Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 60
MEISTARADEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðablik sá aldrei til sólar þegar
liðið heimsótti Real Madrid í B-riðli
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu á Alfredo Di Stéfano-völlinn í
Madríd á Spáni í gær.
Leiknum lauk með 5:0-stórsigri
Real Madrid en Caroline Möller,
framherji Real Madrid, gerði sér lítið
fyrir og skoraði þrennu í leiknum.
Títtnefnd Möller kom Real Madrid
yfir strax á 6. mínútu og hún tvöfald-
aði forystu Madrídinga á 20. mínútu.
Möller var hvergi nærri hætt og full-
komnaði þrennuna undir lok fyrri
hálfleiks.
Olga Carmona bætti við fjórða
marki Real Madrid á 47. mínútu áður
en Lorena Navarro skoraði fimmta
markið á 89. mínútu og þar við sat.
Komust aldrei í takt við leikinn
Blikar voru afar ólíkir sjálfum sér
allan tímann og komust í raun aldrei í
neinn takt við leikinn. Þeim gekk af-
leitlega að halda í boltann og tókst
aldrei að spila sig almennilega út úr
frábærri hápressu Madrídinga.
Þá voru margir leikmenn í vand-
ræðum með fyrstu snertingu sína og
þar af leiðandi voru spilkaflar liðsins
aldrei langir þar sem þær töpuðu
boltanum klaufalega trekk í trekk,
oftast á eigin vallarhelmingi.
Liðið sýndi frábæra takta í fyrstu
umferð riðlakeppninnar gegn París
SG á Kópavogsvelli þar sem liðið
varðist gríðarlega vel sem ein heild
og gaf stórstjörnum Parísarliðsins
lítið sem ekkert pláss til að vinna
með á eigin vallarhelmingi.
Ef til vill var spennan of mikil far-
andi inn í leikinn en Blikar nutu ekki
sama stuðnings og þeir gerðu á
Kópavogsvelli í fyrstu umferðinni, og
munar eflaust um minna, enda gáfu
stuðningsmennirnir liðinu mikinn
aukakraft gegn Frakklandsmeist-
urum París SG.
Breiðablik er sem fyrr án stiga í
þriðja og næstneðsta sæti riðilsins án
stiga eftir fyrstu tvo leiki sína, líkt og
Zhytlobud Kharkiv, en París SG og
Real Madrid eru í efstu tveimur sæt-
unum með sex stig hvort.
Næsti leikur Breiðabliks í Meist-
aradeildinni er útileikur gegn
Zhytlobud Kharkiv í Úkraínu 9. nóv-
ember og liðið tekur svo á móti úkra-
ínska liðinu á nýjan leik á Kópavogs-
velli, átta dögum síðar.
Blikar ólíkir sjálfum sér
gegn stórliði Real Madrid
- Caroline Möller fór á kostum fyrir Madrídinga og skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Ljósmynd/Real Madrid
Vörn Blikinn Kristín Dís Árnadóttir hendir sér fyrir skot danska landsliðsframherjans Caroline Möller í gær.
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Meistaradeild kvenna
A-RIÐILL:
Wolfsburg – Servette............................... 5:0
Juventus – Chelsea .................................. 1:2
Staðan:
Chelsea 2 1 1 0 5:4 4
Wolfsburg 2 1 1 0 8:3 4
Juventus 2 1 0 1 4:2 3
Servette 2 0 0 2 0:8 0
B-RIÐILL:
París SG – Zhytlobud Kharkiv................ 5:0
Real Madrid – Breiðablik ........................ 5:0
Staðan:
París SG 2 2 0 0 7:0 6
Real Madrid 2 2 0 0 6:0 6
Zhytlobud K. 2 0 0 2 0:6 0
Breiðablik 2 0 0 2 0:7 0
England
Deildabikarinn:
London City Lioness – West Ham.......... 0:1
- Dagný Brynjarsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá West Ham á 84. mínútu.
>;(//24)3;(
Olísdeild karla
FH – Víkingur ...................................... 31:24
Staðan:
ÍBV 3 3 0 0 91:83 6
Valur 3 3 0 0 84:65 6
FH 5 3 0 2 133:124 6
Haukar 4 2 1 1 114:105 5
Fram 3 2 0 1 80:75 4
KA 3 2 0 1 82:78 4
Stjarnan 2 2 0 0 66:63 4
Afturelding 3 1 1 1 87:86 3
Selfoss 4 1 0 3 96:109 2
Grótta 3 0 0 3 66:71 0
HK 3 0 0 3 75:89 0
Víkingur 4 0 0 4 88:114 0
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Aalborg – Meshkov Brest................... 34:33
- Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
Vardar Skopje – Montpellier ............. 25:31
- Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði
ekki fyrir Montpellier.
Staðan:
Aalborg 6, Kiel 6, Montpellier 5, Pick Sze-
ged 5, Vardar Skopje 5, Elverum 2, Zagreb
1, Meshkov Brest 0.
B-RIÐILL:
Kielce – Flensburg .............................. 37:29
- Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk
fyrir Kielce og Sigvaldi Björn Guðjónsson
skoraði 1 mark.
Staðan:
Kielce 6, Barcelona 4, Vezprém 4, Porto 4,
París SG 3, Dinamo Búkarest 2, Motor 2,
Flensburg 1.
Danmörk
Skanderborg – Esbjerg ...................... 23:32
- Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir-
Skanderborg.
Noregur
Nærbo – Drammen.............................. 26:39
- Óskar Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir
Drammen.
Sviss
Spono Eagles – Zug............................. 28:31
- Harpa Rut Jónsdóttir var ekki í leik-
mannahópi Zug.
E(;R&:=/D
Subway-deild kvenna
Fjölnir – Keflavík ................................. 77:89
Valur – Breiðablik ................................ 73:70
Grindavík – Njarðvík......................... (42:44)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Staðan fyrir leik Grindav. og Njarðv.:
Valur 3 3 0 259:209 6
Keflavík 3 2 1 232:213 4
Njarðvík 2 2 0 137:119 4
Haukar 2 1 1 128:129 2
Grindavík 2 1 1 152:163 2
Fjölnir 3 1 2 213:231 2
Breiðablik 3 0 3 210:231 0
Skallagrímur 2 0 2 136:172 0
Evrópubikar FIBA
D-RIÐILL:
Saratov – Zaragoza........................... 100:80
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði ekki fyr-
ir Zaragoza en tók eitt frákast, gaf eina
stoðsendingu og stal boltanum einu sinni.
F-RIÐILL:
Antwerp Giants – Sporting................ 80:75
- Elvar Már Friðriksson skoraði 18 stig
fyrir Antwerp, gaf sjö stoðsendingar og tók
fjögur fráköst á 32 mínútum.
>73G,&:=/D
Körfuknattleikur
Evrópubikar kvenna:
Ásvellir: Haukar – Villeneuve d’Ascq. 19.30
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Vestri................ 18.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Njarðvík............ 19.15
Origo-höllin: Valur – Grindavík .......... 20.15
Meistaravellir: KR – Tindastóll .......... 20.15
1. deild karla:
Flúðir: Hrunamenn – Fjölnir .............. 19.15
Í KVÖLD!
Elvar Már Friðriksson átti stórleik
fyrir Antwerp Giants þegar liðið
tók á móti Sporting í F-riðli Evr-
ópubikars FIBA í körfuknattleik í
Belgíu í gær. Leiknum lauk með
80:75-sigri Antwerp en Elvar skor-
aði 18 stig, tók fjögur fráköst og
gaf sjö stoðsendingar í leiknum og
var stigahæsti maður vallarins.
Mikið jafnræði var með liðunum
allan leikinn en Antwerp leiddi með
fimm stigum í hálfleik, 42:37.
Antwerp er með tvö stig í efsta
sæti F-riðils, líkt og Ionikos, en Bel-
fius Mons og Sporting eru án stiga.
Stórleikur í
Evrópubikar
Ljósmynd/FIBA
Belgía Elvar Már fór á kostum fyrir
Antwerp Giants gegn Sporting.
Aron Pálmarsson er orðinn leikfær á
ný og kom mjög við sögu í sigri Ála-
borgar í Meistaradeildinni í hand-
knattleik í gær. Aalborg vann Mes-
hkov Brest 34:33 eftir spennandi leik
í A-riðli keppninnar. Aron skoraði
tvö mörk fyrir Alborg í leiknum en
gaf auk þess sjö stoðsendingar á liðs-
félagana.
Haukur Þrastarson er einnig kom-
inn á ferðina eftir krossbandsslit og
skoraði tvö mörk þegar Kielce burst-
aði Flensburg 37:29. Sigvaldi Björn
Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir
pólska liðið. kris@mbl.is
Aron átti þátt í
níu mörkum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistaradeildin Aron Pálmarsson
gaf sjö stoðsendingar í gær.
FH vann öruggan sigur á Víkingi
31:24 í Olís-deild karla í hand-
knattleik í Kaplakrika í gærkvöldi.
Það tók þó tíma fyrir Hafnfirð-
inga að hrista nýliðana af sér.
Leikurinn var í járnum í tæplega
fjörutíu mínútur. Var staðan 18:16
fyrir Hafnfirðinga á 39. mínútu en
þá tókst FH að stinga af. FH var
yfir 13:12 að loknum fyrri hálfleik.
Stórskyttan Egill Magnússon
var markahæstur FH-inga með
níu mörk og Einar Örn Sindrason
skoraði fimm. Þjóðverjinn Phil Dö-
hler varði 17 skot í marki FH.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson rað-
aði inn mörkum fyrir Víkinga og
skoraði 11 mörk í aðeins fjórtán
tilraunum. Þar af voru fimm af
vítalínunni. Hjalti Már Hjaltason
og Arnar Steinn Arnarsson komu
næstir hjá Víkingi með þrjú mörk
hvor. Jovan Kukobat varði 15 skot
fyrir Víking.
FH hefur unnið þrjá af fyrstu
fimm leikjum sínum en Víkingur
hefur tapað fyrstu þremur.
sport@mbl.is
Egill og Jóhann Reynir
röðuðu inn mörkum
mbl.is/Árni Sæberg
Í Kaplakrika Arnar Gauti Grettisson í dauðafæri á móti Phil Döhler.