Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 66

Morgunblaðið - 14.10.2021, Page 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 JÓLALÍNA HEKLU 2021 KRINGLUNNI – SMÁRALIND – DUKA.IS Kerti 1.990,- Eldspýtur 890,- Viskastykki 2.950,- Servíettur 990,- NÝTT Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hipsumhaps heldur 12. nóvember næstkomandi stórtónleika í Eldborg í Hörpu. Hljómsveitin mun þá flytja lög af annarri breiðskífu sinni, Lög síns tíma, sem kom út í maí, í síðasta sinn ásamt öllum helstu lögum af fyrstu plötunni. Platan Lög síns tíma mun svo fara endanlega út af öllum streymisveitum í ársbyrjun 2022 og mun eftir það standa enn betur undir nafni en fram að nýársdegi verður hægt að kaupa hana í stafrænu formi á heimasíðu Hipsumhaps. Mun hluti af ágóða plötusölunnar renna til Vot- lendissjóðs. Ferðalag og konseptplata Fannar Ingi Friðþjófsson, mað- urinn á bak við Hipsumhaps, mun koma fram með hljómsveit á tónleik- unum og er hann spurður af hverju platan verði á þeim leikin í síðasta sinn. „Þetta er náttúrlega óður til tíð- arandans og mörg þemu og pælingar við gerð plötunnar stilla svolítið inn á það konsept, bara eins og það að fyrsta lag plötunnar heitir „2021“. Ég vildi gera plötu sem á sitt tímabil og fólk heimsækir kannski eftir mörg ár og hlustar á og fær tilfinninguna „já, 2021“,“ segir Fannar. „Þetta er ferðalag, ég hugsa um þetta sem konseptplötu, þú hlustar á lög eitt til tíu og fyrir mér er mjög fallegur og persónulegur útgangspunktur á þessari plötu. Tónleikarnir voru alltaf hugsaðir sem útgáfa plötunnar, við töluðum um þessa tónleika við gerð plötunnar, að við ætluðum að spila hana í Eldborgarsalnum í Hörpu. Það er stórt sánd á henni og hvern langar ekki að stíga á svið Eldborgar og spila eigið verk?“ segir Fannar. Takmarkaður tími Fannar segist lengi hafa langað til að gera tónlist sem ætti sér ákveðið og takmarkað tímabil, líkt og leikrit sem sýnt er í ákveðinn tíma og snýr svo aldrei aftur á svið í sama búningi. „Sú pæling gengur mjög vel upp með plötu sem heitir þetta,“ segir Fannar um Lög síns tíma og að honum hafi þótt samhljómur með þeirri hug- mynd og þeim skilaboðum sem hann vildi senda með plötunni, þ.e. að beina athyglinni að málefnum náttúr- unnar. Náttúran sé alltaf æðri átök- um og árekstrum mannsins. „Þess vegna fannst mér mjög táknrænt að fá að nota jöklamynd eftir RAX á plötuumslagið. Þegar fólk heimsækir þessa plötu eftir mörg ár, segjum 50 ár, er þessi jökull kannski ekki til staðar lengur vegna hlýnunar jarðar. Þetta er því opin spurning til hlust- enda.“ Sem fyrr segir verður hægt að kaupa stafrænt eintak af plötunni fram til 1. janúar 2022 og ágóðinn rennur í Votlendissjóð. Eftir 1. jan- úar verður platan bara til hjá þeim sem keyptu hana. „Þetta er eins og að kaupa sér vínyl nema að þú átt skjöl sem varðveitast og þá jafnvel betur en vínyllinn,“ bendir Fannar blaðamanni á. Lífið er núna Fannar segir tónlistargeirann á Ís- landi hafa fundið vel fyrir því í kófinu hvað hann sé háður samkomum hvað afkomu varðar. Um leið fjölgi sífellt stafrænum vörum í heimi tónlistar og með þeim einnig hægt að búa til virði úr tónlistinni. „Það er ekki mikið tekjutap í því að taka tónlist út af Spotify en auðvitað er þetta frekar djarft,“ bendir Fannar á þar sem greiðslur til tónlistarmanna séu afar litlar hjá veitunni fyrir spilanir. Því verði það ekki mikil fórn að segja skilið við veiturnar. Hann segist að lokum fullur tilhlökkunar fyrir tón- leikunum og hvetur fólk til að fjöl- menna á þá og gera úr góða kvöld- stund með fjölskyldu og vinum. „Lífið er núna,“ segir Fannar. Þeir sem hafa hug á að kaupa plöt- una umræddu geta gert það á vef Hipsumhaps, hipsumhaps.is. Miða- sala á tónleikana fer fram á tix.is. Óður til tíðarandans - Hipsumhaps fagnar útgáfu Laga síns tíma í Eldborg og rennur ágóði af sölu plötunnar til Votlendissjóðs Morgunblaðið/Eggert Spenntur Fannar Ingi er fullur tilhlökkunar fyrir tónleikum Hipsumhaps. Kvikmyndahátíðin The Pigeon Int- ernational Film Festival (PIFF), sem haldin er á norðanverðum Vest- fjörðum, hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Sýndar verða 70 mynd- ir á hátíðinni og er Ísafjarðarbíó aðalsýningarstaðurinn. Þar verða myndir sýndar í fjóra daga, í tvo daga í Bolungarvík og á Suðureyri. Þá verða tvær sýningar í Súðavík. Í tilkynningu frá aðstandendum PIFF segir að tvær langar íslenskar kvikmyndir verði sýndar og fjórar íslenskar stuttmyndir, þar á meðal verðlaunaðar myndir. Ókeypis verð- ur á sýningar í Bolungarvík, Súða- vík og á Suðureyri en hægt verður að kaupa passa á allar myndirnar á Ísafirði, eða kaupa staka miða á hverja sýningu. Meðal kvikmynda sem verða sýndar er hin ítalska EST sem hefur, að sögn aðstandenda PIFF, verið að gera það gott á hátíðum víða um lönd. Tveir aðstandendur EST verða gestir á hátíðinni en alls munu um 30 erlendir gestir, sem tengjast kvik- myndum sem sýndar verða, sækja hana heim. Sérstök áhersla verður á fjöl- breytilegar pólskar kvikmyndir en yfir 20 pólskar myndir verða sýnd- ar, þar á meðal fræðslumyndir, teiknimyndir og stuttmyndir. Kvikmyndahátíðin PIFF á Vestfjörðum Fjölbreytileg Sena úr ítölsku kvikmyndinni EST sem verður sýnd á hátíðinni. S veitasæla, ungar ástir, ósætti innan fjölskyldunnar, huldu- konur og framhjáhald. Skáldsagan Kynslóð minnir einna helst á gamla og góða íslenska kvikmynd frá árinu 2000 eða hugljúft ástarlag Vilhjálms Vilhjálmssonar. Frásagnir af sveitaböllum og fasta- gestum á veitingaskála vekja nostalg- íu og er skáldsag- an ágætis frumraun Hörpu Rúnar Kristjáns- dóttur. Hefur bakgrunnur höf- undar sem ljóð- skálds fengið að njóta sín. Kynslóð er saga mæðgnanna Maríönnu Maístjörnu, eða Önnu eins og hún er oftast kölluð, og Helgu sem búsettar eru í ónefndu sjávarplássi á landsbyggðinni. Söguþráðurinn ger- ist að mestum hluta í samtíðinni þótt greina megi ákveðinn fortíðarblæ í frásögninni með rómantíseruðum lýs- ingum af sveitalífinu. Í upphafi bókar fær lesandi að skyggnast 20 ár aftur í tímann á ball þar sem hin 15 ára Helga kolfellur fyrir sjarmatrölli sveitarinnar, Örv- ari. Stutt kynni þeirra þetta kvöld leiða að lokum til þess að Helga situr uppi með að ala upp barnið þeirra Önnu, ein með hjálp fjölskyldu sinnar. Bókin fjallar um líf mæðgnanna 20 árum síðar. Á meðan dóttirin hefur fest ráð sitt og búið sitt heimili er móðirin enn með öllu rótlaus, ríghald- andandi í vonina um að endurheimta barnsföður sinn sem er löngu kominn með nýja unnustu. Stopult samband mæðgnanna er dregið fram með skýrum hætti strax í upphafi bókar. Sektarkennd, um- hyggja, reiði og ást. Höfundi tekst með sannfærandi hætti að greina frá snúna sambandinu þeirra á milli og þeim tilfinningarússíbana sem fylgir því að verða sífellt fyrir vonbrigðum með manneskjuna sem þú elskar. Líf Önnu, sem foreldrar hennar eru nú þegar að flækja með þrálátu framhjáhaldi, er síðan sett enn frekar í uppnám þegar nýi strákurinn í vinnunni vekur óvæntar tilfinningar sem gætu raskað stöðugu framtíðar- plönunum hennar. Hvað skal gera þegar kærastinn til margra ára sem ekki hefur gert neitt rangt er hættur að vekja áhuga? Þrátt fyrir að landsbyggðar- sjarminn sé í stóru aðahlutverki snertir höfundur einnig á þeirri tog- streitu sem ungt, jafnt sem eldra fólk, í dreifbýli upplifir gjarnan gagnvart borgarlífinu. Er grasið ávallt grænna hinum megin við girðinguna eða eru fyrirheit um betra líf í þéttbýlinu innantóm loforð sem hafa viðgengist í of langan tíma. Hvers vegna eru heimaslóðirnar ekki nóg fyrir suma? Ef búferlaflutningar eru eina leiðin til að víkka sjóndeildarhringinn og öðl- ast reynslu, hvað segir það þá um sveitungana sem aldrei hafa flust um set? Kynslóð er þægileg lesning um líf ungs fólks á landsbyggðinni sem vek- ur góðar minningar úr mínu eigin lífi. Bókin er hugljúf en tekst jafnframt á við flókin fjölskyldusambönd, tog- streitu við borgarlífið og almennar spurningar um ástina, lífið og til- veruna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Rún „Bókin er hugljúf en tekst jafnframt á við flókin fjölskyldu- sambönd, togstreitu við borgarlífið og almennar spurningar um ástina, lífið og tilveruna,“ skrifar gagnrýnandi um fyrstu skáldsögu höfundarins. Nútíma- sveitasæla Skáldsaga Kynslóð bbbmn Eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Bjartur 2021. Innbundin, 295 bls. HÓLMFRÍÐUR MARÍA RAGNHILDARDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.