Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 59

Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 tæknifélags Íslands árið 2013. Í tilefni dagsins verður haldin veisla fyrir börnin og tengdabörnin og síðar verður önnur uppákoma fyrir barnabörnin. Fjölskylda Eiginmaður Önnu er Arnlaugur Guðmundsson, f. 21.7. 1945, tækni- fræðingur. Þau búa á Vesturgötu í Reykjavík. Foreldrar Arnlaugs voru hjónin Guðmundur Arnlaugs- son, f. 1.9. 1913, d. 9.11. 1996, rekt- or, og Halldóra Ólafsdóttir, f. 20.7. 1915, d. 12.10. 1978, geðhjúkr- unarkona. Þau voru búsett í Reykjavík. Börn Önnu og Arnlaugs eru 1) Hlíf Thors Arnlaugsdóttir, f. 1.2. 1972, verkefnastjóri, búsett á Sel- tjarnarnesi. Maki: Hilmar Thors, f. 3.12. 1965, framkvæmdastjóri; 2) Guðmundur Arnlaugsson, f. 15. 10. 1976, sögukennari, búsettur í Reykjavík. Maki: Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 17.11. 1980, ferða- fulltrúi; 3) Skúli Arnlaugsson, f. 2.5. 1980, hugbúnaðarsérfræðingur, bú- settur í Reykjavík. Maki: Iðunn Garðarsdóttir, f. 13.10. 1989, lög- fræðingur. Barnabörnin eru níu. Systkini Önnu: 1) Helga Krist- jánsdóttir, f. 25.9. 1929, d. 10.7. 2008, handavinnukennari í Reykja- vík. 2) Ása Kristjánsdóttir, f. 30.10. 1931, d. 6.9. 2018, húsfreyja í Reykjavík. 3) Sæbjörn Krist- jánsson, f. 19.1. 1947, tæknifræð- ingur í Reykjavík. Foreldrar Önnu voru hjónin Kristján H. Kristjánsson, f. 18.3. 1897, d. 22.10. 1984, skipstjóri, og Hlíf Magnúsdóttir, f. 3.8. 1906, d. 24.8. 1967, húsfreyja í Reykjavík. Anna Kristjánsdóttir Maren Kirstine Nielsen rak gestahús á Austurbrú Niels Nielsen smiður á Austurbrú í Kaupmannahöfn Anna Frederikke Sæbjörnsson húsfreyja í Flatey Magnús Sæbjörnsson læknir í Flatey á Breiðafirði Hlíf Magnúsdóttir húsfreyja, Gerði, Reykjavíkurvegi 27, Reykjavík Hólmfríður Jónsdóttir húsfr. á Hrafnkelsstöðum Sæbjörn Egilsson bóndi á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal Elísabet Helgadóttir vinnukona á Bakka í Vatnsdal,A-Hún., vesturfari Bergur Friðrik Einarsson bóndi á Núpi í Dýrafirði Helga Ingibjörg Bergsdóttir húsfreyja í Meðaldal Kristján Andrésson útvegsbóndi og sjómannafræðari í Meðaldal Þorlaug Narfadóttir húsfreyja í Meðaldal Andrés Halldórsson bóndi í Meðaldal í Dýrafirði Ætt Önnu Kristjánsdóttur Kristján Helgi Kristjánsson skipstjóri, Gerði, Reykjavíkurvegi 27, Reykjavík „HANN VAR BARA 35 ÁRA ÞEGAR HANN MÁLAÐI ÞESSA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hjálpa honum með skattaskýrsluna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EITTHVAÐ ILMAR DÁSAMLEGA HEYRÐU MIG, ÞJÓNN! HVERS VEGNA ERU GAFFLARNIR ÞRÍR? LÍKAR ÞÉR VIÐ ILMKERTIÐ MITT MEÐ SMÁKÖKUILMINUM? ÞARF ÉG Í ALVÖRU AÐ KENNA ÞÉR BORÐSIÐI? KERTI?! SEGÐU HONUM BARA MEÐ HVAÐA GAFFLI HANN Á AÐ STINGA ÞIG! HVAÐ MEÐ SMÁKÖKUILMANDI SMÁKÖKUR?! FLAUTIÐ ÞEGAR ÞIÐ HEYRIÐ ÞÖGNINA Helgi R. Einarsson sendi mér póst, – honum datt þetta svona í hug: Staðan Þingið, með öðrum orðum, endar í föstum skorðum menn sigla sinn sjó saman, en þó er í Miðflokknum færra en forðum. Um morguninn þrír voru þeir, svo þynntist hópurinn meir því einn fór á braut, um einelti hnaut og eftir standa þá tveir. Ég var að fletta Útvarpstíðindum frá 1939 og rakst þar á þessar „Út- varpsvísur“ (sendar frá Hólum í Hjaltadal). Það leynir sér ekki að menn væntu mikils góðs af útvarp- inu og bundu bjartar vonir við það: Víða á þekju um vetrarkveld vindar kaldir stríða; meðan ljúft við útvarpseld inni stundir líða. Fagnar menning framsýn öld, fjendur verða bræður. Tengist þekking, vit og völd, viðtækið því ræður. Fræddu göfga og frjálsa þjóð, fræddu um lífsins kjarna. Vertu eilíf andans glóð allra landsins barna. Og þar orti Sunnlendingur til út- varpsins: Vertu þinnar þjóðar sál þrumaðu á himinboga meðan íslenskt ómar mál úti um land og voga. Sameinaðu sveit og borg, sendu burtu öfund. Blessaðu sérhvert tún og torg, tignaðu lífsins höfund. Háar leiðir ljósvakans lát oss boð þín færa. Sverð og skjöldur sannleikans sómi vor og æra. Broddi B. Bjarnason yrkir á morgungöngu í október. Morgunsólin gyllir grund, gleðin ekki mæðist. Vaknar heimur léttist lund, ljóð í huga fæðist. Hans Natansson Ketilssonar kvað: Langdælingar lifa við lítil efni, kátir, elska dyggð og sómasið sýnast mikillátir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Miðflokknum og Útvarpsvísur SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.