Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI T H E T E L E G R A P H S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T 90% F R Á L E I K S T J Ó R A T H E R I T U A L R E B E C C A H A L L N I G H T H O U S E T H E T O D A R K A N D D A N G E R O U S P L A C E S” “A F I L M T H A T A L L O W S T H E M I N D T O G O S I L V E R S C R E E N R I O T 86% O R I G I N A L C I N T H E A U ST I N C H R O N I C L E SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ 84% N æturhúsið er vönduð hroll- vekja og tekst David Bruckner listilega að flétta saman ástarmissi og þunglyndi við formúlu hryllings- myndagreinarinnar. Myndin, sem var frumsýnd á Sundance-kvikmynda- hátíðinni í byrjun síðasta árs, fylgir kennaranum Beth (Rebecca Hall) á meðan hún tekst á við ýmsar tilfinn- ingar sem koma upp á yfirborðið eftir að eiginmaður hennar, Owen (Evan Jonigkeit) fremur sjálfsvíg. Í fyrstu virðist kvikmyndin fjalla um eiginkonu sem uppgötvar leynilíf eiginmanns síns eftir lát hans, hún finnur til dæmis í tölvunni hans mynd- ir af öðrum konum, sem allar eru líkar henni. Hins vegar þegar líður á söguna finnur hún teikningar, glósur og muni í tengslum við myrku öflin. Ljóst er að Owen var að fela eitthvað miklu myrk- ara en framhjáhald. Beth lærir fljót- lega að hún er öruggari núna þegar eiginmaðurinn er látinn en þegar hún svaf í sama rúmi og hann. Það stoppar hana hins vegar ekki í að kalla hann fram sem draug. Þráin og söknuður- inn verður ekki yfirsterkari óttanum heldur er líkt og þær tilfinningar sam- einist. Reimleikahúsið í myndinni er mód- ernískt heimili við vatnið sem Owen hafði byggt fyrir þau hjónin. Þar hellir Beth í sig koníaki og leitar svara í um- hverfinu sem allt í einu virðist lifna við eins og þegar kveikt er á tónlistinni og bankað á dyrnar um miðja nótt eða þegar hún sér blóðug fótspor á heima- gerðu bryggjunni þar sem eiginmað- urinn skaut sig í höfuðið. Óljóst er bæði fyrir áhorfendum og Beth hvort hún sé vakandi eða í draumi en þannig tekst Bruckner að framkalla ókenni- leikann enda er það óvissan sem reyn- ist vera hryllilegust. Beth er tilbúin til að fórna eigin lífi fyrir svör við spurningum sínum. Í því annarlega ástandi sem Beth er býður hún myrkrinu inn, og ekki í fyrsta skiptið. Hér er ekki einungis átt við reimleikann heldur getur myrkrið einnig átt við um þunglyndið sem Beth hefur tekist á við alla ævi. Það hafði alltaf verið hún sem þurfti að bæla nið- ur myrkrið en ekki Owen og kom það því henni og öllum í kringum hana mjög á óvart að hann skyldi falla fyrir eigin hendi. Rebecca Hall fer á kostum sem Beth og sýnir fimlega blöndu af reiði, sorg og forvitni sem fylgir því að missa ástvin án nokkurra svara. David Bruckner gefur leikmyndinni stórt hlutverk í kvikmyndinni með því að láta reimleikahúsið lifna við í gegn- um leikmyndina. Kvikmyndatökumað- urinn, Elisha Christian, breytir yfir- borði heimilisins í hreyfanlegt púsluspil. Draugurinn eða veran í hús- inu birtist sem skuggi eða útlínur ým- issa hluta í rýminu sem enn og aftur fær áhorfendur og Beth til að efast um reimleikann í húsinu sjálfu. Myndin neitar þannig að segja áhorfendum hvað þeir eigi að hugsa eða útskýra fyrir þeim hvað sé á seyði. Bruckner er þó óneitanlega betri í að byggja upp spennu en að leysa hana og neitar áhorfendum um úrlausn svo þeir sitja svekktir en skíthræddir eftir í lok kvikmyndarinnar. Forvitni „Rebecca Hall fer á kostum sem Beth og sýnir fimlega blöndu af reiði, sorg og forvitni sem fylgir því að missa ástvin án nokkurra svara,“ segir í dómi um hryllingsmyndina Næturhúsið í leikstjórn Davids Bruckners. Bíó Paradís Næturhúsið/The Night House bbbmn Leikstjórn: David Bruckner. Handrit: Ben Collins, Luke Piotrowski. Aðalleik- arar: Rebecca Hall, Sarah Goldberg og Vondie Curtis-Hall. Bretland og Banda- ríkin, 2020. 107 mínútur. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Reimleiki eiginkonunnar B arnalestin er einlæg saga um átök í barnssál Amer- igos, ungs drengs sem býr við þröngan kost með móð- ur sinni í Napólí. Sagan er byggð á sönnum atburðum; því þegar fátæk börn úr suðrinu voru send til Norður- Ítalíu til þess að búa við betri að- stæður um tíma. Eftir að vera sendur norður í allsnægtirnar á Amerigo erf- itt með að koma heim og stendur hann frammi fyrir þeim afarkostum að dvelja með móð- ur sinni í fátæktinni eða yfirgefa hana til þess að hætta að lifa við skort. Ég hef aldrei brosað jafn mikið út í annað við lestur nokkurrar bókar, af hreinni meðaumkun með Amerigo, vegna barnslegrar einlægninnar og alltumlykjandi húmorsins sem minnti oftar en ekki á það hve kaldur veru- leiki aðalsögupersónanna er. Barnalestin minnir óneitanlega á Napólísögur Elenu Ferrante, sér- staklega með tilliti til þess hve stóran þátt umhverfið á í sögunni sjálfri. Lesandinn fær að sjá bæði norðrið og suðrið með augum barnsins, for- vitnum, leitandi og fölskvalausum. Tilfinningin fyrir umhverfinu verður því ekki uppskrúfuð heldur eðlileg og er auðvelt að staðsetja sig í sögunni þrátt fyrir að veröldin sem þar er sagt frá sé órafjarri íslenskum veruleika á 21. öldinni. Þýðingin spilar eflaust þar inn í en hún var í höndum Höllu Kjartansdóttur og er afar vel úr garði gerð. Hver einasta persóna bókarinnar er áhugaverð; Amerigo, sem getur fengið allt sem hann vill ef hann fórn- ar öllu sem hann hefur; Antonietta móðir hans sem á erfitt með að sýna honum ást þótt ástin sé augljóslega til staðar; Járnhausinn sem Amerigo bæði fyrirlítur og dáist að; Pachio- achia og Zandragliona sem aldrei geta verið sammála; Derna sem óvart eignast son í Amerigo og svo mætti lengi telja. Þótt varla sé illsku að finna í nokkurri persónu eru þær flestar þrívíðar og fær lesandinn að kynnast bæði kostum þeirra og göllum. Ég tók ástfóstri við nánast hverja einustu persónu og átti erfitt með að kveðja, svo mannlegar voru persónurnar sem birtust á síðum bókarinnar. Þótt Barnalestin sé laus við mest- allan æsing er söguþráðurinn spenn- andi, kannski einmitt vegna þess hve auðvelt er að finna til væntumþykju í garð Amerigos. Vegna þess hve áhugasöm ég var um vendingar í lífi litla mannsins, og ákvarðanir sem gátu bæði fært honum gott og illt, átti ég erfitt með að leggja bókina frá mér. Stuttir kaflarnir gera það líka að verkum að það er auðvelt að réttlæta það fyrir sjálfri sér að taka „bara einn kafla enn“ fyrir svefninn, kafla sem hæglega urðu tíu eða fleiri. Bókin er því eintak sem undirrituð mælir með að sé lesin í einum rykk. Hún mun bæði hlýja lesanda sínum og fylla hann depurð, kalla fram bæði bros og einstaka tár. Ljósmynd/Alferje Prestia Viola Ardone Gagnrýnandinn mæl- ir með því að saga hennar, Barna- lestin, sé lesin í einum rykk. Allt sem þú átt fyrir allt sem þú vilt Skáldsaga Barnalestin bbbbn Eftir Violu Ardone. Halla Kjartansdóttir þýddi. Mál og menning, 2021. 244, kilja. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.