frá meistaranum sjálf- um. Að þessu sinni verður enginn Konráð og þaðan af síður Erlendur. Arnaldur slær alveg nýjan tón í skrifum sínum og sendir frá sér sögulega skáldsögu. Skáldsagan nefnist Sigurverkið og gerist hún á sunnanverðum Vest- fjörðum og í Kaupmannahöfn á 18. öld. Henni er lýst sem margslung- inni og harmrænni frásögn, „sem lýsir á áhrifaríkan hátt beiskum ör- lögum alþýðufólks og valdinu sem það er undirselt,“ eins og það er orð- að í káputexta bókarinnar. Í Sigurverkinu segir af íslenskum úrsmið sem situr í höll Danakon- ungs og gerir upp forna glæsi- klukku. „Kvöld eitt rekst sjálfur ein- valdurinn, Kristján sjöundi, inn til hans; að nafninu til enn höfuð rík- isins en þykir ekki með öllum mjalla og hefur verið ýtt til hliðar af syni sínum og hirð. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyr- ir hátigninni dapurlega sögu föður síns og fóstru sem tekin voru af lífi að skipan fyrri konungs, föður Kristjáns,“ segir í kynningu. Arnaldur er fyrst spurður um þau tímamót að hann hvíli glæpasagna- formið, enda verða nú nokkur tíð- indi að teljast í því eftir að hafa skrifað 24 slíkar á jafnmörgum ár- um. Nýr vettvangur höfundar – Hefur þessi bók verið lengi í undirbúningi eða gerjun? Er ein- hver sérstök ástæða fyrir að því að þú berð niður á 18. öldinni? „Alls ekki. Þetta var saga sem kom til mín mjög skyndilega. Ég fékk hugmyndina að bókinni í fyrra- sumar og settist strax niður við skrifin og lauk þeim nokkurn veginn á sex mánuðum,“ segir höfundurinn. „Hinir sannsögulegu atburðir gerast á átjándu öld og þá var bara að hverfa þangað með hjálp sagn- fræðinnar. Mér fannst mjög gaman og áhugavert að skrifa um átjándu öldina vegna þess að það er auðvitað nýr vettvangur fyrir mig sem rithöf- und en líka áhugaverður og kannski nýr vettvangur fyrir íslenskar bók- menntir samtímans.“ Saga Jóns Sívertsen úrsmiðs – Í káputexta er vísað til að bókin sé að hluta til byggð á raunveruleg- um atburðum. Eru það þekktir at- burðir eða alþýðusögur sem þú hef- ur grafið upp? „Nei, þetta eru ekki þekktir at- burðir, nema þá fólki vestur við Breiðafjörð. Ég rakst á frásögn í Árbók Ferðafélagsins um Rauða- sandshrepp hinn forna sem rakti ansi merkilegt dómsmál þar á svæð- inu um miðja átjándu öldina. Ég kannaðist við eitt nafnið í frásögn- inni en það er Jón Sívertsen úrsmið- ur í Kaupmannahöfn. Björn Th. Björnsson listfræðingur hafði sagt lítillega frá honum í bók sinni um Ís- lendinga í Kaupmannahöfn og hvernig hann var talinn hafa gert við mikið listrænt úrverk í eigu danska konungsins. Ég fékk þá hug- mynd að slá saman frásögn af mála- ferlunum við Breiðafjörðinn og sögu úrsmiðsins í Kaupmannahöfn og við- skiptum hans við kónginn Kristján sjöunda, sem þótti töluvert galinn á sinni tíð en með þeim tekst svolítið sérstakt samband. Fyrst og fremst er þetta skáld- skapur og sagan lýtur að öllu leyti lögmálum skáldskaparins.“ Vill koma sjálfum sér á óvart – Þú sagðir í við- tali við Morgun- blaðið fyrir ári að þú myndir halda áfram meðan þú gætir komið sjálfum þér á óvart við skrifin. Manni sýnist að þetta skref sé í fullu samræmi við það … og jafnvel kannski meðvitað í ljósi þess að þetta er bók númer 25? Það eru nú talsverð tímamót og kannski eðlilegt að menn staldri við … „Það er rétt. Þetta er í fullu sam- ræmi við þessa þrá rithöfundar að koma sjálfum sér á óvart. Þó er þetta kannski ekki svo stórt hliðar- skref þegar á allt er litið. Ég tel mig raunar alltaf hafa verið að skrifa sögur af þessu tagi, þótt form og sögusvið sé ólíkt í þessu tilviki. Sög- ur um lítilmagnann og varnarleysi hans. Það er hreinasta til- viljun að Sigur- verkið er bók númer 25, sem ég hef ekki hugleitt neitt sér- staklega en er auð- vitað allnokkur áfangi.“ Konráð snýr aftur á næsta ári Arnaldur kveðst ekki geta sagt til um það hvað framtíðin beri í skauti sér á rit- höfundarferli hans, hvort von sé á fleiri sögulegum skáldsögum og þá hve- nær. „Ekki í bili að minnsta kosti en það er aldrei að vita. Konráð, heldur broguð sögupersóna síðustu bóka minna, verður í fullu fjöri um þar- næstu jól get ég lofað.“ Saga sem kom til mín mjög skyndilega - Arnaldur Indriðason sendir frá sér sögulega skáldsögu - Hvílir glæpasagnaformið í fyrsta sinn - Sigurverkið gerist á 18. öld á Vestfjörðum og í Kaupmannahöfn - Vill koma sjálfum sér á óvart Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýr tónn Arnaldur Indriðason rithöfundur sendir frá sér sína 25. skáldsögu. Sigurverkið er þó fyrsta bók hans sem ekki er glæpasaga. 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel Sími 555 3100 www.donna.is Góð á erlendum ferðalögum, í flugvélum og á flugvöllum 10 stk. verð kr. 720 C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 DÚNALOGN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.