Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 ✝ Gerður Gests- dóttir fæddist í skólahúsinu á Sveinsstöðum í Austur-Húna- vatnssýslu 2. júlí 1921. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 2. október 2021, hundrað ára að aldri. Foreldrar henn- ar voru Gestur Oddfinnur Gestsson, síðar kennari og skólastjóri í Flatey, ættaður úr Dýrafirði, f. 2.1. 1895, d. 26.12. 1982, og Oddný Ingiríður Sölvadóttir, ættuð úr Svínadal í Austur-Húnavatns- sýslu, f. 24.4. 1895, d. 13.5. 1945. Gerður var næstelst sjö systkina en þau voru Björn, f. 1919, d. 1992, Þorsteinn Yngvi, f. 1922, d. 1985, Nanna, f. 1925, d. 1993, Heiður, f. 1930, Karl Auðunn, f. 1932, d. 1939 og Gestur Karl, f. 1947. Kona hans er Valgerður Guðrún Ólafs- dóttir. Börn þeirra eru Sús- anna Margrét, Gerður, María og Valgeir. Þriðja barn Gerðar og Jóns er Ragnar, f. 1959. Kona hans er Sigrún Sól Sól- mundsdóttir. Þau eiga Kjartan Þór, Kolbrúnu Rögnu og Karl Yngva. Langömmubörnin eru átján og langalangömmubörnin þrjú. Gerður og Jón bjuggu í Flat- ey til ársins 1959 þegar þau fluttu í Grundarfjörð og skömmu síðar til Reykjavíkur. Gerður rak heimili þeirra, bæði á Hjallaveginum og í Sól- heimum, en yngsti bróðir henn- ar, Auðunn, bjó hjá henni til ársins 2009. Þegar börnin voru komin af höndum hóf Gerður sjálfboðaliðastörf hjá Rauða krossinum og sinnti þeim störf- um um árabil. Síðustu árin bjó Gerður á dvalarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 14. október 2021. Auðunn, f. 1938, d. 2020. Þegar Gerður var barn að aldri fluttist fjölskyldan vestur á firði og bjó lengst af á Pat- reksfirði uns þau fluttu í Flatey árið 1933. Þar átti Gerður eftir að búa næstu áratug- ina. Árið 1946 gift- ist hún Jóni Kristni Guðmunds- syni, f. 1918, d. 1991. Foreldrar hans voru Ragnhildur Svan- fríður Jónsdóttir úr Hergilsey, f. 1897, d. 1935, og Guðmundur Jóhann Guðmundsson, síðar bóndi á Brjánslæk, f. 1893, d. 1980. Gerður og Jón áttu þrjú börn. Fyrst er Oddný Ingiríð- ur, f. 1946. Hún var gift Gylfa Jenssyni, þau skildu. Börn þeirra eru Gerður, Guðrún Arna og Jón Yngvi. Næstur er Það eru mikil forréttindi að fá að eiga ömmu eins lengi og við - sum okkar komin hátt á sextugs- aldur þegar við kveðjum hana. Ótal minningar leita á, nú við ferðalok. Sumar eru ömmu sjálfr- ar, frekar en okkar. Má þar nefna hlýjar minningar um Búkollu, kúna sem ömmu dreymdi um að eignast því að oft var erfitt að fá mjólk í Flatey. Þar sem margoft hafði komið fram að afi taldi það hinn mesta óþarfa kom það ömmu í opna skjöldu þegar hún sá til hans teyma ókunna kusu eftir göt- unni heim að Sólheimum einn dag- inn. Þetta var reyndar kýr sem Skáleyingar höfðu gefist upp á vegna almennrar óþægðar og voru dauðfegnir að selja. En amma vissi ekkert um það þegar hún fór á móti kúnni, rétti fram höndina og klóraði henni og inn- siglaði með því einstakt samband þeirra. Búkolla var aldrei til vand- ræða í Flatey og sum okkar leita enn í skjól Búkollu í gamla fjósinu á bak við Sólheima þegar við gist- um í Flatey. Önnur minning er af allt öðrum toga. Þegar amma er ung stúlka verður fjölskyldan fyr- ir þeim mikla harmi að Kalli litli bróðir hennar drukknar á sól- björtum ágústdegi. Frásagnir af því höfum við engar frá ömmu sjálfri. Í eitt einasta skipti minn- umst við þess að hafa heyrt ömmu víkja að atburðinum en það var þegar annað barn í fjölskyldunni lést af slysförum mörgum áratug- um síðar. Þó að langur tími væri liðinn var greinilegt að sársaukinn hafði ekki dvínað. Engin leið er að meta hvaða áhrif þetta hefur haft á æviskeiðið en ósköp þótti okkur stundum erfitt hvað amma var slysahrædd um okkur í Flatey á sumrin. Þrátt fyrir allt var Flatey stað- urinn hennar ömmu. Hún flutti þangað barn að aldri og bjó þar áfram með manni sínum, Jóni Guðmundssyni úr Hergilsey, sem hún giftist 1946. Fyrstu tvö börn- in, Oddný og Gestur, fæddust með stuttu millibili og Auðunn, bróðir ömmu, sem hún ól önn fyrir fram á efri ár, setti ævinlega mikinn svip á fjölskylduna. Eftir breytingar á búsetu í Flatey um 1960 var eyjan upp frá því sumardvalarstaður fjölskyldunnar og undi amma sér hvergi betur. Þar hélt hún upp á 95 ára afmælið með pompi og prakt og var með hugann við eyj- una sína fram á síðustu stundu. „Ég vildi að ég hefði komist í Flat- ey í sumar“ varð henni oft að orði síðustu mánuðina. En fleira bar á góma. Amma var skemmtileg, fylgdist vel með og vildi spjalla um bókmenntir og pólitík við þau sem höfðu áhuga. Það hafði hún sjálf og náði að taka þátt í alþingiskosn- ingum tveimur vikum áður en hún féll frá. Eftir að hún flutti suður var hún virk í starfi Rauða kross- ins og lagði með því sitt af mörk- um til að bæta samfélagið enda hafði hún sterka réttlætiskennd og samlíðan með þeim sem ekki voru jafn gæfusamir í lífinu og hún. Það verður einkennilegt að eiga ekki lengur erindi til ömmu að rekja helstu tíðindi af sér og sínum. Hún hafði merkilega yfir- sýn yfir stórfjölskylduna - fjórar kynslóðir afkomenda – til hinstu stundar og var hreykin af sínu fólki. Við kveðjum ömmuna með hlýja faðminn með einlægu þakk- læti. Þvílík lukka að hafa átt hana að. Margrét, Gerður, María og Valgeir Gestsbörn. Gerður Gestsdóttir ✝ Sigríður Skúla- dóttir fæddist í Reykjavík 1. maí 1926. Hún lést 3. október 2021 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar henn- ar voru Valgerður Jónsdóttir frá Hópi í Grindavík og Skúli Þorkelsson húsasmíðameistari frá Smádölum. Sigríður var önnur í röð þriggja systkina, og eru þau nú öll látin. Sigríður ólst upp við Fram- nesveg í Reykjavík og bjó þar fram að giftingu. Hún hélt heim- ili fyrir föður sinn, sem var Steinar Gíslason, f. 21. nóv- ember 1964, maki Inga Rós Að- alheiðardóttir, börn Tinna Valgerður, Heiðar Steinn, Ómar Hrafn, Jónína Líf og Mikael Magnús. 4) Herborg María Páls- dóttir, 10. september 1942, börn Ingibjörg, Ragna, Ágúst og Kjartan. Barnabarnabörn eru tuttugu. Didda, eins og hún var kölluð, sá um heimilið og barnaupp- eldið meðan maður hennar stundaði sjómennskuna og gekk því í öll störf sem því fylgdi. Hún var mikil hannyrðakona og ligg- ur margt fallegt eftir hana. Seinna fór hún að vinna utan heimilisins þegar börnin voru uppkomin. Þau bjuggu lengst af í Frosta- skjóli en síðustu árin á Hrafn- istu í Reykjavík. Útförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 14. október 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. húsasmíðameistari, eftir að móðir hennar dó. Hún út- skrifaðist frá Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Hún giftist Gísla Steinari Jóhann- essyni 1. júlí 1950, þau eignuðust þrjú börn og eina fóst- urdóttur. 1) Val- gerður Gísladóttir, f. 25. október 1954, d. 25. ágúst 1993, maki Gylfi Geirsson, sonur þeirra er Gísli Geir. 2) Helga Gísladóttir, f. 17. ágúst 1957, maki Eiríkur Sigurðsson, börn þeirra eru Matthías, Eiríkur Valur og Sigurður Gísli. 3) Gísli Elsku mamma hefur fengið hvíldina 95 ára. Hún var góð mamma, hugsaði vel um okkur systkinin og pabba. Það birtast margar myndir af uppvaxtarár- unum þegar horft er til baka. Hún var sjómannskona og sá um heimilið og barnauppeldið. Hún var sterk, dugleg, góð kona og aldrei man ég eftir því að hún kvartaði. Við bjuggum í Grana- skjóli og Frostaskjólinu og þar var nú margt hægt að upplifa. Við krakkarnir vorum mikið úti í alls konar leikjum og ævintýrum. Í nærumhverfinu voru fjaran, mýr- in, hestar, hænsnabú, nýbygging- ar og öskuhaugar, þetta voru leik- vellir okkar. Mamma kallaði úti á svölum „matur“, þá hlupum við heim. Hún gaf okkur frelsi til að upplifa. Það var henni mikið áfall þegar Valgerður systir dó aðeins 38 ára því þær voru mjög samrýndar. Hún átti nokkrar góðar vin- konur sem hún eignaðist í Hús- mæðraskólanum og héldu þær sambandi alla ævi. Henni fannst gaman að handavinnu, saumaði á okkur föt þegar við voru lítil og stundaði alls konar hannyrðir; postulínsmálun, skermasaum, út- saum, glerlist, akrýlmálun, perlu- saum o.fl. Mamma og pabbi höfðu mjög gaman af því að ferðast seinni árin, sérstaklega til sólar- landa, og var hún þá „caddy“ hjá pabba í golfinu. Takk fyrir allt elsku mamma, það var svo fallegt þegar lítill fugl settist á opinn gluggann hjá þér rétt áður en þú kvaddir og síðustu orðin þín til mín voru „þakka þér fyrir“. Hvíldu í friði nú hjá Valgerði og pabba. Þín Helga. Móðir mín ólst upp á Framnes- vegi 17 í Vesturbænum. Hún gekk í Miðbæjarskólann og síðar í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Mamma og pabbi hófu sinn bú- skap í Hátúni og síðar í Grana- skjóli. Árið 1964 fluttu þau í hús sem þau byggðu í Frostaskjóli þar sem fjölskyldan óx úr grasi. Faðir okkar var skipstjóri og dvaldist því löngum stundum á sjó og það kom í hlut mömmu að sjá um allt heimilishald og uppeldi á okkur systkinum. Hún var mjög hagsýn húsmóðir sem er eigin- leiki sem hún hefur sennilega til- einkað sér í húsmæðraskólanum. Ég var mikill mömmustrákur og á mínum bernskuárum þvæld- ist mamma með mig út um allan bæ þegar hún var að „útrétta“ eins og hún kallaði það. Í þá daga var hugsað um hverja krónu og var hún mjög útsjónarsöm við innkaup á heimilið. Verslað var hjá Pöntunarfélagi lögreglu- manna, Osta- og smjörsölunni á Snorrabraut, slátur var tekið hjá Sláturfélagi Suðurlands á Lindar- götu og svona mætti lengi telja. Og alltaf var ég í eftirdragi og kynntist því mjög vel samfélaginu á þessum tíma. Mamma bjó okkur mjög ham- ingjuríkt heimili og við vorum hamingjusöm fjölskylda. Hún hélt okkur mjög falleg jól, skreytti mikið og bakaði átta sort- ir af smákökum sem voru til langt fram á sumar. Já það var oft mik- ið fjör í Frostaskjólinu. Mamma var mikil saumakona og var alla tíð eitthvað að vinna í höndunum. Við fórum iðulega í verslanir sem seldu vefnaðarvöru og snið til að sauma eftir. Hún fékkst einnig við skermagerð, glerlist og málaði myndir. Ég hef oft hugsað að hún hefði sennilega orðið fræg listakona ef hún hefði tekið þann pól í hæðina. Hún var einnig mikil íþróttakona og minntist þess oft við okkur þegar hún æfði skíði hjá Ármanni í gamla daga. Mamma var mjög sterk kona og kvartaði aldrei ef eitthvað bját- aði á og tókst á við lífið af æðru- leysi. Hún eignaðist okkur þrjú systkinin, mig, Helgu og Val- gerði. Einnig gekk hún frænku okkar í móðurstað sem var þá á tí- unda aldursári. Það var mömmu mikill harmleikur þegar Valgerð- ur systir okkar féll frá þá 38 ára gömul. Í húsmæðraskólanum kynntist mamma sínum bestu vinkonum og hélst sú vinátta hjá þeim alla tíð. Mamma og pabbi voru vina- mörg og ferðuðust mikið til „heitu landanna“ eins og þau kölluðu þau. Mamma fylgdist mikið með tískustraumum og var alltaf klædd samkvæmt nýjustu tísku. Það var gaman að heimsækja hana á Hrafnistu nú síðustu árin og færa henni Hello-blöðin sín sem hún var mikil áhugamann- eskja um. Svo töluðum við saman í síma á kvöldin og tókum kvöld- spjallið. Ég á eftir að sakna þess. Þú ert besta mamma í heimi. Guð geymi þig. Þinn Gísli. Sigríður Skúladóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Okkar ástkæra dóttir, systir, mágkona, frænka og vinkona, RAKEL SVERRISDÓTTIR kennari, Mjósundi 13, Hafnarfirði, er fallin frá. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Sverrir Þorsteinsson Annetta Ásgeirsdóttir Ásgeir Sverrisson Unnur P. Stefánsdóttir Anna Karen Sverrisdóttir Ríkharður Sverrisson Kristín Ingólfsdóttir Árni Árnason Lára Sigríður Jónsdóttir frændsystkinin og vinir Ástkær eiginkona, móðir, stjúpmóðir, dóttir, systir, tengdadóttir, mágkona og frænka, HELGA BERGRÓS BIZOUERNE, Hæðargarði 34, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 8. október. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 18. október klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Ljósið. Louis Kotze Mía Rós og Katla Kotze Bergrós Ásgeirsdóttir Patrick Bizouerne Jóhannes Ásgeir Bizouerne Hanna Dorothéa Bizouerne Inès Bizouerne Chrisna van Mieghem Alida Kotze Violette, Valentine og Björn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SÆVAR ÖRN KRISTBJÖRNSSON, Sautjándajúnítorgi 1, Garðabæ, lést á Landspítalanum 7. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 18. október klukkan 15. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Lungu, samtök lungnasjúklinga. Hægt er að nálgast streymi frá útförinni á www.mbl.is/andlat Erna Aradóttir Ari Sævarsson Gitte Drescher Sævar Örn Sævarsson Gylfi Sævarsson Hafdís Bridde afa- og langafabörn Yndislega eiginkonan mín, móðir, tengdamóðir og besta amma í heimi, SIGURLAUG GUNNARSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameinsdeild Landspítalans 8. október. Útförin fer fram þriðjudaginn 19. október klukkan 15 í Hafnarfjarðarkirkju. Hafsteinn Gunnar Haraldsson Davíð Hafsteinsson, Unnur Björk Þórarinsdóttir Ásta Rakel Hafsteinsdóttir, Sigurður Jónsson Sara Gabríella Hafsteinsdóttir Dagur, Júlía Björg, Karen Eva, Jón Hafsteinn og Ellie Sigurlaug Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR ÓLAFUR BERGSSON bifreiðarstjóri, Yrsufelli 13, andaðist á líknardeild Landspítalans 8. október í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 18. október klukkan 13. Lilja S. Mósesdóttir Móses Helgi Halldórsson Borghildur Fjóla Kristjánsd. Ester R. Lathrop Ryan Lathrop Ólöf Sif Halldórsdóttir Bjarki Gannt Joensen og afabörnin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.