Morgunblaðið - 14.10.2021, Síða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
Þín útivist - þín ánægja
RAGNA Ecodown® úlpa
Kr. 27.990.-
HEIÐI barna úlpa
Kr. 18.990.-
Vindur úlpa fyrir börn
Kr. 18.990.-
RAGNAR Ecodown® úlpa
Kr. 27.990.-
HILDA dúnúlpa
Kr. 67.990.-
FUNI Dúnúlpa
Kr. 33.990.-
FÍFA síð Ecodown® úlpa
Kr. 29.990.-
Eyjafjallajökull hlý dúnúlpa
Kr. 48.990.-
T
jaldið nefnist nýjasta sýn-
ingin úr smiðju leikhópsins
Miðnætti sem leikstjórinn
Agnes Wild, tónlistar-
konan Sigrún Harðardóttir og leik-
mynda- og búningahönnuðurinn Eva
Björg Harðardóttir standa að. Leik-
hópurinn hefur á síðustu árum vakið
verðskuldaða athygli fyrir vandaðar
barna- og fjölskyldusýningar sínar
og má í því samhengi nefna brúðu-
sýningarnar Geim-mér-ei, sem
frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu í
janúar, og Á eigin fótum, sem frum-
sýnd var í Tjarnarbíói 2017, og ný-
sirkussýninguna Allra veðra von í
samstarfi við Hringleik, sem frum-
sýnd var í Tjarnarbíói í vor. Sýningin
Tjaldið er hugsuð fyrir ögn yngri
áhorfendur en fyrri sýningar hóps-
ins, því hún er ætluð börnum frá
þriggja mánaða aldri til þriggja ára í
fylgd með foreldrum sínum eða öðr-
um fullorðnum. Jafnframt er hún
hugsuð sem meira upplifunarleikhús
því áhorfendum býðst að taka virkan
þátt í tónsköpun flytjenda með hrist-
um og söng, dansa og fara í feluleik
með litríkar slæður og stjórna
fingrabrúðum meðan á sýningunni
stendur, sem auðgar upplifunina.
Á Nýja sviðinu ganga gestir inn í
stórt hvítt tjald og býðst þar að velja
sér sæti á mjúku grænu teppi með
börn sín eða á látlausum stólum.
Fyrir miðju tjaldinu er ljós motta
sem markar leiksvæði sirkuslista-
mannsins Nicks Candy og tónlistar-
konunnar Sigrúnar Harðardóttur
sem fara með hlutverkin í leiknum,
en hún semur einnig ljómandi tónlist
sem þjónar framvindunni vel. Þau
taka syngjandi glöð á móti gestum
og kynna þeim reglur tjaldsins þar
sem taka má virkan þátt án þess þó
að fara inn á leikmottuna og minna á
að auðvelt sé að bakka út úr tjaldinu
ef einhver finnur fyrir ótta eða óró-
leika og koma inn aftur þegar við-
komandi treystir sér. Leikmynd Evu
Bjargar Harðardóttur býður auk
tjaldsins og mjúks gólfefnis upp á
sessur af ólíkum stærðum sem luma
sumar á litríkum glaðningi og ljóm-
andi tré sem nýtist til að geyma ýmis
þau hljóðfæri sem leikið er á, svo
sem ukulele, fiðlu, banjó og klukku-
spil, sem notað er með skemmti-
legum hætti í hvert sinn sem komið
er að því að taka saman.
Í sýningunni kynnast áhorfendur
maríubjöllunni Maríu (Sigrún
Harðardóttir) sem býr í tjaldinu og
og lirfunni Leifi (Nick Candy) sem
kemur dag einn óvænt í heimsókn.
Við sjáum hvernig persónurnar tvær
kynnast, syngja saman, leika sér og
dansa, en góðar sviðshreyfingar
koma úr smiðju Juliette Louste.
Leifur er sísvangur og reynir að
borða flestallt sem hann kemst yfir
við mikla kátínu leikhúsgesta. Gam-
an var til dæmis þegar full skál af
hristum breyttist í máltíð fyrir lirf-
una. Talað mál er í algjöru lágmarki í
sýningunni og leikarar notast við
einföld tákn til að undirstrika merk-
inguna, sem þýðir að sýningin er til-
valin fyrir öll börn óháð tungumáli.
Eftir að hafa dansað, spilað, sung-
ið og æft sig í því að ganga frá kemur
nóttin sem býður upp á mikið sjón-
arspil með hrífandi lýsingu Ólafs
Ágúst Stefánssonar. Fyndið var að
fylgjast með Leifi liðast í svefni þar
sem hann skríður hátt upp í loft á
hvítum silkiströngum sem hylja
hann að lokum alveg. Morguninn eft-
ir þegar María kemur að finna nýja
vin sinn er hann horfinn, en fljótlega
kemur í ljós að hann hefur tekið fal-
legum umbreytingum í púpu sinni og
er orðinn að fiðrildi, sem kallast með
góðum hætti á við fljúgandi fiðrildið
sem heillaði hann fyrr í verkinu.
Einföld sagan fangar áhorfendur
auðveldlega og það eykur á upplifun
þeirra að fá að taka virkan þátt í
framvindunni. Áhugavert var að sjá
hvernig sum börn í hópi áhorfenda
voru fremur feimin við verur sviðs-
ins til að byrja með en farin að
skríkja og dansa af gleði áður en yfir
lauk. Allt hjálpast þar að til að gera
Tjaldið að frábærri fyrstu leikhús-
upplifun yngstu áhorfendanna. Hér
er boðið upp á sannkallaða veislu
fyrir skynfærin þar sem leikið er
með tóna og allan litaskalann sem
þroskar, auðgar og gleður andann
auk þess sem hæfileg endurtekning
eykur öryggið. Allt er gert af alúð og
mýkt sem skilar sér í töfrandi leik-
hússtund.
Töfrandi leikhússtund í tjaldinu
Ljósmynd/Eyþór Árnason
Borgarleikhúsið
Tjaldið bbbbn
Eftir Agnesi Wild, Sigrúnu Harðar-
dóttur, Nick Candy og Evu Björgu Harð-
ardóttur. Leikstjórn: Agnes Wild. Leik-
mynd, búningar og brúður: Eva Björg
Harðardóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stef-
ánsson. Tónlist og hljóðmynd: Sigrún
Harðardóttir. Sviðshreyfingar og aðstoð
við lýsingu: Juliette Louste. Flytjendur:
Nick Candy og Sigrún Harðardóttir.
Leikhópurinn Miðnætti frumsýndi á
Nýja sviði Borgarleikhússins sunnudag-
inn 10. október 2021 kl. 11, en rýnt er í
2. sýningu á sama stað, sama dag kl. 13.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Alúð „Allt er gert af
alúð og mýkt sem skil-
ar sér í töfrandi leik-
hússtund,“ segir í rýni
um sýninguna Tjaldið.
Kvikmyndin Dýrið, frumraun
Valdimars Jóhannssonar leikstjóra,
er tilnefnd til Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna 2021 í flokkn-
um Uppgötvun ársins en um er að
ræða fyrstu kvikmyndir leikstjóra í
fullri lengd. Valdimar skrifaði
handritið að kvikmyndinni með
Sjón en í aðalhlutverkum eru
Noomi Rapace, Hilmir Snær
Guðnason og Björn Hlynur Har-
aldsson. Dýrið var verðlaunuð á
kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir
að vera frumlegasta kvikmyndin.
Aðrar kvikmyndir sem tilnefndar
eru í sama flokki til Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna eru hin
fransk-georgíska Beginning sem
Dea Kulumbegashvili leikstýrir;
belgíska myndin Un Monde sem
skrifuð var og leikstýrt af Lauru
Wandel; Pleasure, sem er sænsk-
hollensk-frönsk framleiðsla, leik-
stýrt af Ninju Thyberg, hin bresk-
bandaríska Promising Young Wo-
man, sem var skrifuð og leikstýrt af
Emerald Fennell; og rússnesk-
pólsk-belgíska kvikmyndin Kito-
boy, leikstjóri og handritshöfundur
Philipp Yuryev.
Tilnefnd til Evrópsku verðlaunanna
Dýrið Rapace í kvikmyndinni sem er til-
nefnd fyrir frumraun leikstjórans.
Mýrin barna-
bókmenntahátíð
hefst í dag, 14.
október, og
stendur til þess
16. Hátíðin, sem
er tvíæringur og
er nú haldin í tí-
unda sinn, fer
fram í Norræna
húsinu. Í ár ber
hún yfirskriftina
Saman úti í mýri.
Dagskrá hátíðarinnar saman-
stendur af málstofum, höfunda-
spjalli, vinnustofum fyrir börn og
skemmti- og menningardagskrá.
Fjöldi erlendra rithöfunda leggur
leið sína á hátíðina og er sérstök
áhersla lögð á verk höfunda frá
Eystrasaltsríkjunum. Meðal er-
lendra gesta hátíðarinnar eru hin
norska Kristin Roskifte sem hlaut
barnabókaverðlaun Norður-
landaráðs 2019 og hinn finnski
Timo Parvela en íslenskir þátttöku-
höfundar eru meðal annars Kristín
Helga Gunnarsdóttir, Hildur
Knútsdóttir og Sævar Helgi Braga-
son.
Barnabókmenntahátíðin Mýrin hefst
Kristín Helga
Gunnarsdóttir