Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
FAST SENDINGARGJALD MEÐ
PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER!
ENHAGEN
RÐLAMPI
95 kr. NÚ
.596 kr.
COHEN
LOFTLJÓS
24.995 kr.
NÚ 19.996 kr.
UMAGE CHIMES
34.995 kr. NÚ 27.996 kr.
VENICE GÓLFLAMPI
29.900 kr. NÚ 23.920 kr.
PEARL LOFTLJÓS
29.995 kr. NÚ 23.996 kr.
BALL VEGGLAMPI
GLOSSY NUDE/GLOSSY RED
13.995 kr. NÚ 11.196 kr.
20%
af öllum ljósum
20%
af perum
& kertum
Sparadu-
L jósadagar
14. - 18. október
COP
BO
16.9
13
PABLO
GÓLFLAMPI
24.995 kr.
NÚ 19.996 kr.
FLOA BORÐLAMPI
H33CM 17.995 kr. NÚ 14.396 kr.
H45CM 19.995 kr. NÚ 15.995 kr.
Hljómsveitin Brek fagnar útgáfu fyrstu plötu sinnar
með tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, 14.
október, kl. 20. Hin órafmagnaða tónlist sveitarinnar
sækir meðal annars áhrif í íslenskan þjóðlagaarf,
skandinavíska og bandaríska tónlist, djass og fleira og
áhersla er lögð á íslenska texta. Brek skipa Harpa Þor-
valdsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Guðmundur Atli
Pétursson og Sigmar Þór Matthíasson. Einnig kemur
fram dúettinn Tendra, skipaður þeim Marínu Ósk og
Mikael Mána. Miðasala er á tix.is og við dyr.
Áhrif frá íslenskum þjóðlagaarfi,
Skandinavíu og Bandaríkjunum
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breiðablik sá aldrei til sólar þegar liðið heimsótti Real
Madrid í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á
Alfredo Di Stéfano-völlinn í Madríd á Spáni í gær.
Leiknum lauk með 5:0-stórsigri Real Madrid en Car-
oline Möller, framherji Real Madrid, gerði sér lítið fyrir
og skoraði þrennu í leiknum. Blikar voru afar ólíkir
sjálfum sér allan tímann og komust í raun aldrei í neinn
takt við leikinn. Þeim gekk afleitlega að halda í boltann
og tókst aldrei að spila sig almennilega út úr hápressu
Madrídinga sem var frábær allan leikinn. »60
Breiðablik sá aldrei til sólar gegn
Real Madrid í Meistaradeildinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Á Íslandi býr fólk sem kemur víða
að úr heiminum og samfélagið verð-
ur sífellt fjölbreyttara. Samkvæmt
þeim aðstæðum þurfa opinberar
stofnanir að starfa, svo margir inn-
flytjendur búa hér á svæðinu,“ segir
Klaudia Karolsdóttir, lögreglumað-
ur á Ísafirði. Hún er pólsk að upp-
runa, kom hingað til lands 12 ára
gömul árið 2008 og er fyrir löngu
orðin Íslendingur. Klaudia hefur
staðið vaktir í liði lögreglustjórans á
Vestfjörðum frá 2017 og stefnir á
lögreglunám.
Tikkaði í öll boxin
Að vera orðin tvítug, með stúd-
entspróf, íslenskan ríkisborgararétt
og hreint sakavottorð. Þetta voru
svörin sem Klaudia fékk frá Hlyni
Hafberg Snorrasyni, yfirlögreglu-
þjóni á Vestfjörðum, þegar hún þá
18 ára gerði sér erindi á stöðina á
Ísafirði og spurði hvaða skilyrði
giltu svo hún kæmist í lögregluliðið.
„Ég miðaði allt mitt út frá þessu og
kom svo aftur á stöðina tveimur ár-
um síðar. Sagðist tikka í öll boxin og
spurði um vinnu. Hlynur gaf mér
tækifæri og svo var ég tekin inn á
vaktir. Hef verið í lögreglunni núna í
um fjögur ár og finn mig í starfinu.“
Klaudia er frá borginni Lomza í
NA-hluta Póllands. Faðir hennar
kom til starfa á Íslandi árið 2005, þá
til þess að afla tekna og sjá sínu fólki
farborða þegar þröngt var um vinnu
í heimalandinu. „Ég, bróðir minn og
móðir komum til Íslands árið 2008
og fórum til Suðureyrar, þar sem
pabbi hafði vinnu. Já, það var tals-
vert mál að ná íslenskunni en Snorri
Sturluson, minn frábæri kennari á
Suðureyri, tosaði mig í gegnum
þetta, sem ég er honum ævinlega
þakklát fyrir,“ segir Klaudia.
Verkefni lögreglumanna eru fjöl-
breytt og sum reyna á. „Ég hafði
verið aðeins þrjá mánuði í starfi þeg-
ar ég fór í útkall vegna voveiflegs at-
burðar. Sjálfsagt var ég alls ekki
undir verkefnið búin en stuðningur
frábærra vinnufélaga í kjölfarið
bjargaði mér. Umferð, ölvun, hávaði,
aðstoð við fólk í vanda og fleira;
þessu hef ég kynnst og líka að vera á
vettvangi í óveðri og áhættu. Íslend-
ingar bera virðingu fyrir lögregl-
unni; fylgja þeim lögum og fyrir-
mælum sem gilda þótt vissulega sé
til fólk sem er með ströggl og leið-
indi. Slíkt hendir alltaf, en þá er bara
að taka málum af festu en þolin-
mæði,“ segir Klaudia.
Tengiliður landa minna
Svæði Ísafjarðarstöðvar lögregl-
unnar á Vestfjörðum nær frá Dynj-
anda í suðri, út í Bolungarvík og inn í
Ísafjarðardjúp – alls sjö þéttbýlis-
staðir og um 5.000 íbúar. Í Ísafjarð-
arbæ er um fimmtungur íbúa inn-
flytjendur frá öðrum löndum.
„Stundum hendir í eftirlitsferðum
að við þurfum að hafa tal af fólki af
pólskum uppruna, sem er fjölmargt
hér á svæðinu. Því kemur sumu
hverju á óvart að hitta pólskumæl-
andi lögreglumann, sem líka hefur
þýtt að ég hef orðið tengiliður
margra landa minna hér á svæðinu
við lögregluna. Ýmis erindi og fyr-
irspurnir varðandi umferðarmál,
réttindi og fleira koma oft til beint til
mín, sem mér þykir vænt um að geta
sinnt,“ segir Klaudia Karolsdóttir að
síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ísafjörður Samfélagið verður sífellt fjölbreyttara, segir Klaudia, hér við lögreglubíl á leiðinni í eftirlitsferð.
Frá Póllandi í lögguna
- Klaudia á vaktinni á Ísafirði - Óveður og innflytjendur