Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 18

Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 Elsku amma okkar. Það er erfitt að hugsa um að þú sért farin. Þú varst svo skemmtileg og vildir að öllum liði vel. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur, passaðir að við fengjum alltaf Lucky Charms þegar við komum í heimsókn og ís eftir hverja máltíð. Takk fyrir að koma og horfa á alla fótbolta- leikina, fyrir að leika við okkur og leyfa okkur allt. Þú varst besta amma í heiminum. Kristín Sólveig Eiríksdóttir ✝ Kristín Sól- veig Eiríks- dóttir fæddist 18. ágúst 1964. Hún lést 30. október 2021. Útförin fór fram 8. nóvember 2021. Við elskum þig og eigum alltaf eftir að sakna þín. Helgi Hafsteinn, Kamilla Kristín og Árni Hafberg. Elsku Didda okk- ar. Lífið er skrýtið án þín. Þú varst svo ein- stök og áttir engan þinn líka. Það var alltaf svo mikið líf og fjör í kring- um þig. Hreinskilni þín var hress- andi og töffaraskapurinn aðdáun- arverður. Kærleikurinn til þinna var svo áberandi og það var alltaf hægt að leita til þín. Þú varst ynd- isleg tengdamamma og dásamleg amma. Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar og við verðum duglegar að halda minningu þinni á lofti fyrir barnabörnin þín sem elskuðu þig svo heitt. Við munum sakna þín sárt, elsku Didda. Takk fyrir allt. Þínar tengda- dætur, Margrét (Magga), Silja og Stefanía (Steffí). Elsku Didda, þín verður sárt saknað. Ég kynntist þér fyrir u.þ.b. 30 árum og við höfum brall- að ýmislegt skemmtilegt saman, m.a. farið utan, í Hveragerði og spilað kínaskák. Ég gæti talið upp óendanlega marga jákvæða hluti og rifjað upp skemmtilegar stundir sem við áttum saman. Í mínum huga varst þú alltaf glöð, dugleg, hjartahlý, skemmtileg, traust og gafst aldrei upp. Megi allar góðu minningarnar um þig styrkja fjölskyldu þína á þessum erfiðu tímum. Ó hve sárt ég sakna þín sem lýstir mér inn í ljóðaheim og lífs mér sagðir sögur um landið okkar ljúfa og lífsins leyndarmál. (Haraldur Haraldsson) Þín vinkona, Ásta. Rað- og smáauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að skipulagstillaga Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillagan samanstendur af forsenduhefti, umhverfisskýrslu, greinargerð, skipulagsuppdrætti fyrir þéttbýlin Krossland og Melahverfi ásamt sveitarfélagsupp- drætti. Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 tekur við af Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020. Í nýja aðalskipulaginu er stuðlað að hagkvæmri þróun byggðar á svæðinu, m.a. með því að skapa sem best skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og blómlegt mannlíf til að gera búsetu á svæðinu eftirsóknarverða. Áfram verður stuðlað að öflugum landbúnaði, áframhaldandi fjölbreyttri iðnaðarstarf- semi og fjölbreyttum atvinnutækifærum s.s. við ferðaþjónustu, skógrækt, umhverfisvernd og heilsueflandi starfsemi. Skipulagsgögn eru aðgengileg á heimasíðu sveit- arfélagsins; https://www.hvalfjardarsveit.is/ Aðalskipulagið er enn á vinnslustigi, en nú gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir áður en tillaga fer í formlegt auglýsingaferli. Frestur til að skila inn ábendingum rennur út þriðju- daginn 30. nóvember 2021 og skal skilað skriflega á netfangið adalskipulag@hvalfjardarsveit.is eða með bréfpósti stílað á skipulags- og umhverfisfull- trúa Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranesi. Kynningafundur verður auglýstur síðar. Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinandi kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Dansleikfimi kl. 13.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Leikfimi Qigong kl. 10.30. Handavinnustofa opin frá kl. 12.30- 15. Leshópur Boðans kl. 15. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara ,,Maður er manns gaman” er kl. 13.15. Byrjum stundina kl. 12 með kyrrðar- og fyrirbænastund og eftir hana er súpa og brauð. Í lok eldri borgara starfsins er svo kaffi og meðlæti. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Opið hús frá kl. 13-16. Í dag kemur Halldóra með Avon vörurnar og verður með kynningu ásamt öðru skemmtilegu sem hún er með. Prestur verður með hugleiðingu og bæn, kaffið góða frá Sigurbjörgu á sínum stað. Spilað og handavinna eins og vant er. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Ljóðahópur Soffíu kl. 10-12. Spaugarar og spellarar Fellur niður kl. 10.30-11.30. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Spagettí bolonese með salati, hvítlauksbrauði og parmesan.Tíramísú. Salatbar kl. 11.30-12.15. Kaplar og spil kl. 13.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Skák í Jónshúsi kl. 10.30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Brids og tvímenningur í Jónshúsi kl. 12.30–15.30. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Gler kl. 13 í Smiðju Kirkjuhvoli, Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40 og 16.20. Zumba Gold kl. 16.30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Memm fjölskyldustund, í fríi þessa viku. Döff félag heyrnar- lausra frá kl. 12.30. Félagsvist frá kl. 13. Öllum velkomin. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30, opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 10 til 11.15. Botsía, opinn tími. Kl. 12-14.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13-15 bingó í aðalsal. Kl. 16-18 námskeið, Nafnlausi leikhópurinn. Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldri borgara í dag, miðvikudaginn 10. nóvember kl. 12. Helgistund í kirkjunni og söngur, súpa og brauð hjá okkur, verð 1000 kr. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir kemur og fjallar um drauma og merkingu þeirra. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmári 13 Myndlist kl. 9. Botsía kl. 10. Postulínsmálun kl. 13. Kvennabrids kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Ganga með Evu kl. 10-11. Allir velkomnir. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12 500 kr. skiptið. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Stóla jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Dansleikfimi kl. 10. Framhaldssaga kl. 10.30. Handa- vinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9 í Borgum. MORGUN- LEIKFIMI kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópar Korpúlfa leggja af stað kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, þrír styrkleikahópar og kaffispjall á eftir. KorpúlfaKeila í Egilshöll kl. 10. KorpúlfaBingó í Borgum kl. 13, allir velkomnir, 250 kr. spjaldið. Qigong með Þóru Halldórsdóttur kl. 16.30 í Borgum. Njótum saman og höfum gaman. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna kl. 9. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Glernámskeið í samráði við leiðbeinanda. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Á morgun fimmtudag verður BINGÓ í golfskálanum kl. 14. Akstur fyrir þá sem vilja frá Skólabraut frá kl. 13.30. Allir velkomnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com með morgun- "&$#!% Vantar þig fagmann? FINNA.is Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HRAFNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði fimmtudaginn 4. nóvember í faðmi fjölskyldu sinnar. Útför fer fram frá Patreksfjarðarkirkju 13. nóvember klukkan 14. Streymt á slóðinni bit.ly/patreksfjardarkirkja Sæmundur Hólm Jóhannsson Björg Sæmundsdóttir Brynjar Finnsson Guðmundur J. Sæmundsson Eygló Hreiðarsdóttir Fríða Eyrún Sæmundsdóttir Matthías Ágústsson Jenný Kristín Sæmundsd. Erlendur Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýliskona mín, systir og stjúpdóttir, INGIBJÖRG JÓNASDÓTTIR kennari, Assens, Óðinsvéum, lést laugardaginn 23. október á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum. Indriði Sigurðsson Grímur Þ. Jónasson Jónína Herborg Jónsdóttir Jón Atli Jónasson Jónas Oddur Jónasson Herborg Drífa Jónasdóttir Pétur Jökull Jónasson Margrét Johnson Elísabet Johnson Vala Ósk Arnardóttir Hrönn Indriðadóttir Indriði Örn Hrannarsson Leo Sigurður Hrannarsson Leo Elskuleg móður- systir hefur kvatt þessa jarðvist að- eins 65 ára gömul. Fyrst man ég eftir Önnu á Hamraendum í Breiðuvík þegar við kíktum í heimsókn til afa og Dísu ömmu. Þá var hún stundum að sýna mér gullin sín, kuðunga, skeljar og servíettur. Við áttum það sam- eiginlegt að leika ekki mikið með dúkkur en dúkkulísur hentuðu betur. Teiknuðum sjálfar föt og lituðum til að hengja á dúkkulís- urnar. Annars vorum við báðar Anna Þórdís Olgeirsdóttir ✝ Anna Þórdís Olgeirsdóttir fæddist 19. sept- ember 1956. Hún lést 19. október 2021. Útför hennar fór fram 2. nóvember 2021. frekar hlédrægar og kynntumst ekki að ráði fyrr en Anna kom og dvaldi vetr- arlangt hjá okkur í Staðarsveitinni. Þá var ákveðið að hún lyki grunnskóla- göngunni á Lýsu- hóli í stað þess að fara í heimavistina í Laugargerði. Anna var meyja í stjörnu- merki og það kom því ekki á óvart hversu nákvæm og vand- virk hún var í verkum sínum. Ég man sérstaklega eftir því hvernig hún braut saman sokka, fyrst einn lagður niður og strokið yfir hann, síðan hinn ofan á og strokið yfir hann, síðan voru framleistar lagðir til hálfs upp að fitinni og að lokum var fit annars sokksins opnuð og sokkunum smellt hvor- um inn í annan, allt slétt og fínt. Alltaf þegar ég brýt saman sokka verður mér hugsað til þessa og hve natin og flink hún var í öllu handverki sínu. Á tímabili áttum við báðar heima í Reykjavík og áttum þá margar góðar stundir. Ljósið í lífi hennar var þegar hún eignaðist dóttur, hana Kristínu Margréti. Anna var óskaplega stolt af henni og það með réttu. Þegar barnabörnin þrjú bættust í hópinn ljómaði Anna, ömmu- gullin hennar voru henni alltaf efst í huga og þó sérstaklega eftir að veikindin urðu þess valdandi að hún varð að færa dvöl sína yfir á Hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi, en Anna hafði flutt á Akranes þegar foreldrar hennar brugðu búi og keyptu stórt hús þar. Anna átti íbúð í kjallaranum og leit þá eftir foreldrum sínum eins og þurfti. Lífið hennar var ekki alltaf auðvelt og mín trú er að hún hafi ekki notið sannmælis né skilnings þegar MS-veikindin byrjuðu að segja til sín, hvorki hjá læknum né öðrum því hún fékk ekki greiningu fyrr en eftir margra ára eða áratuga þrautir. Og örugglega oft verið ranglega dæmd af þeim sem ekki skilja ósýnileg veikindi sem valda verkjum, orkuleysi og þreytu. Anna var einstaklega ljúfur og hlýr karakter, hafði skemmtileg- an húmor og brosið hennar lýsti upp allt í kring, hún vildi ekki kvarta, aðrir gengu fyrir og hún vann sín störf við heimilishjálp og umönnun eins lengi og hún gat. Anna var dýravinur og elsk- aði ketti. Þegar hún bjó á Akra- nesi hlúði hún að öllum villikött- um sem leituðu til hennar, þeir áttu henni líf sitt að þakka. Ég var svo lánsöm að kíkja í heim- sókn til hennar um miðjan sept- ember. Þá gátum við gantast og hlegið saman en augljóst var að mjög var af henni dregið enda orðin rúmföst og lítið um að vera. Elsku Anna, fallega brosið þitt mun alltaf fylgja þér í minning- unni. Hjartans samúð til ættingja og vina. María Lóa. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.