Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið höfum lengi ætlað að
skrifa saman bók um
hesta, en það var ekki fyrr
en í covid-tíðinni sem okk-
ur gafst loks tími til að setjast niður
við þá sköpun,“ segja hjónin Bene-
dikt Líndal og Sigríður Ævarsdóttir,
eða Benni og Sigga eins og þau eru
alltaf kölluð, hrossa- og
geitabændur á Gufuá í
Borgarfirði. Þau sendu
nýlega frá sér bókina
Tölum um hesta. Í bók-
inni deila þau reynslu
sinni og lífi með hófaljón-
um, en slíkum skepnum
hafa þau hrærst með frá
því þau voru krakkar.
Benni er landsfrægur
tamningameistari og reiðkennari,
Sigga er mikil hestakona, alþýðu-
listakona og hómópati. Hún sá einn-
ig um að myndlýsa bókina með
vatnslitamyndum. Í bókinni segja
þau frá eftirminnilegum hestum og
atvikum þeim tengdum og flétta inn
í frásögnina fræðslu, sögur, ljóð og
nýjar uppgötvanir.
„Okkur langar að sýna fólki
hversu heillavænlegt er að leyfa til-
finningum og flæði að ráða för í
vinnu með hesta,“ segir Sigga og
Benni bætir við að þau líti ekki á
bókina sem hefðbundna kennslubók
þó þar sé vissulega fræðsla.
„Það má alltaf spyrja sig hvar
og hvenær reiðkennsla byrjar og
hvar hún endar. Það sem fram kem-
ur í bókinni er fyrst og fremst við-
horf okkar og nálgun í vinnu með
hesta. Við veltum líka fyrir okkur
hvernig hestar eru öðruvísi en við
mannfólkið og fleira í þeim dúr. Mín
heilaga þrenning sem ég vinn út frá
er hlustun, skilningur og samþykki.
Ef hestafólk ætlar að fá þetta til að
ljóma og að hestur sé sáttur,
þá þarf ákveðnar forsendur.
Bókin er í raun einhvers-
konar óður til íslenska
hestsins, almennt,“ segir
Benni og bætir við að þetta
sé alls ekki aðeins hugsað
fyrir þá sem eru að byrja í
hestamennsku, heldur ekki
síður fyrir þá sem eru
reynslumiklir.
„Til að minna þá á hvað þetta
getur allt verið skemmtilegt og gott,
ef rétt er farið að. Margir hafa feng-
ið mjög verðmæta ráðgjöf, tilsögn og
annað, beint frá hestinum sjálfum,
án þess að gera sér endilega grein
fyrir því strax,“ segir Benni og bætir
við að hann leggi mikið upp úr því að
vanmeta ekki hestinn. „Ekki má
heldur vanmeta knapann, allra síst
börn, heldur hlusta og ekki dæma of
fljótt.“
Hestar í meðferðarúrræðum
Sigga segist ung hafa fundið
fyrir andlegum skyldleika við hesta
og hún hefur verið að teikna hesta
frá því hún var lítil stelpa.
„Ég upplifði mig stundum sem
hryssu þegar ég var stelpa. Ég get
ekki séð tilveruna fyrir mér án þess
að vera með skepnur í kringum mig,
vegna þess að þær hafa almennt
mjög góð áhrif á mig, hvort sem þær
eru alveg ofan í mér eða einhvers
staðar í nágrenninu. Dýrin gefa frá
sér orku eða hvað sem við köllum
það, sem hefur mjög góð áhrif á
manneskjur. Fyrir vikið er samvera
með hestum notuð sem meðferðar-
úrræði, til dæmis fyrir fanga og aðra
sem eiga erfitt og eru komnir á þann
stað andlega að þeir eiga erfitt með
samskipti við sjálfa sig og annað
fólk. Þeir eru jafnvel hættir að
tengja við eigin tilfinningar og vita
ekki hvernig þeim líður, en hestur-
inn sýnir þeim það, því hann speglar
það sem þeir ná ekki að tengja við í
sjálfum sér. Þessi góðu áhrif þekkj-
um við Benni sjálf, í kringum hest-
ana tónast allt niður og kerfið hjá
okkur mannfólkinu róast. Þetta á við
um fleiri skepnur, að vera innan um
þær hefur góð áhrif á mannfólkið,
enda er farið með dýr inn á stofnanir
þar sem veikt fólk er,“ segir Sigga
og bætir við að næmleiki hesta sé
líka heillandi í vinnu með þeim.
„Þeir skynja vel hvernig knap-
anum líður og fólkinu í kringum þá,
þeir finna lykt af ótta manneskju.
Þeir skynja líka að þeim stendur
engin ógn af börnum, ljónstyggur
hestur í haga leyfir oft barni að
ganga þar að sér og ná sér.“
Hross, geitur og forystufé
Þegar þau eru spurð að því
hvort þau hafi lært hvort af öðru í
nálgun sinni í hestamennsku, er
Benni fljótur til svars: „Sigga hefur
alveg tvímælalaust lært mikið af
mér,“ segir hann og hlær en Sigga
bætir við að þó hann hafi vissulega
kennt henni margt, þá fari hann fínt
í það. „Því ég kæri mig ekkert um að
hann segi mér mikið til,“ segir
Sigga, sem upplýsir í nýju
bókinni að við þeirra
fyrstu kynni hafi
hún fallið fyrir
hestinum sem
Benni sat, en ekki
tekið eftir knap-
anum. „Ég held að
það sé misskiln-
ingur,“ segir Benni
og hlær en Sigga
þvertekur fyrir það.
„Ég var ekki í
neinum karlahugleið-
ingum, en ég hef allt-
af verið ofboðslega
hrifin af hvítum hest-
um og hann var að
þvælast þarna á þessum rosalega
flotta hvíta hesti.“
Benni segist á þessum tíma
hafa unnið við tamningar á bæ norð-
ur í Skagafirði og Sigga hafi verið á
þarnæsta bæ að vinna.
„Ég reið mikið fram og til
baka fyrir ofan bæinn á þessum
æðislega hesti,“ segir Benni og
Sigga bætir við: „Hann var að
leggja snörur fyrir mig, ég áttaði
mig ekkert á því, sá bara
hestinn.“ Hesturinn var því
örlagavaldur í lífi þeira.
„Ég hefði samt
örugglega fundið aðra leið
til að ná í hana, ef hún
hefði ekki fallið fyrir þess-
um hvíta glæsihesti,“ seg-
ir Benni keikur. Sigga segist á þess-
um tíma líka hafa átt hvítan hest
sem átti að verða eins flottur og sá
sem Benni sat, en varð ekki.
„Hann var erfiður í járningu og
Benni járnaði hann fyrir mig, þá
fékk hann annað prik hjá mér. Okk-
ar samdráttur gerðist því allur í
gegnum þessa tvo gráu hesta.“
Þau Benni og Sigga una hag
sínum vel í Borgarfirðinum með
hrossin sín, geitur og forystufé og
reka þar, auk hrossatamninga og
þjálfunar, starfsemi tengda
skemmtilegum upplifunum. Sigga
býður t.d. upp á geitalabb fyrir ein-
staklinga og hópa og segir geiturnar
eins og litla hesta.
„Þær temjast eins og hestar og
innan þeirra er virðingarstigi og
táknmál eins og hjá hestum. Við er-
um ekki með mikla hrossarækt og
erum heldur að fækka hrossunum.“
Nánar á: www.gufua.com.
Tveir gráir hestar leiddu þau saman
„Ég var ekki í neinum karlahugleiðingum, en ég hef alltaf verið ofboðslega hrifin af hvítum hestum og hann var að þvælast þarna á þess-
um rosalega flotta hvíta hesti. Hann var að leggja snörur fyrir mig, ég áttaði mig ekkert á því, sá bara hestinn,“ segir Sigríður Ævarsdóttir
um það hvernig hún og Benedikt Líndal kynntust. Þau sendu nýlega frá sér bókina Tölum um hesta, sem er óður til íslenska hestsins.
Benni Hér á Hljómi og með hryssuna Hrund í taumi,
bæði þessi hross eru úr ræktun hans og Siggu.
Sigga Hún býður upp á geitalabb fyrir einstaklinga og
hópa. Geithafurinn Nóri kann að gera ýmsar kúnstir.
Ófeigur Saga af honum
er í bókinni góðu.
Teymingar Eitt af því sem
tekið er fyrir í bókinni.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Vatnslitamyndir úr bókinni/Sigga
Vinir Sigga upp-
lifði sig stundum
sem hryssu þegar
hún var stelpa.