Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Kosta Ríka fann skellinn sem allar þjóðir, sem reiða sig á komu ferðamanna, fundu þegar heimsfaraldurinn skall á. Stuttu eftir að fyrsta tilfellið greindist í Kosta Ríka hinn 18. mars í fyrra var landamærum landsins lokað. Í ágúst var ferðamönnum hleypt aftur inn í landið og í nóvember þurftu ferðamenn ekki einu sinni að framvísa neikvæðu PCR-prófi við komuna til landsins. Seguro Sancho segir að prófin hafi hægt á uppbyggingu í kjölfar faraldursins og var ávinningur af notkun þeirra minni en ávinn- ingur af komu ferðamanna. Krafa um grímu- notkun, handþvott og fjarlægðarmörk hafi vald- ið því að smittíðni meðal farþega á leið frá Kosta Ríka var undir 0,5%. Ráðherrann þakkar samstilltu átaki íbúa landsins og ferðamanna um að gæta vel að sóttvörnum. Alls hefur 21 flugfélag af 27 sem vöndu komur sínar til Kosta Ríka hafið áætlunarflug á ný. Seguro Sancho segist gera ráð fyrir að ferðaþjónustan þar í landi verði komin á fyrra skrið strax árið 2023 og vel á veg strax á næsta ári. Opnuðu fyrr og allt gekk vel KOSTA RÍKA HRISTI FARALDURINN AF SÉR SNEMMA VIÐTAL Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Ferðamannaiðnaðurinn í Kosta Ríka er vel skipulagður og hæfilega mið- stýrður, án þess þó að einkaaðilum sé settur stóllinn fyrir dyrnar. Gust- avo Seguro Sancho ferðamálaráð- herra landsins segir að með hæfi- legri miðstýringu og yfirvegaðri stjórnsýslu megi nýta ferðamanna- iðnaðinn sem auðlind fyrir alla íbúa landsins, óháð því hvar þeir búa. Árið 1948 tók Kosta Ríka þá af- drifaríku ákvörðun að losa sig við herafla sinn og nýta útgjöldin í að byggja upp innviði. Í stað herafla kom sterkt velferðarkerfi og þétt net þjóðgarða, sem þekja nú um 26% flatarmáls landsins. Seguro Sancho segir að með þessu hafi grunnurinn að velgengni ferðaþjónustu þar í landi verið lagður – velgengni sem byggð er á sterkum innviðum, háu menntunarstigi og miklum almanna- gæðum í formi þjóðgarða og ríkrar tilhneigingar íbúa til umhverfis- verndunar. Hóflegur vöxtur Seguro Sancho segir að ferðaþjón- usta í Kosta Ríka hafi ætíð verið talin til auðlinda og tækis til þess að auka félagslegan hreyfanleika og bæta lífskjör í landinu. Hann segir að komur ferðamanna til landsins hafi aukist um 5% að jafnaði á ári frá árinu 1991 til ársins 2019. Árið 1998 tók Kosta Ríka í fyrsta sinn á móti milljón ferðamönnum á ársgrund- velli og fyrir faraldurinn fór talan hæst í 3,1 milljón. Í Kosta Ríka búa rösklega fimm milljónir manna og eru ferðamenn þar því töluvert færri en íbúar, ólíkt því sem gerist hér á landi, þar sem komufarþegar á ári hverju eru margfalt fleiri en íbúar. Seguro Sancho segir enda að íbú- um Kosta Ríka hafi verið mikið hjartans mál að ganga ekki fram af náttúruauðlindum, náttúruperlum og vinsælum ferðamannastöðum, sem er einmitt það sem landið státar helst af. Raunar eru sjálfbærni og umhverfisvitund lykilorð í stefnu stjórnvalda þar í landi á sviði ferða- mála. Hann segir enn fremur að mikil- vægt sé að ganga ekki fram af nátt- úrunni, í landi þar sem ferðamenn koma helst til þess að heimskja nátt- úruperlur. Þannig segir hann að stjórnvöld hefðu aðallega beitt sér í því að koma upp regluverki þar um, til þess að gæta þess að ferðamanna- iðnaður Kosta Ríka yxi jafnt og þétt. Samstarf ríkis og einkageira „Okkur var það alveg ljóst í upp- hafi að við yrðum að setja strangt regluverk til þess að vöxturinn yrði hóflegur, af því þegar ferðaþjónusta miðast út frá náttúrufegurð og nátt- úruperlum, þá er ekki boðlegt að hafa mikinn troðning. Ef ekki, þá eyðileggjast náttúruperlurnar,“ seg- ir Seguro Sancho við Mogunblaðið og bætir við: „Auðvitað hefur þetta þó verið samstarf [hins opinbera og einkaaðila] sem ráðið hefur för síð- ustu þrjá áratugi eða svo. Við erum að sjálfsgöðu jákvæð í garð upp- byggingar og erlendrar fjárfestingar en reglurnar eru alveg skýrar.“ Ráðherrann útskýrir enn fremur að regluverkið miðist aðallega út frá skýru deiliskipulagi og regluverki um nýbyggingar, græn svæði njóta verndar og ekki má ganga of nærri náttúrunni og lífríkinu. „Þannig vinna allir. Lífríkið vinn- ur, sem þýðir að jörðin öll vinnur, íbúar landsins vinna og ferðamenn- irnir vinna.“ Höfða til síns hóps Seguro Sancho segir einnig að markaðssetning á sviði ferðaþjón- ustu sé mjög hnitmiðuð. Kosta Ríka vill helst fá til sín vel menntaða og vel stæða ferðamenn. Meðalfjöldi gistinátta á hvern komufarþega í Kosta Ríka er um 12 en meðalfjöldi gistnátta í samkeppnisþjóðum er um fimm nætur. „Við viljum ekki, eins og aðrir, fá til okkar ógrynni ferðamanna sem koma í stuttan tíma bara til þess að sötra á piña colada,“ segir ráð- herrann og hlær. Þannig reyna stjórnvöld í Kosta Ríka að fá til sín ferðamenn sem dvelja lengur, eyða meiru og njóta náttúrunnar sem landið hefur upp á að bjóða. Eins og Seguro Sancho út- skýrir leitast stjórnvöld ekki við að laga landið að ákveðnum markaði ferðamanna, heldur stíla þau inn á ferðamenn, sem þau telja að passi við Kosta Ríka. Hann segir að Kosta Ríka líti á sjálft sig sem gæðavöru í ferðamannaiðnaðinum og gæðavöru auglýsi maður ekki til hvers sem er. Ísland finni sinn markað Spurður um hvaða ráð hann myndi gefa Íslandi, sem enn er á ákveðnu þroskastigi hvað ferðaþjón- ustu varðar, bendir Seguro Sancho á að það verði að vera fyrir hendi framtíðarhugsun. Ef aðeins er verið að hugsa um vöxt brenni greinin út. „Auðvitað er krafa um vöxt og auðvitað verður einhver vöxtur að verða, en það verður að liggja fyrir þjóðarsátt um hversu langt eigi að ganga í þeim efnum,“ segir Seguro Sancho og bætir við: „Það eru til alls konar módel, við erum með okkar módel sem snýst um að ferðaþjón- ustan sé tól til þess að vernda náttúr- una og til þess að bæta lífskjör. Það leiðir að því að bæði náttúran og vel- ferð íbúanna hérna biðu þess ekki bætur ef við hleyptum inn gríðarleg- um fjölda ferðamanna án þess að spá neitt frekar í það.“ Ferðaþjónustan álitin auðlind - Hæfileg miðstýring og hæfilegur vöxtur leyfir ferðaþjónustunni í Kosta Ríka að dafna - Ferðamála- ráðherra landsins segir að einkaframtaki sé fagnað en reglur séu skýrar - Hnitmiðuð markaðssetning Kosta Ríka Gustavo Segura ferðamálaráðherra segir að hóflegur vöxtur sé lykillinn að sjálfbærri ferðaþjónustu. Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. * Tökum aðeins 1 bíl uppí hvern nýlegan notaðan bíl. Toyota Yaris Live ‘19, beinskiptur, ekinn 51 þús. km. Verð: 1.990.000 kr. Opel Insignia Cosmo ‘15, sjálfskiptur, ekinn 78 þús.km. Verð: 2.690.000 kr. Opel Crossland X Enjoy ‘18, sjálfskiptur, ekinn 27 þús. km. Verð: 2.550.000 kr. 591699 591774 800443 Gott úrval notaðra bíla Einnig tökum við gamla bílinn uppí valda bíla fyrir 500.000 kr.* SsangYongKorandoDlx ‘18, beinskiptur, ekinn 42þús. km. Verð: 3.390.000 kr. 445801 4 x4 Grímuskylda á ströndinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.