Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Sápudæla
Glær 18 cm.
Hilla Blk 80x30x180 cm.
Kertastj.CIRCLE 30 cm.
Bekkur Flauel 100x50x42 cm.
Speglabakki 35 cm. Gold
Glerborðasett 45x45x50 cm.
Þurrkuð strá
Krókódílastjaki
Gull 18 cm.
Krókódílastjaki
Svartur 18 cm.
Speglasett
25/30x90/100 cm.
Ilmolíuglös 100 ml
Leopard svartur 32 cm.
Lampi Tiger
32x48x17 cm.
Að undanförnu hefur verið unnið að
hönnun Káratorgs sem er á mótum
Frakkastígs, Njálsgötu og Kára-
stígs á Skólavörðuholti.
Deild borgarhönnunar hjá um-
hverfis- og skipulagssviði Reykja-
víkurborgar hefur unnið að hönn-
uninni ásamt ráðgjöfum Land-
mótunar.
„Káratorg fær nýja ásýnd sem
notendavænt, fallegt og gróðursælt
hverfistorg fyrir alla aldurshópa
með sérstakri áherslu á yngstu
börnin,“ segir í frétt frá borginni.
Káratorg var einu sinni lagt undir
bílastæði en hefur verið svokallað
Torg í biðstöðu-verkefni frá árinu
2014. „Í gegnum það verkefni hefur
torgið sannað sig sem mikilvægt
hverfistorg fyrir íbúa og gesti mið-
borgarinnar og hefur nýting þess
aukist ár frá ári,“ segir í fréttinni.
Kaffihús, bakarí og verslanir eru
þar og stutt í Hallgrímskirkju.
Verkhönnun fer fram í vetur en þá
verður kafað dýpra í hönnun torgs-
ins hvað varðar hæðarlegu, halla,
lagnir, götugögn, gróður og yfir-
borðsefni. Við lok hennar getur
framkvæmd hafist. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Nýtt útlit Káratorg stendur á sólríkum stað og hefur notið mikilla vinsælda.
Káratorgi breytt
- Unnið er að hönnun torgsins
- Framkvæmdir hefjast næsta ár
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Rangárþing ytra hefur lagt fram
matsáætlun til Skipulagsstofnunar
vegna umhverfismats nýrrar þjón-
ustumiðstöðvar í Landmannalaug-
um. Nú er meginþjónustukjarninn
undir Laugahrauni en meginþungi
þjónustunnar verður færður norður
fyrir Námshraun og dagaðstaða
norður fyrir Námskvísl. Samkvæmt
ákvörðun Skipulagsstofnunar í
febrúar 2018 er
framkvæmdin
háð mati á um-
hverfisáhrifum.
Landmannalaug-
ar eru innan
Friðlandsins að
Fjallabaki og eru
einn vinsælasti
ferðamannastað-
urinn á hálendi
Íslands.
Ágúst Sigurðs-
son, sveitarstjóri í Rangárþingi
ytra, segir að ferlið að breytingum
á skipulagi í Landmannalaugum
hafi tekið 6-7 ár, en nú sjái vonandi
fyrir endann á því. Á síðustu árum
hafi sveitarfélagið meðal annars
staðið fyrir samkeppni um skipulag
Landmannalauga og í kjölfarið unn-
ið deiliskipulag sem hafi tekið gildi
með fyrirvara um umhverfismat.
Nú sé matsáætlun komin til Skipu-
lagsstofnunar og á þeim grunni
ætti umhverfismat að liggja fyrir á
næsta ári í kjölfar athugasemda og
úrvinnslu. Umsjón með matsvinnu
er í höndum Landmótunar sf.
Í þágu náttúruperlunnar
Ágúst segir að ef allt gangi eftir
verði vonandi hægt að byrja fram-
kvæmdir á nýju svæði næsta haust.
Sveitarfélagið hafi útvegað fjár-
magn til að fara í gerð bílastæða,
sem verði fyrsta verkefnið þar.
Hann segir að ferlið sem tengist
skipulagsmálunum sé flókið og
kostnaðarsamt og leitað hafi verið
til færustu sérfræðinga.
Reynt hafi verið að fara eftir
bókinni í einu og öllu og skilyrðum
fylgt til hins ýtrasta í þágu náttúru-
perlunnar í Landmannalaugum. Á
svæði eins og í Landmannalaugum
sé brýnt að vanda til verka. Varð-
andi kostnað við skipulagsvinnuna
segir Ágúst að styrkur hafi fengist
til hennar, en eigi að síður lendi
talsverður kostnaður á sveitarfé-
laginu.
Mikil uppbygging
Áætlað er að flatarmál svæðis
sem fari undir ný mannvirki, það er
byggingar, palla, skýli, brýr, timb-
urstíga o.fl., verði alls 4.900 fer-
metrar. Móttökuhús á uppbyggðum
bakka við Jökulgilskvísl á að þjóna
gestum friðlandsins, sem og rann-
sóknaraðilum og starfsmönnum.
Þar verður veitingasalur, eldhús,
snyrtingar, upplýsingaþjónusta,
verslun með minniháttar viðlegu-
búnaði, fræðslu- og kynningasalur,
dagaðstaða fyrir landverði og rann-
sóknaraðila og kaffistofa/hvíldar-
rými.
Við Námshraun er gert ráð fyrir
sex gestaskálum með svefnaðstöðu
fyrir 16-20 manns í hverjum skála
og fjórum starfsmannaskálum sem
hver rúmar 4-10 manns. Þar er
áætlað að gerð verði manngerð
laug og við Námshraun verði enn-
fremur tjaldsvæði fyrir a.m.k. 150
tjöld og 50 húsbíla, hestagerði og
hestaskýli. Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir fela í sér nokkra varnar-
garða og rofvarnir fyrir Jökul-
gilskvísl og Námskvísl.
Flest mannvirki fjarlægð
af svæðinu við Laugahraun
Samfara uppbyggingu nýs tjald-
svæðis og gistiaðstöðu norðan við
Námshraun verða gerðar breyt-
ingar á aðstöðu við skála Ferða-
félags Íslands við Laugahraun, en
skálinn er um 242 fermetrar og þar
er gistipláss fyrir 78 gesti. Við skál-
ann er gert ráð fyrir afmörkuðu
tjaldsvæði fyrir gönguhópa, þó
aldrei fyrir fleiri en 30 hefðbundin
viðlegutjöld. Öll önnur mannvirki
en skáli Ferðafélags Íslands skulu
fjarlægð af svæðinu við Lauga-
hraun, þ.e. hreinlætisaðstaða, hest-
hús, starfsmannahús, aðstaða há-
lendisvaktar og hestaleigu sem og
önnur tímabundin aðstaða.
Með matsáætlun sem nú hefur
verið lögð fram fylgja ábendingar
og athugasemdir við drög að tillögu
að matsáætlun og viðbrögð við
þeim. Brugðist hefur verið við ýms-
um athugasemdum, en sagt að aðr-
ar verði teknar til skoðunar við
gerð umhverfismatsskýrslu.
Farsælla að laga eldra svæði
Í athugasemdum frá Ferðafélagi
Íslands er bent á að fyrirhugaðar
breytingar á þjónustusvæði kunni
að stofna mikilvægum hagsmunum
FÍ í voða. Félagið áskilur sér rétt
til bóta vegna mögulegs eignar-
náms eða íþyngjandi skipulags-
ákvæða. Þessum atriðum er ekki
svarað í matsáætlun.
„FÍ er enn þeirrar skoðunar að
farsælla hefði verið að vinna með
lagfæringar á núverandi svæði en
að hefja nýtt landnám og uppbygg-
ingu á nýju þjónustusvæði norðan
Námshrauns, hefði verið einfaldara,
fljótlegra, hagkvæmara og haft í för
með sér mun minna rask,“ segir í
athugasemdum FÍ.
Ennfremur telur Ferðafélag Ís-
lands að spurningum varðandi
kostnað við uppbyggingu sé ósvar-
að og bendir á að rekstrarlegar for-
sendur í Laugum takmarkist við
3-4 mánuði á ári. Ef til lengingar
tímabilsins eigi að koma þurfi að
bæta samgöngur sem auki álag á
svæðið.
Um þessi atriði segir Ágúst
sveitarstjóri að hann telji ekki að
gengið verði á hlut Ferðafélagsins
með breytingunum og skáli félags-
ins fái að standa undir Lauga-
hrauni. Samskiptin við Ferðafélagið
hafi að mörgu leyti verið með ágæt-
um.
Vilja hefja vinnu á nýju svæði að ári
- Flókið og kostnaðarsamt skipulagsferli í Landmannalaugum - Rangárþing ytra leggur fram
matsáætlun - Þjónustumiðstöðin verður flutt úr Laugahrauni - Byrjað verður á bílastæðum
Tölvumynd/VA-Arkitektar
Við Námshraun Dæmi um mögulegt útlit þjónustuhúss við manngerða laug.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Friðland að Fjallabaki Svæðið undir Laugahrauni og skáli Ferðafélagsins.
Ágúst
Sigurðsson
Landmannalaugar
Lo
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Námshraun
Laugar
Norðurbarmur
Laugahraun
Jö
ku
lgi
lsk
vís
l
Námskvísl