Morgunblaðið - 25.10.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 2021
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
VIÐTAL
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
„Sumarvertíðin hefur gengið mjög
vel, það hefur verið stutt stopp á mið-
unum og síldin er stór og falleg,“
sagði Jón Axelsson, skipstjóri á Sig-
urði VE-15, stuttu eftir að hann kom í
höfn á Þórshöfn með 1.550 tonn af
stórri og fallegri síld. Var það síðasta
ferð hans til Þórshafnar í bili á þess-
ari vertíð.
Heldur meira þurfti að hafa fyrir
makrílveiðunum í sumar, sigling á
miðin var löng og makríllinn mjög
dreifður og erfiður viðureignar, að
sögn áhafnarinnar. Kolmunnaveiðar
taka nú við hjá áhöfn Sigurðar, sem
sigldi héðan til Vestmannaeyja þar
sem skipt var um veiðarfæri.
„Líklega verður þetta bara einn
kolmunnatúr og síðan aftur á síld-
veiðar í byrjun nóvember en þá er
það íslenska síldin sem veiðist djúpt
vestur af Reykjanesi,“ sagði Jón.
Hann segir margt benda til þess að
íslenski síldarstofninn sé að stækka
og einnig er norsk-íslenska síldin í
nokkuð lengri tíma hér við land en
áður fyrr.
Það styttist svo í loðnuvertíðina
sem miklar væntingar eru bundnar
við.
„Við byrjum líklega loðnuveið-
arnar djúpt út af Vestjörðum en á
þeim árstíma hefur veðrið mikið að
segja því allra veðra er von yfir vet-
urinn. Vonandi verður komin loðna
austan við Kolbeinsey eða á Gríms-
eyjarsvæðið í lok nóvember,“ sagði
Jón.
Upplifað tímana tvenna
Hann hefur alla starfsævi sína ver-
ið á sjónum og býr yfir mikilli
reynslu. Jón á að baki 21 ár hjá Ís-
félagi Vestmannaeyja og hefur fylgst
með breytingum og þróun í gegnum
tíðina. Á Sigurði VE-15 eru tveir
skipstjórar en á móti Jóni er Hörður
Már Guðmundsson sem einnig er
mikill reynslubolti.
Miklar breytingar hafa átt sér stað
í sjávarútvegi gegnum tíðina.
„Skipin stækka og allur aðbúnaður
hefur batnað. Sigurður VE-15 er
útbúinn öllum fullkomnasta búnaði
sem völ er á svo skipið fer mjög vel
bæði með mannskapinn og aflann,
einnig er stóraukinn tækni- og vél-
búnaður að öllu leyti um borð,“ sagði
Jón sem hefur upplifað tímana
tvenna í uppsjávarveiðum, svo sem
hrun loðnustofnsins oftar en einu
sinni. Sífellt stærri skip kalla einnig á
bætta hafnaraðstöðu í takt við þær
breytingar sem eiga sér stað.
Kláraði Járnmann á Ítalíu
En lífið er ekki bara síld og sjó-
mennska, Jón á sér ýmis áhugamál,
sem flest tengjast útivist og hreyf-
ingu. Á Þórshöfn má löngum sjá hon-
um bregða fyrir á hlaupum meðan
löndun stendur yfir en hann kláraði
Ironman-keppni á Ítalíu í haust.
Þangað fór hann ásamt Kristínu eig-
inkonu sinni þar sem þau luku Iron-
man 70,3 (½ Járnmanni) í september.
Jón og áhafnir Vestmannaeyja-
skipanna eyða einnig drjúgum tíma í
íþróttamiðstöðinni á Þórshöfn meðan
verið er að landa en löndun getur tek-
ið allt upp í 2-3 sólarhringa, eftir
stærð farmsins.
„Á Þórshöfn er hægt að finna sér
ýmislegt að gera, útivist eða veiðar
en íþróttahúsið og sundlaugin ásamt
stangveiði og skotveiði er líklega það
vinsælasta hjá okkar mönnum,“ sagði
Jón sem nú horfir bjartsýnn til næstu
loðnuvertíðar eftir góða og gæfuríka
sumarvertíð.
Bjartsýnn um loðnu
eftir gott sumar
- Jón Axelsson, skipstjóri á Sigurði VE, alltaf unnið til sjós
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Reynsluboltar Jón Axelsson, skipstjóri á Sigurði VE-15, til vinstri, og
Bjarki Kristjánsson yfirstýrimaður fá sér kaffisopa um borð og slaka á.
Morgunblaðið/Birkir Ingason
Þórshöfn Sigurður VE og gamli
Júpíter, minna skipið, við bryggju.
Hrundið hefur verið af stað í söfnuði
Hallgrímskirkju í Reykjavík fjár-
söfnun til stuðnings uppbyggingu
nýrrar kirkju í Grímsey. Sem kunn-
ugt er brann Miðgarðakirkja í sept-
ember sl. og að undanförnu hafa
margir heitið liðsinni sínu í því að
reisa megi nýtt guðshús sem fyrst.
„Kirkjur eru lífstákn hverrar
byggðar,“ sagði sr. Sigurður Árni
Þórðarson, sóknarprestur Hall-
grímskirkju, í gærmorgun í predik-
un við messu, sem var útvarpað á
Rás 1. Í kirkjunni á Skólavörðuholt-
inu í Reykjavík er hefð fyrir því að
baukar gangi meðal messugesta og
þannig er safnað peningum til vel-
ferðarmála. Núna er Grímsey og
bygging kirkju þar í deiglu. Auk
messusamskota hefur sóknarnefnd
Hallgrímskirkju ákveðið að leggja
fjármuni úr styrktarsjóði sínum í
Grímseyjarsöfnunina á móti því sem
safnast við guðsþjónustur.
„Oft hafa messusamskot í Hall-
grímskirkju á ári verið fimm til sjö
milljónir króna og nú bætist framlag
við úr sjóðum kirkjunnar. Vonandi
verður þetta eitthvað sem munar
um,“ segir Sigurður Árni í samtali
við Morgunblaðið. Í predikun sinni
lét hann þess getið að Hallgríms-
kirkja hefði að talsverðum hluta ver-
ið byggð fyrir samskotafé. Þá hefðu
margir sem starfi kirkjunnar tengj-
ast í dag tengsl við eyjuna frægu á
heimskautsbaug.
„Kirkja er hverju samfélagi nauð-
syn, ekki aðeins til að vera vettvang-
ur um stóratburði lífsins, kveðja
látna ástvini og félaga heldur eru
kirkjur líka tákn um að nærsam-
félagið lifir,“ sagði sr. Sigurður Árni
í predikun sinni. sbs@mbl.is
Grímseyjarsöfnun
í Hallgrímskirkju
- Samskot - Sókn-
arnefndin bætir við
- Kirkja er lífstákn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grímsey Endurreisn kirkju þar
hefur víða verið heitið stuðningi.
Theodór Kr. Þórðarson
Borgarnesi
„Hér í Borgarnesi er gott að vera
með námskeið,“ segir Guðrún Pét-
ursdóttir félagsfræðingur við frétta-
ritara Morgunblaðsins en hún hefur
haldið námskeið fyrir útlendinga á
Hótel Borgarnesi frá því árið 2004.
Eitt slíkt var haldið nýverið og fór
kennslan fram á hótelinu og einnig í
gamla Mjólkursamlaginu.
Guðrún er eigandi og forstjóri
ICI, Inter Cultural Ísland. Í
fræðslu sinni leggur hún sérstaka
áherslu á að vinna gegn fordómum
og kynþáttahatri og uppfræða þátt-
takendur um innflytjendamál og
fjölmenningarleg samfélög. Hefur
Guðrún sérhæft sig í fjölmenning-
arlegri kennslu og samvinnunámi.
Hún er höfundur bókanna „Fjöl-
menningarleg kennsla“ (1999) og
„Allir geta eitthvað – enginn getur
allt“ (2003) og Diverse Society – Di-
verse Classrooms (2018).
Guðrún hefur haldið fjölda nám-
skeiða bæði hérlendis og annars
staðar í Evrópu auk þess að hafa
tekið á móti fjölda evrópskra kenn-
ara á námskeið hér á landi. Hún
segir ICI leggja mikla áherslu á
mikilvægi þess að vera í góðu sam-
bandi við evrópskar stofnanir sem
vinna að sambærilegum málefnum
og ICI og hefur tekið þátt í mörg-
um evrópskum samstarfsverk-
efnum. ICI er m.a. í samstarfi við
Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rann-
ís), Erasmus+, styrkjaáætlun ESB
og fleiri aðila.
„Það fer vel um okkur á Hótel
Borgarnesi og í gamla Mjólkur-
samlaginu, bærinn er lítill en hér er
allt við höndina. Stutt að fara í alla
þjónustu og frábær sundlaug og
heitir pottar til að láta líða úr sér,
bæði fyrir nemendur og kennara.
Ég er reyndar sjálf ættuð úr Mýr-
dal í Kolbeinsstaðahreppi og er
nýbúin að flytja lögheimilið mitt
þangað. Þannig að ég greiði út-
svarið mitt til Borgarbyggðar í dag.
Ég á góðar minningar um kaup-
staðarferðir í Borgarnes þegar ég
var lítil stelpa í sveitinni,“ segir
Guðrún.
Hópurinn sem var nú í Borgar-
nesi kom frá Þýskalandi. Þátttak-
endur eru allir í forsvari innflytj-
endafélaga hinna ýmsu landa Afríku
og hjá Guðrúnu lærðu þau að halda
sjálf námskeið um fjölmenningu.
„Það þarf ekkert að kenna þeim
um fordóma, þar eru þau fullnuma,
því miður,“ sagði Guðrún að lokum.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Borgarnes Þátttakendur á námskeiði um innflytjendamál ásamt Guðrúnu
Pétursdóttur, félagsfræðingi og kennara, sem er önnur frá hægri í efri röð.
Gott að halda nám-
skeið í Borgarnesi
- Lærðu að fræða innflytjendur