Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 32

Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 32
32 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 14.995.- / St. 21-30 Vnr.: E-73359151052 14.995.- / St. 21-30 Vnr.: E-73359152132 ECCO BARNASKÓR VANDAÐIR OG HLÝIR GORE-TEX KULDASKÓR 12.995.- / St. 20-26 5 litir / Vnr.: E-764801 12.995.- / St. 20-26 5 litir / Vnr.: E-764801 KRINGLAN - SKÓR.IS KRINGLAN - SKÓR.IS STEINAR WAAGE Fjarðaáls við Landsvirkjun – stærsti samningur Landsvirkjunar – er tengdur álverði og samningur Landsvirkjunar við Norðurál var tengdur álverði til 2020 en þaðan í frá tengdur Nord Pool, norrænu kauphöllinni með raforku. Samning- ur Rio Tinto á Íslandi við Lands- virkjun var á föstu verði sem var tengt við verðlagsvísitölu Banda- ríkjanna árin 2010 til 2020 en samn- ingurinn var svo endurskoðaður. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, staðfesti við Morgunblaðið á dögunum að hækk- andi álverð myndi auka tekjurnar um milljarða í ár, ef álverð helst hátt. Samningar Landsvirkjunar væru að hluta tengdir álverði og þá sér- staklega við Alcoa en að litlu leyti við Rio Tinto. Hærra álverð þýddi því hærra raforkuverð. Álið kostar nú um 3.100 dali tonnið í Kauphöllinni með málma í London og lætur nærri að meðalverðið í ár sé 700 dölum hærra á tonnið en í fyrra. Stefnir raunar í hæsta meðalverðið frá árinu 2011 en leita þarf aftur til 2008 til að finna dæmi um jafn hátt verð á áli og um þessar mundir. Gerir ráð fyrir meiri orkusölu Meðalverð á áli í London það sem af er ári er 2.415 dalir og hefur ekki verið jafn hátt síðan árið 2011. Hörður hefur sagt við Morgun- blaðið að áhrifin af hærra álverði muni birtast í því að íslensku álverin leitist við að halda fullum afköstum og með því fullnýta svigrúmið innan raforkusamninga umfram kaup- skyldu. Varðandi áhrifin af hærra ál- verði á afkomu Landsvirkjunar væri að mörgu að hyggja. M.a. þyrfti að taka tillit til afleiðusamninga. Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði var 99 millj- ónir dala á fyrri hluta ársins en meðalverðið á tonnið í Kauphöllinni í London var 2.256 dalir á tímabilinu. Meðalverðið er hins vegar 2.685 dalir á öðrum árshelmingi og verður að óbreyttu enn hærra þegar honum lýkur um áramót. Vegna þessa og tengingar álverðs við raforkuverð má ætla að tekjur og hagnaður Landsvirkjunar aukist milli ára. Búbót fyrir Landsvirkjun Afkoma Landsvirkjunar og meðalálverð hvers árs 2.500 2.300 2.100 1.900 1.700 1.500 200 170 140 110 80 50 Heimsmarkaðsverð á áli, USD/tonn Hagnaður Landsvirkjunar,millj. USD Heimild: Ársreikningar/ársskýrslur Landsvirkjunar Seld raforka Verð til stór- notenda** Álverð, LME Rekstrar- tekjur Hagn- aður* Ár TWst USD/MWst USD/tonn Milljónir USD 2011 12.778 28,7 2.419 436 106 2012 12.770 26,2 2.049 408 104 2013 13.186 25,8 1.887 423 122 2014 13.082 25,9 1.894 438 147 2015 13.900 19,2 1.680 421 131 2016 13.625 18,6 1.610 420 118 2017 14.325 21,4 1.978 483 153 2018 14.753 23,3 2.116 534 184 2019 14.028 23,2 1.810 510 176 2020 13.336 21,1 1.727 454 139 2021 (fyrstu 6 mán.) 2.256 262 99*Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði sem Landsvirkjun horfir á við mat á afkomu grunn­ rekstrar fyrirtækisins. **Meðalverð. Flutningskostnaður er dreginn frá í útreikningi 2015­2020. 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Fyrstu 6 mán. 2.256 184 147 2.116 106 2.419 1.610 99 - Fylgni hefur verið milli álverðs og hagnaðar Landsvirkjunar á síðustu tíu árum - Orkuverðið er að hluta tengt álverði - Metverð á áli gæti stóraukið tekjurnar BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að hagnaður Lands- virkjunar aukist um tugi prósenta milli ára vegna tengingar við álverð og aukinnar eftirspurnar eftir orku. Hér til hliðar má sjá hagnað fyrir- tækisins frá árinu 2011, selt magn af raforku, rekstrartekjur og meðal- verð á orku til stórnotenda. Til samanburðar er svo birt meðalverð á áli í Kauphöllinni með málma í London (LME) á sama tímabili. Uppgjörsmynt Landsvirkjunar er bandaríkjadalur og er því látið ógert að umreikna stærðir í krónur og taka þar með tillit til gengissveiflna. Tekjur Landsvirkjunar náðu há- marki árið 2018 og voru þá 534 millj- ónir dala en það ár var metár í orku- sölu hjá fyrirtækinu: Selt magn var 14,75 teravattstundir: Hagnaður fyr- ir óinnleysta fjármagnsliði var 184 milljónir dollara og meðalverð til stórnotenda án flutnings var 23,3 dollarar á megavattstund. Það er meiri hagnaður og hærra orkuverð til stórnotenda en dæmi eru um hjá Landsvirkjun síðastliðinn áratug. Fylgni við álverðið Fylgni er milli heimsmarkaðs- verðs á áli og hagnaðar Lands- virkjunar síðustu ár (sjá graf). Skýrist það af því að raforkusamn- ingar Landsvirkjunar við álverin hafa að hluta verið tengdir álverði. Núverandi samningur Alcoa- skoðum gögn Þjóðskrár Íslands meira en tíu ár aftur í tímann má sjá að verðhækkanir á höfuðborg- arsvæðinu eru svipaðar eftir svæð- um og jafnvel minni miðsvæðis allra síðustu misseri,“ segir Kon- ráð. Hann segir að hækkanir hafi al- mennt verið litlar og hóflegar á tímabilinu frá 2017 til 2020 og meiri á jöðrum höfuðborgarsvæð- isins en miðsvæðis. Hann segir að umferð hafi vissu- lega áhrif á fasteignaverð. Þannig sé eðlilega hærra verð miðsvæðis í Reykjavík en á Akranesi svo dæmi sé tekið. Svipað og í öðrum löndum Konráð segir einnig athyglisvert að verðhækkanir fasteigna hér á landi séu í mjög svipuðum takti og í Evr- ópu og Bandaríkjunum, og minni en í Danmörku svo dæmi sé tekið. „Ég spyr mig hvort faraldurinn er sam- eiginlegi þátturinn sem sé að valda þessu í ólíkum löndum. Faraldurinn hefur breytt neysluhegðun. Fólk var lengi fast heima hjá sér og leitaði eft- ir meira plássi, stærri garði o.s.frv.“ Konráð bendir á að margir hafi haldið óbreyttum tekjum í faraldr- inum á sama tíma og neyslumögu- leikar hafi verið takmarkaðir. Því hafi skapast svigrúm til fjárfestinga. tobj@mbl.is Konráð S. Guðjónsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, spyr í færslu á Twitter í gær hvaða gögnum um fast- eignamarkaðinn Seðlabankinn búi yfir sem aðrir hafi ekki. Tilefnið er viðtal við Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóra í ViðskiptaMogganum í gær þar sem hann segir að hækk- anir á fasteignamarkaði komi fyrst og fremst miðsvæðis, sem stafi af umferðinni. Fólk borgi mjög hátt verð fyrir að komast í eignir sem liggja tiltölulega miðlægt. Konráð segir fullyrðingar Ás- geirs ekki standast skoðun. „Staðreyndin er sú að þegar við Hækkanir miðsvæðis jafnvel minni - Furðar sig á orðum bankastjóra Íbúðir Verðhækkun er víða. « Fríhöfnin í Kefla- vík má notast við hugtökin „Duty Free“ og „Fríhöfn“ í markaðssetningu sinni. Þetta er nið- urstaða Neytenda- stofu en stofn- uninni barst fyrr á þessu ári kvörtun frá fyrirtækjunum Sante ehf. og ST ehf. þar sem því var haldið fram að hug- tökin væru villandi enda væru verslanir Fríhafnarinnar ekki alfarið undanþegnar áfengis- og tóbaksgjaldi. Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að hugtakanotkunin haldi, enda sé áfeng- is- og tóbaksgjald ekki tollur og þar með væru verslanirnar tollfrjálsar verslanir í þeim skilningi orðsins. Fríhöfnin má kalla sig fríhöfn fullum fetum Arnar Sigurðsson 14. október 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.81 Sterlingspund 176.97 Kanadadalur 104.19 Dönsk króna 20.159 Norsk króna 15.212 Sænsk króna 14.84 Svissn. franki 139.81 Japanskt jen 1.1446 SDR 182.93 Evra 150.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.7691 « Drög að uppgjöri Arion banka fyrir þriðja ársfjórðung 2021 liggja fyrir og sendi bankinn frá sér afkomuviðvörun vegna þess í gær. Í drögunum kemur fram að afkoma fjórðungsins sé já- kvæð um 8,2 millj- arða króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli er 17%. Er afkoman umfram fyrirliggjandi spár greiningaraðila. Rekstrartekjur fjórðungsins námu 15 milljörðum en þar af voru tekjur af kjarnastarfsemi 12,7 milljarðar og hækka um 7,5% frá þriðja fjórðungi síðasta árs. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nemur 5,6 milljörðum og hækkar um tæp 7% frá sama fjórðungi fyrra árs. Hreinar þóknanatekjur aukast um milljarð og nema 3,8 milljörðum. Hreinar fjármunatekjur tvöfaldast og nema 1,4 milljörðum króna. Virðisbreyting útlána er jákvæð um 0,7 milljarða en hún var neikvæð um 1,3 milljarða á þriðja fjórð- ungi síðasta árs. Endanlegt uppgjör verður birt 27. október. Hagnaður Arion banka á ný umfram væntingar Benedikt Gíslason STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.