Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 37

Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Við Reykjavíkurhöfn Ávallt er mikið um að vera á kajanum í Reykjavík og mikið af togurum sem leggja þar að landi og færa lífsbjörg í bú. Það er því eðlilega mikill erill við Reykjavíkurhöfn. Eggert Jessenius-lækna- deildin í Martin í Slóv- akíu (JFMED CU) er ein af leiðandi lækna- deildunum, ekki ein- ungis innan Comenius- ar-háskólans heldur er hún einnig meðal bestu læknadeilda í Mið- Evrópu. Í dag eru um það bil 1.700 stúdentar við deildina í ýmsum námsverkefnum og þar af eru fleiri en 600 sem koma frá öðrum löndum, aðallega Noregi og Íslandi. Á undanförnum árum hafa stúdentar frá Íslandi sýnt aukinn áhuga á því að læra við JFMED CU og nú er 171 þeirra við nám þar. Að koma á gagnkvæmri samvinnu Þökk sé afar hæfum kennurum við háskólann og nútímatækni þá er JFMED CU-læknadeildin sú deild sem er í mestum hávegum höfð í Slóvakíu og sú sem líka dregur að nemendur frá öðrum löndum. Stúd- entar sem útskrifast frá JFMED CU og hefja störf sem læknar í heima- landi sínu bera læknadeildinni gott vitni. Samvinna á milli JFMED CU og Menntaskólans á Akureyri hjálpar til við að koma upplýsingum um Slóv- akíu og JFMED CU á framfæri, ekki aðeins meðal þeirra sem hyggjast sækja um þar heldur líka meðal ís- lensku þjóðarinnar. Það sem út úr þessu langtímasamstarfi kom var að lagt var fram sameiginlegt verkefni sem hefur það að markmiði að þróa samstarf á sviði menningar og mennta á milli Íslands og Slóvakíu. Þetta verkefni er styrkt af EES og Norway Grants (með framlögum frá Noregi, Íslandi og Liechtenstein). Borgin Martin, þar sem Jessen- ius-læknadeildin er, hefur hafið sam- starf við Akureyri. Ján Danko, borg- arstjóri í Martin, heimsótti Akureyri og lét í ljós áhuga á að auka sam- starfið á ýmsan máta. Sem staðfest- ing á heimsókn hans og því sem hann hafði fram að færa voru svo í kjölfarið skrifleg samskipti á milli aðila. Fulltrúar Akureyrar lýstu einnig áhuga á að heimsækja Martin og halda áfram samstarfi en Covid-19- faraldurinn kom í veg fyrir það tíma- bundið. Markmið beggja staða er hið sama; að dýpka tengslin á milli Ís- lands og Slóvakíu. Kynning á menningu Slóvakíu og Turiec-héraðinu Þökk sé íslenskum stúdentum og fjölskyldum þeirra hefur lifnað yfir Martin-borg en hún einkennist af akademísku andrúmslofti sem er dæmigert fyrir háskólaborgir. Yfir skólaárið lifnar yfir miðborginni vegna erlendra stúdenta sem sækja kaffihús, söfn og tónleika og er það ekki síður náttúrufegurð umhverf- isins sem laðar þá að. Þess vegna er innifalið í verkefninu kynning á menningu Slóvakíu með vídeói þar sem beint er sjónum að Slóvakíu; Turiec-héraðinu, þar sem Martin og læknadeildin eru miðdepillinn. Skipulagning menningarlegra námskeiða og sumarmálaskóla Samstarfsverkefni Jessenius- læknadeildarinnar í Martin og Menntaskólans á Akureyri byggist á hugmynd að þróun, ekki einungis á sviði mennta heldur einnig menning- ar. Með skipulagningu námskeiða og sumarmálaskóla er hægt að styrkja menningar- og menntunartengsl og dýpka tengslin á milli þátttakandi stofnana og hagsmunaaðila. Ráðgert er að vera með vinnustofu í Martin þar sem athyglinni er beint að ís- lenskri þjóðfræði og siðum og í vinnu- stofunni á Akureyri verður sjónum beint að menningu og menntun í Sló- vakíu. Viðfangsefnin voru undirbúin með þá hugmynd að leiðarljósi að kynnast fjölbreytileikanum sem í menning- armun liggur; stuðla að gagn- kvæmum skilningi, persónulegum þroska og samstöðu, og nálgast og hugsa um hlutina á nýjan hátt. Sam- vinna í sköpun og sköpunarkraftur eru sérstaklega mikilvæg í því að skapa nýja nálgun og nýbreytni. Eftir dr. Eriku Halasová og Runólf Oddsson » Vegna sameiginlegs verkefnis á milli Menntaskólans á Akureyri og Jessenius- læknadeildarinnar í Martin í Slóvakíu er hægt að styrkja sam- skipti á sviði menningar og menntunar á milli Slóvakíu og Íslands.Dr. Erika Halasová Dr. Erika Halasová er fram- kvæmdastjóri Bio Medical Center í Martin og ræðismaður Íslands með aðsetur í Martin. Runólfur er fulltrúi JFM CU á Íslandi og ræðismaður Slóvakíu á Íslandi. Gagnkvæm samvinna MA og Jessenius-læknadeildarinnar í Slóvakíu Læknadeildin í Martin og Menntaskólinn á Akureyri fengu styrk frá sjóði Íslands, Liechtenstein og Noregs til að efla samstarf á sviði menningar og náms milli Íslands og Slóvakíu. Frá vinstri: Janík Martin réttarmeinafræð- ingur, dósent og aðstoðarrektor, dr. Erika Halasová, Runólfur Oddsson, Andrea Calkovská prófessor og Heimir Haraldsson, námsráðgjafi í Mennta- skólanum á Akureyri. Myndin er tekin í Slóvakíu. Runólfur Oddsson Í dag efast fáir ef nokkrir um mikilvægi fiskeldis sem atvinnu- greinar hér á landi. Fjárfesting upp á tugi milljarða króna liggur í greininni og frekari fjárfesting bíður eftir leyfum til rekstrar. Út- flutningsverðmæti eld- islax jukust um 29% á milli ára og fór vægi hans í 70% útflutnings- verðmætis eldisafurða á árinu. Nú er svo komið að útflutningur á eldislaxi skilar næstmestum verðmætum allra fisktegunda sem fluttar eru frá Ís- landi. Það er skemmtileg staðreynd sem kom fram á góðum fundum Vestfjarðastofu um fiskeldi nú í sept- ember að 3% af útflutn- ingsverðmætum Ís- lands verða til í 1.500 fermetra sláturhúsi á Bíldudal. Samfélögin sem hýsa þessa vaxandi atvinnugrein mega hafa sig alla við að tryggja þá innviði sem þurfa til að mæta þörfum og halda þræði í uppbygg- ingaferlinu. Uppbygg- ing á innviðum er grundvöllur að vexti greinarinnar og sameiginlegum ábata. Fiskeldissjóðurinn Fiskeldissjóður á sér stoð í lögum sem voru samþykkt vorið 2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Þar er gert ráð fyrir að þriðjungur tekna af gjaldtöku af fisk- eldi renni á komandi árum í Fiskeld- issjóð sem sveitarfélög geta sótt í til innviðauppbyggingar. Á dögunum var úthlutað fyrstu greiðslum úr fisk- eldissjóði og var til skiptanna 105 m. kr. sem úthlutað var út frá umsókn- um sveitarfélaga þar sem sjókvíaeldi er stundað. Þarna hefst kapphlaup um hver eigi bitastæðustu umsóknina en mikil vinna liggur á bak við hverja umsókn. Þá eru sveitarfélögin í misjafnri stöðu til þess að vinna umsóknir. Tvö sveit- arfélög á Vestfjörðum fengu samtals 34 m. kr. og 70 m. kr. fóru til Aust- fjarða, þrátt fyrir að meirihluta eld- isafurða verði til á Vestfjörðum. Það er ljóst út frá þessari útfærslu að sveitarfélög geta ekki gert raunhæfa fjárhagsáætlun eða framkvæmda- áætlun með hliðsjón af starfsemi at- vinnugreinarinnar eins og hægt er að gera út frá öðrum greinum sem stundaðar eru á svæðinu. Brýnt að endurskoða gjaldtökuheimildir Í ljósi þessarar reynslu verður því að segjast að þessi útfærsla sem gerð var varðandi fiskeldissjóð árið 2019 voru mistök. Það er best að viður- kenna það strax og bretta upp ermar. Þörf er á að yfirfara laga- og reglu- gerðaumhverfi gjaldtöku í fiskeldi og sérstaklega það sem snýr að sveit- arfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Það þarf ekki að snúa að aukinni gjaldtöku heldur þarf að tryggja að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verk- efnum þeirra sveitarfélaga sem standa næst eldinu. Sveitarfélög eiga ekki að þurfa að ganga bónleið í samkeppnissjóð til að fjármagna uppbyggingu sem nauð- synleg er til þess að hámarksábati af fiskeldi skili sér til samfélaganna heldur verða stjórnvöld að tryggja sanngjarna dreifingu þessara tekna. Samfélagslegur ávinningur sjókvíaeldis Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur » Sveitarfélög eiga ekki að þurfa að sækja um í samkeppn- issjóð til að byggja upp eins og nauðsynlegt er til þess að hámarksábati af fiskeldi skili sér. Halla Signý Kristjánsdóttir Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.