Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 34
34 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
VÍKINGUR SPILAR MOZART
19., 20. & 21. NÓVEMBER · ELDBORG
Miðasala á tix.is og harpa.is
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Joe Biden Bandaríkjaforseti blés í gær
til fundar með stjórnendum vöruhafn-
anna í Los Angeles og Long Beach auk
fulltrúa vörusendingafyrirtækja og
smásölurisa á borð við FedEx, UPS,
Walmart og Target ásamt forkólfum
ýmissa stéttarfélaga vörubifreiða-
stjóra og annarra sem bera ábyrgð á
að koma vörum milli staða um gervöll
Bandaríkin.
Aukin verslun og færri í vinnu
Tilefnið er bókstaflega að bjarga jól-
unum, þar sem flöskuhálsar í vöru-
flutningum og himinháir staflar af óaf-
greiddum pöntunum stefna þessari
mestu innkaupatíð ársins, sem nú fer í
hönd, í voða, allt í boði heimsfaraldurs
kórónuveiru eins og svo margt annað.
Kemur þetta ástand til af stórauk-
inni netverslun samhliða miklum fjar-
vistum fjölda vinnandi fólks vegna far-
aldursins og samgöngutruflunum, sem
vart eiga sér hliðstæðu á friðartímum.
Fari allt á versta veg er Bandaríkja-
mönnum spáð hækkandi vöruverði og í
versta falli vöruskorti eftir því sem há-
tíð ljóss og friðar færist nær.
Meðal leiða til úrbóta er að unnið
verður allan sólarhringinn við framan-
greindar hafnir, hjá hraðsendinga-
fyrirtækjunum og á fleiri vinnustöðum
til að saxa á kúfinn, sem gnæfir yfir
vettvangi vöruflæðisstjórnunar um öll
Bandaríkin. „Með þessum aðgerðum
er verið að senda þau skilaboð til allra í
birgðakeðjunni að þeir þurfi að bretta
upp ermarnar og drífa hlutina af,“
sagði ónefndur embættismaður í Hvíta
húsinu við Reuters-fréttastofuna
Porcari „flöskuhálskeisari“
Sjálfur lét Biden heyra í sér um
vörustífluna á Twitter þar sem hann
skrifaði: „Stjórn mín sveitist blóðinu
við að hraða vöruflutningum og koma
birgðakeðjum okkar í samt lag.“ Sam-
dráttur í sölu vegna þessara vand-
kvæða gæti komið fjölda fyrirtækja í
koll fyrir jólin og það aftur komið niður
á viðhorfi almennings í garð Bidens.
Aðgerðir hófust þegar í júní til að
liðka fyrir flæði allrar vöru frá kjöti til
hálfleiðara og var þá starfshópur sett-
ur á laggirnar til höfuðs vandanum
undir stjórn Johns Porcari, aðstoðar-
samgönguráðherra í tíð Baracks
Obama, sem ætlað er að vera „flösku-
hálskeisari“ eða „bottleneck-czar“ og
halda uppi þrýstingi á einkageirann til
að koma hlutunum á hreyfingu.
AFP
Vöruflæði Drekkhlaðið gámafley Maersk lætur í haf frá New York.
Tafir ógna jólavertíðinni
- Biden fundaði með vöruflutningageiranum - Flöskuhálsar víða í birgðakeðjum
Alþjóðlegar hjálparstofnanir stóðu í
ströngu í Kabúl í Afganistan í gær
við að dreifa matvælum, teppum og
reiðufé til hundraða fjölskyldna á
vergangi, sem margar hverjar eru á
flótta frá heimahéruðum sínum
vegna ofríkis talíbana. Fulltrúar
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna eru staddir í Kabúl í kjöl-
far viðvarana um að í hönd geti farið
mannskæð hungursneyð í vetur.
„Við höfum fengið þessa aðstoð,
en við förum ekki gegnum veturinn
á henni, við höfum ekkert nema guð
og þurfum meiri hjálp,“ sagði Bibi
Pashtoon, sem þáði nauðsynjar í
Kabúl í gær.
AFGANISTAN
AFP
Afgönsk börn bjóða te og vatn til sölu.
Mannskæð hung-
ursneyð yfirvofandi
Pólsk stjórnvöld áforma að byggja
múr á landamærum Póllands og
Hvíta-Rússlands til að koma í veg
fyrir að flóttamenn fari þar yfir.
Þetta kemur fram í laga-
frumvarpi sem lagt var fram á
pólska þinginu í gær. Veggurinn,
með hreyfiskynjurum, á að kosta
353 milljónir evra, jafnvirði nærri
53 milljarða króna.
Ríkisstjórn Póllands samþykkti
frumvarpið á þriðjudag en í at-
hugasemdum kemur fram að fjöldi
þeirra sem reyni að fara yfir landa-
mærin sé vaxandi.
Þúsundir flóttamanna, einkum
frá Mið-Austurlöndum og Afríku,
hafa reynt að fara yfir landamærin
til Póllands frá Hvíta-Rússlandi, frá
því í ágúst. Evrópusambandið segir
að hvítrússnesk stjórnvöld hafi
stuðlað að þessu til að bregðast við
efnahagsþvingunum. Pólverjar hafa
sent þúsundir hermanna að landa-
mærunum, lýst yfir neyðarástandi
þar og reist gaddavírsgirðingar.
PÓLLAND
Vilja reisa múr á
landamærunum
Kanadíski leikarinn William Shatner
var hrærður eftir að hann lauk 11
mínútna flugferð út í geim með
geimfari bandaríska fyrirtækisins
Blue Origen í gær.
„Allir í heiminum ættu að prófa
þetta,“ sagði Shatner, sem er níræð-
ur og þekktastur fyrir að leika hlut-
verk kafteins James T. Kirk í sjón-
varpsþáttum og kvikmyndum um
Star Trek „Þetta var ótrúlegt.“
Shatner varð í gær elsti maðurinn
til að fara í geimferð en geimfarið
fór út fyrir Karman-línuna svo-
nefndu sem er í 100 kílómetra hæð
yfir sjávarmáli og almennt talin
marka skilin milli andrúmslofts jarð-
arinnar og geimsins.
Með Shatner í ferðinni voru Aud-
rey Powers, forstjóri Blue Origen,
Ástralinn Chris Boshuizen, annar
stofnandi Planet Labs og Glen de
Vries frá Medidata Solutions.
Jeff Bezos, stofnandi Blue Origin,
tók á móti geimförunum þegar þeir
lentu í Texas en Bezos fór í fyrstu
geimferð fyrirtækisins í sumar.
Shatner sagði eftir flugið að það
hefði verið ótrúlegt að upplifa
þyngdarleysi og sjá jörðina utan úr
geimnum.
„Þetta er djúpstæðasta reynsla
sem hægt er að ímynda sér,“ sagði
hann. „Ég vona að ég jafni mig aldr-
ei á henni, ég vil ekki tapa þessari
tilfinningu.“
Um 600 einstaklingar hafa nú far-
ið í geimferð frá því Sovétmaðurinn
Júrí Gagarín fór fyrstur út í geiminn
12. apríl árið 1961.
„Ótrúleg og djúpstæð lífsreynsla“
- William Shat-
ner varð í gær
elsti geimfarinn
AFP
Lent Jeff Bezos nælir merki á
William Shatner eftir lendinguna.
(100 km)
Heimild: Blue Origin
Um 11 mínútna flugtími
Karman-línan
Lóðrétt
flugtak
Aðskilnaður
(í 75 km hæð
Lending
með
fallhlífum
Þyngdarleysi
Eldflaug
lendir
(8 km/h)
Mannað flug Blue Origin
New
Shepard
eldflaug
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að rússnesk stjórnvöld
væru reiðubúin að auka útflutning á
gasi en Rússar hafa verið sakaðir
um að halda að sér höndum varðandi
útflutning þótt gasskortur blasi við á
meginlandi Evrópu.
„Ef þeir biðja okkur að auka út-
flutning enn meira erum við reiðu-
búnir til þess. Við aukum hann eins
mikið og félagar okkar biðja um,“
sagði Pútín á orkuráðstefnu í
Moskvu í gær. Rússland er einn
stærsti framleiðandi heims á olíu og
gasi.
Forsetinn sagði einnig að Rúss-
land stefndi að því að verða kolefnis-
hlutlaust fyrir árið 2060 og bætti við
að hlutur olíu og kola í orkufram-
leiðslu myndi minnka. Pútín hefur
áður lýst efasemdum um að hlýnun
andrúmsloftsins sé af mannavöldum
en á síðustu mánuðum hefur hann
slegið nokkuð annan tón.
„Jörðin þarf á upplýstum og
ábyrgum aðgerðum að halda og allir
á markaði, bæði framleiðendur og
neytendur, þurfa að horfa til fram-
tíðar í þágu sjálfbærrar þróunar í
öllum löndum,“ sagði Pútín.
AFP
Rætt um orku Vladimír Pútín á ráðstefnu um orkumál í Moskvu í gær.
Geta aukið útflutning
- Vladimír Pútín segir Rússa stefna
að kolefnishlutleysi fyrir árið 2060