Morgunblaðið - 10.11.2021, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021
120 OG 200 LJÓSA
INNI- OG ÚTISERÍUR
Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is
Kíktu á nýju vefverslunina okkar
rafmark.is
40 ÁRA Gísli er Keflvíkingur, fæddur
þar og uppalinn. Hann er með BSc.-
gráðu í orkuverkfræði frá Háskóla Ís-
lands og MSc.-gráðu frá Háskólanum í
Álaborg. Gísli er orkuverkfræðingur
hjá Verkfræðistofu Suðurnesja.
„Akkúrat núna vinn ég við eftirlit á
20.000 fermetra viðbyggingu í Leifs-
stöð. Áhugamálin eru fjölskyldan og
fótbolti.“
FJÖLSKYLDA Sambýliskona Gísla er
Stefanía Júlíusdóttir, f. 1989, viðskipta-
stjóri hjá Isavia. Börn þeirra eru Sindri
Snær, f. 2014, Berglind Eva, f. 2018, og
strákur, sem fæddist í gær. Foreldrar
Gísla eru Lárus Ólafur Lárusson, f.
1947, fv. sjómaður, og Ingibjörg
Magnúsdóttir, f. 1947, vann hjá Verka-
lýðsfélagi Keflavíkur og nágrennis.
Gísli Lárusson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þar sem þú ert alltaf nærgætinn
gæti það valdið vissum aðilum sársauka ef
þú ætlar að vera hispurslaus. Reyndu að
sýna þolinmæði og gott fordæmi.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þetta er ekki verri dagur en hver annar
til að reyna eitthvað nýtt í eldhúsinu. Gefðu
þér góðan tíma og leyfðu þínum innri manni
að ráða ferðinni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þig langar til að flýja hversdags-
leikann í dag. Farðu á námskeið sem
gagnast þér í vinnunni eða örva huga þinn.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú þarft að hafa hlutina á hreinu áð-
ur en þú tekur ákvörðun í veigamiklum mál-
um. Skipulag getur aukið sjálfsöryggi þitt.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú gætir komist að mikilvægum upp-
lýsingum í dag sem geta nýst þér vel í starfi.
Líklega tengist það einhverju sem þú hefur
lengi velt fyrir þér.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gefðu þér tíma til að skoða þær
breytingar sem eru að verða í lífi þínu. Þú
kaupir eitthvað sem þig hefur lengi dreymt
um en aldrei látið verða af.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú munt njóta aukinnar athygli á næstu
vikum. Þótt þér sé sýndur ýmis sómi skaltu
varast að láta velgengnina stíga þér til höf-
uðs.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Í dag er gott að leggja grunninn
að verkum eða áætlunum. Forðastu allar
venjur hins daglega lífs og gerðu eitthvað
óvenjulegt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er ekki hægt að gera svo að
öllum líki og því skaltu halda þínu striki
ótrauður. Leyfðu hlutunum að rúlla meira af
sjálfu sér.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Láttu ekki smámuni vefjast svo
fyrir þér að þú getir ekki sinnt því sem máli
skiptir. Komdu böndum á peningamálin og
fáðu rétta mynd af ástandinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þótt gott sé að hafa hlutina
skipulagða og á hreinu getur verið spenn-
andi að fara í óvissuferð við og við. Brettu
upp ermarnar og gakktu glaður til verks.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur í mörg horn að líta og vafa-
samt hvort þú kemst yfir allt það sem þú
þarft að klára. Hugur þinn er skarpur og at-
hugull og ekkert fer framhjá þér.
leiðsögumaður á eigin vegum.
„Um 1980 fór ég að vinna með maka
mínum við kvikmyndagerð, m.a. var
ég aðstoðarframkvæmdastjóri við
Snorra Sturluson, RÚV 1980, Jón
Odd og Jón Bjarna, Norðan átta hf.
1981 og Á hjara veraldar; Kristín
Jóhannesdóttir 1982. Að auki vann ég
við bókhald og handritsskriftir fyrir
ýmis kvikmyndaverkefni.“
Auður hefur alla tíð verið mjög virk
í félagsmálum og stjórnmálafélögum
og þar gekk mér vel alveg þar til ég
missti heilsuna árið 1998.“ Auður var
aðalféhirðir ÚÍ fram að sameiningu
bankanna, í ársbyrjun 1990, var
deildarstjóri í þjónustudeild Íslands-
banka frá 1990 og síðan við útibúa-
þjónustu hans til 1993 og var þjón-
ustustjóri Íslandsbanka í Hafnarfirði
1994-2000. Auður var leiðsögumaður
fyrir erlenda ferðamenn á Akureyri,
einkum af skemmtiferðaskipum,
2009-2017 á vegum SBA og var líka
A
uður Auður Eir Guð-
mundsdóttir er fædd 10.
nóvember 1951 á Miklu-
braut 1 í Reykjavík og
ólst þar upp fram á
fjórða aldursár hjá Helgu móður-
ömmu sinni.
„Árið 1955 komu foreldrar mínir
frá námi og fluttust þá út á Seltjarn-
arnes og bjó ég þar fram til ársins
1990. Ég var þó alltaf mjög nákomin
Helgu ömmu minni og má segja að
hún hafi alið mig upp til jafns við for-
eldra mína. Seltjarnarnesið var á
þessum árum mjög strjálbyggt og í
raun sveit. Rétt fyrir ofan Útgarð var
stórbýlið Nes þar sem Skúli Thor-
arensen rak stórt kúabú. Tvær af
dætrum bústjórans voru miklar vin-
konur mínar og ég því heimagangur í
Nesi frá 1960 til 1966 og tók þar þátt í
öllum verkum sem við máttum koma
nálægt. Í næstu húsum fyrir sunnan
mig voru nágrannar okkar með kind-
ur og hænur, stórt trésmíðaverkstæði
og stórir kartöflugarðar voru á öllum
lóðum enda þær stærri en nú.
Mest fékk ég að kynnast sveitinni
annars vegar á Grund í Skorradal þar
sem við amma mín komum á hverju
sumri til stuttra heimsókna og dvala
og síðan á hverju sumri á Æsustöðum
í Eyjafirði þar sem ömmubróðir minn
var bóndi, líka stuttar dvalir frá 1955
til 1967.“
Auður tók landspróf í Gaggó Vest,
Vonarstræti og varð stúdent 1971 frá
MR. Um miðjan síðasta áratug tók
Auður diplómanám í viðskipta- og
rekstrarfræðum við Endurmenntun
HÍ og lauk því með góðri 1. einkunn.
Síðan hóf hún nám á eigin vegum í
leiðsögn 2008 hjá endurmenntun og
var í fyrsta hópi háskólamenntaðra
leiðsögumanna sem útskrifaðist 2010,
líka með góða 1. einkunn. Árin 1995
til 1997 stundaði hún nám í ítölsku hjá
Paolo Turchi og lauk sex áföngum
með 1. verðlaunum. Á fyrsta áratugn-
um tók hún síðan nokkra áfanga í
frönsku við endurmenntun HA.
Eftir námið 1971 hóf Auður störf
hjá Útvegsbanka Íslands. „Á þessu
tímabili hóf ég tvisvar nám hjá HÍ en
hætti eftir fyrsta misseri. En bankinn
menntaði mig upp í framtíðarstarfs-
mann, eins og það var kallað. „Megin-
starfsferill minn var hjá bankanum
allt fram til ársins 2011. Hún sat í
stjórn Heimdallar 1969-70, var for-
maður Æskulýðsráðs Seltjarnarness
1977-81, sat í varastjórn og stjórn
Sambands íslenskra bankamanna
1987-95 og var þar ritari, var fulltrúi
SÍB í samstarfsnefnd um Reiknistofu
bankanna og sat í ýmsum fleiri nefnd-
um. Auður sat í stjórn Norðurlands-
deildar Gigtarfélags Íslands á ár-
unum 2005-2011. Hún var einu sinni í
framboði til bæjarstjórnar á Seltjarn-
arnesi 1978. „Ég hef tekið þátt í ein-
um gönguhóp 1992-1997, Göngum
aftur, og síðan erum við hjónin hluti
af svarthvítafélagi gamalla sjón-
varpsmanna.“
Ritstörf Auðar hafa verið töluverð,
að mestu leyti tengd kennslu í Banka-
mannaskólanum og síðar við fræðslu
starfsmanna Íslandsbanka 1986-
1998. Viðurkenningar hafa flestar
verið tengdar því starfi sem og starfi
Auðar sem aðalféhirðir ÚÍ.
„Helstu áhugamál mín hafa verið í
gegnum tíðina mikil fræðsluþörf,
bókalestur með megináherslu á sögu,
landafræði, félagsmál og tungumál.
Þar með fylgir áhugi á ferðalögum og
alls konar fræðsla tengd áfanga-
Auður Eir Guðmundsdóttir, leiðsögumaður og fyrrverandi bankamaður – 70 ára
Fermingarveisla Reykvíski hluti fjölskyldunnar í fermingarveislu barnabarns að norðan árið 2019.
Alltaf haft mikla fræðsluþörf
Hjónin Helgi og Auður stödd á
Benidorm á Spáni árið 2018.
Systkinin Þórdís, Auður, Helga og
Guðmundur árið 2012.
Til hamingju með daginn
Njarðvík Eyvör Maren Árnadóttir
fæddist 8. desember 2020 kl. 00.35 á
Landspítalanum. Hún vó 4.030 g og
var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru
Ásdís Ólafsdóttir og Árni Þór
Ármannsson.
Nýr borgari