Morgunblaðið - 25.10.2021, Side 32
Listahátíðin List án landamæra mun fara fram dagana
26. október til 7. nóvember 2021. Á metnaðarfullri dag-
skrá hátíðarinnar er lögð áhersla á list fatlaðs fólks.
Tilgangur hátíðarinnar er að auka menningarlegt jafn-
rétti og fjölbreytni með því að skapa faglegan vettvang
og tækifæri fyrir fatlaða listamenn. Listamaður hátíð-
arinnar árið 2021 er Steinar Svan Birgisson sem hefur
frá blautu barnsbeini fengist við fjölbreytt listform
enda er sagður búa í honum ótæmandi sköpunar-
kraftur. Dagskrá hátíðarinnar má finna á listin.is.
List fatlaðs fólks gert hátt undir
höfði á List án landamæra
ég get til þess að reyna að hafa já-
kvæð áhrif á aðra. Það er líka mjög
skemmtilegt.“
Hlaupið er um Ávaxtadalinn í
Norður-Ítalíu í Tor Dés Geants. Það
er skráð 330 km hlaup en Halldóra
segir að það sé í raun 350 km með
30.000 m samanlagðri hækkun.
Ljúka verði hlaupinu á innan við 150
klukkustundum eða sex dögum og
sex klukkustundum. Halldóra hafði
ekki aðstoðarmann á svæðinu en
fékk stuðning í síma og á netinu að
heiman frá Stefáni Braga Bjarna-
syni og Elísabetu Margeirsdóttur.
„Þau fylgdust með stöðunni og héldu
mér við efnið, hann vakti mig þegar
ég lagði mig og ýtti mér áfram,“ seg-
ir hún. „Það er ekki til eftirbreytni
að sofa eins lítið og ég gerði og það
er erfitt að vera nánast sem ein í
heiminum svona lengi, enda var ég
farin að sjá álfa, fólk og hús í stein-
um á leiðinni.“
Þrír aðrir Íslendingar hafa náð á
leiðarenda í þessu fjallahlaupi. Þau
eru Elísabet Margeirsdóttir, Stefán
Bragi Bjarnason og Birgir Sævars-
son. Að þessu sinni hófu 712 manns
keppni og 431 komst í mark. Hall-
dóra var í 9. sæti í 50-59 ára aldurs-
flokki kvenna, í 40. sæti í hópi allra
kvenna og í 377. sæti þegar á heild-
ina er litið.
„Ég er með áreynsluastma og átti
ekki von á að ljúka keppni, því í
hvert sinn sem ég fór yfir 2.100
metra hæð fékk ég hæðarveiki og
astmakast. Ég þurfti því að gæta
þess að fara ekki of hratt upp sem
gerði það að verkum að ég varð að
gefa í á niðurleið í keppni við tím-
ann.“
Hlaupalífið heldur áfram og
margt er á döfinni hjá Halldóru, en
hún heldur úti síðu á netinu (hall-
dora.is) þar sem hún greinir nánar
frá hlaupinu og öðrum viðburðum.
„Það er velferðarmál að hreyfa sig
og þar tala ég af eigin reynslu.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Halldóra Gyða Matthíasdóttir
Proppé byrjaði markvisst að hlaupa
fyrir áratug og náði hápunktinum á
dögunum, þegar hún tók þátt í 350
km fjallahlaupinu Tor Dés Geants á
Ítalíu. Hún kynnti sér svæðið í Ölp-
unum í æfingaferð í ágúst og hljóp
þá alls 210 km og þar af síðasta hlut-
ann í keppnishlaupinu. „Sá undir-
búningur hafði mikið að segja,“ segir
Halldóra, sem var rúma sex daga að
ná takmarkinu, hljóp samtals í 145
klukkustundir og 55 mínútur og svaf
í rúmlega níu klukkustundir í heild-
ina.
Laugavegshlaupið 2011 var frum-
raun Halldóru í keppni. „Árið áður
byrjaði ég að hlaupa í hlaupahópn-
um Bíddu aðeins með Bibbu, Bryn-
dísi Baldursdóttur, sem tók fyrst ís-
lenskra kvenna þátt í Ironman, og
síðan hefur eitt leitt af öðru.“ Hall-
dóra hefur til dæmis fimm sinnum
keppt í Ironman, tvisvar hlaupið 100
mílna hlaup, einu sinni verið með í
200 km áfangahlaupi, sem tók sex
daga, þrisvar hlaupið 100 km hlaup í
Hong Kong og fimm sinnum verið
með í Laugavegshlaupinu. „Mér
telst til að ég hafi hlaupið 100 kíló-
metra hlaup eða lengri samtals tíu
sinnum.“
Var sófakartafla
Kyrrsetufólk veigrar sér oft við að
standa upp og hreyfa sig, en Hall-
dóra hvetur alla til þess að láta á það
reyna. „Ég var algjör sófakartafla,
hafði mest gengið á milli nokkurra
ljósastaura, en þegar ég byrjaði að
vinna í Glitni, nú Íslandsbanka,
2008, fór ég að reyna að hlaupa,“
rifjar hún upp. Stjórnendur bankans
hvöttu starfsfólkið til þess að taka
þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og
styrkja gott málefni að eigin vali.
„Ég gekk meira en hljóp hálft mara-
þon á rúmum þremur klukkutímum
og var mjög glöð með það, þótt tím-
inn væri ekki góður og ég í engu
formi. En hlaupabakterían var byrj-
uð að hreiðra um sig og eftir fyrsta
Laugavegshlaupið hefur nær allur
frítími farið í æfingar og keppni.“
Auk þess að æfa og keppa hefur
Halldóra þjálfað aðra og þannig
miðlað af reynslu sinni. „Ég heill-
aðist af hlaupunum og geri það sem
Mesta afrek Halldóru
- Hljóp 350 km fjallahlaup á Ítalíu á rúmum sex dögum
Ljósmynd/getpica.com
Búin Halldóra kemur í mark eftir 145 klukkustundir og 55 mínútur.
2021
MIÐASALAHAFIN!
18.DESEMBERÍHÖLLINNI
FJARÐARKAUPOGGÓA
KYNNA Í SAMVINNU VIÐCOCA-COLA
EYÞÓRINGI · GISSURPÁLL
HÖGNI · JÓHANNAGUÐRÚN
MARGRÉTRÁN · STEFANÍASVAVARS
SVALA · SVERRIRBERGMANN
JÓLASTJARNAN ·SIGURVEGARI Í JÓLALAGAKEPPNI RÁSAR 2
FIT JÓLAGESTIR WWW.JÓLAGESTIR.IS
MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 298. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Valsmenn héldu áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild
karla í handknattleik í gærkvöld þegar þeir fóru létt
með KA á Akureyri eftir að hafa náð ellefu marka for-
ystu strax í fyrri hálfleiknum. Valsmenn eru með tíu
stig eftir fyrstu fimm leikina. Haukar og Fram unnu
einnig sína leiki í gærkvöld. » 26
Valsmenn ekki í vanda með KA
ÍÞRÓTTIR MENNING