Morgunblaðið - 10.11.2021, Side 25

Morgunblaðið - 10.11.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN ER KOMIN Í BÍÓ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T Concertgebouw-hljómsveitin kemur fram í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Klaus Mäkelä. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hörpu eru tónleikarnir hápunktur í dagskrá í til- efni af 10 ára afmæli Hörpu. „Á efnis- skrá tónleikanna eru tvær af stór- brotnustu sinfóníum tónbók- menntanna, sem tefla fram sterkum andstæðum og gefa áhrifaríka sögu- lega og listræna mynd af gullöld sin- fónískrar tónlistar. Hin epíska sjötta sinfónía Dímítríjs Shostakovitsj ögraði sóvéskum gagnrýnendum árið 1939. Hún er full af togstreitu, spennu og öfgafullum tilfinningum. Hin trega- fulla sjötta sinfónía Tsjajkovskíjs, með undirtitilinn „Pathétique“, var hinsta kveðja höfundar til lífsins og er af mörgum talin einn af hápunktum sinfónískrar tjáningar,“ segir í til- kynnningu frá Hörpu. Þar kemur fram að Concert- gebouw-hljómsveitin sé ein allra besta sinfóníuhljómsveit heims. „Hljóm- sveitin þykir skara fram úr fyrir silki- mjúkan hljóm, mikla dýnamíska breidd og gífurlega fjölbreytta nálgun í túlkun.“ Hljómsveitin var stofnuð ár- ið 1888 og á heimili sitt í tónlistarhús- inu Concertgebouw í Amsterdam. „Mörg þekktustu tónskáld sögunnar hafa stjórnað flutningi hljómsveit- arinnar á sínum verkum, þar á meðal Richard Strauss, Gustav Mahler og Igor Stravinsky. Hljómsveitin leikur um 80 tónleika í sínum heimasal á ári en leggur auk þess áherslu á tónlistar- flutning í bestu tónleikasölum heims.“ Hljómsveitarstjóri kvöldsins er Klaus Mäkelä. Hann er aðeins 25 ára gamall „en er nú þegar einn eftir- sóttasti hljómsveitarstjóri heims. Hann hefur starfað sem aðal- hljómsveitarstjóri Fílharmóníu- hljómsveitarinnar í Osló frá 2020 og verður auk þess aðalhljómsveitar- stjóri Orchestre de Paris frá haustinu 2022. Klaus Mäkelä stjórnar reglulega bestu sinfóníuhljómsveitum heims, þar á meðal Concertgebouw- hljómsveitinni.“ Samkvæmt núgild- andi reglugerð um sóttvarnir þurfa allir tónleikagestir að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu á viðburði og bera grímu meðan á við- burðinum stendur. Best Concertgebouw-hljómsveitin leggur áherslu á tónlistarflutning í bestu tónleikasölum heims. Concertgebouw- hljómsveitin í Hörpu - Klaus Mäkelä stjórnar Shostakovitsj og Tsjajkovskíj M argir spennusagnahöf- undar víða um veröld hafa fjallað um mansal í bókum sínum og tekist misjafnlega að ná utan um viðbjóðinn og ástæður hans, eins og gengur. Lilja Sigurðardóttir er með íslenskan vinkil á vandamálinu í Náhvítri jörð og getur brosað framan í heiminn að loknu góðu verki. Að sumu leyti er Náhvít jörð sjálf- stætt framhald af tveimur spennu- sögum Lilju, Helkaldri sól, sem kom út 2019, og Blóðrauðum sjó frá því í fyrra. Áróra er enn að leita að systur sinni, vinnan hefur forgang hjá Daníel, Áróra hrífst af honum og hann hefur taugar til hennar en sam- skiptin eru gjarnan skemmtilega mis- skilin. Lady Gúgúlú er á sínum stað, tengsl Helenu við Söru eru í föstum skorðum, hún er umhyggjusöm, þeg- ar hún vill svo við hafa en föst fyrir og ákveðin þegar á þarf að halda. Gömul kynni rifjast upp en mynd helstu per- sóna verður samt stöðugt skýrari og þær gefa æ meira af sér. Sagan er spennandi. Lilja skrifar vel þéttan og úthugsaðan texta. Skýr- ingar hennar á umhverfi og líðan eru á stundum hreint afbragð samanber byrjun sögunnar. Ljóð- rænar myndlík- ingar segja sína sögu og engum dylst munurinn á frænkunum Elínu, sem malar eins og köttur, og Áróru, sem urrar eins og rándýr. Samræðurnar eru líka eðlilegar og grípandi í heilsteyptri frásögn. Húmorinn og íronían gera sitt gagn, draga úr viðbjóðnum og dreifa þannig huganum. Skotið á aðallækn- inn í golfi er hárbeitt og hamborgara- árátta Daníels vísar á veikan blett. Á þessum vettvangi hefur Áróru verið líkt við Lisbeth Salander og ljóst að á Teslunni er hún komin fram úr Stellu Blómkvist á silfurfáknum, svo enn ein kvenhetjan sé nefnd í þessu sam- hengi. Sergei á Yaris á heldur ekkert í hana, en Ari á Benz á hugsanlega framtíð fyrir sér. Meiri spurning er um fyrrverandi tengdamóður Daníels á Range Rover. Ljóst er að Lilja er á góðri siglingu og í því sambandi kemur sund- sprettur Lárentínusar í köldu vatni um miðjan vetur spánskt fyrir sjónir. Það flokkast samt frekar sem yfir- sjón en vel ígrunduð aðgerð og þegar á heildina er litið er Náhvít jörð ekki aðeins góð spennusaga heldur gott innlegg í mikilvæga umræðu um græðgi, glæpi og fordóma. Íronía „Húmorinn og íronían gera sitt gagn, draga úr viðbjóðnum og dreifa þannig huganum,“ segir í dómi um nýjustu glæpasögu Lilju Sigurðardóttur. Græðgi, glæpir og fordómar Glæpasaga Náhvít jörð bbbbn Eftir Lilju Sigurðardóttur. JPV útgáfa 2021. Innbundin, 313 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.